Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.02.2005 at 21:34 #515742
Ég var að sjá þetta innsigli áðan hvernig er það losað
Þakka góð svör
06.02.2005 at 23:32 #515736Er þessi skrúfa ekki frekar ofarlega á verkinu?
03.02.2005 at 19:34 #195406Getur einhver sagt mér hvernig á að skrúfa upp olíuverk í toyota hilux 2.4 árg 90
Bjarni
23.01.2005 at 13:50 #514478Það er eini mælikvarðinn sem hægt er að notast við. Ventlabank ,óvenju mikill reykur eða eitthvað svoleiðis.
það er aldrei einhver áveðin ending á vélum, bara hvernig hefur verið hugsað um þær.Bjarni
22.01.2005 at 19:01 #514286Dísel véla þola jafn vel að vera á 3500 sn og á 1500 sn ( alla vega toyotur ) það fer hins vegar mjög illa með þær eins og allar vélar að keyra þær í háum gír og láta þær puða
Bjarni R2711
13.01.2005 at 23:09 #513264Ég er einmitt að fara að mixa garret túrbínu í minn en merkið á henni er nokkurn veginn svona 4 0< nema
hornið er í miðjum hring ég held að þetta sé T4 og mér sýnist hún vera nokkuð svipuð og flestar túrbínur á
litlum dísel vélum eins og okkar.
En hvað um það ég ætla að smíða milliplötu því túrbínan passar ekki beint á greinina. svo þarf að redda slöngum
fyrir smurninguna og búa til stút á olíupönnuna fyrir affallið .
En ég held að þeta sé svokölluð T4 og hún var á perkins 3-4 lítra díselvélBjarni R-2711
26.12.2004 at 16:50 #511718Það kostar mikið að gera þetta é verkstæði.
Það er ekki mikið mál að gera þetta sjálfur ef þú ert með viðgerða bók
18.12.2004 at 20:57 #511304Það besta sem þú getur gert er að mæla þig áfram þ.e.a.s. byrja frá öryggjaboxi og sviss og finna hvar spennan hættir þá ættir þú að geta fundið hvað er bilað
Bjarni R 2711
13.12.2004 at 23:34 #510772já þú kannski bara kemur með næst og sýnir okkur.
12.12.2004 at 15:52 #510768Fórum í gær en komumst ekki alla leið.Með í för voru extra cab 38" suzuki jimny 32" ,vitara 33" landcruiser 90 38" og double cab38"
Við fórum upp að Bragabót og áleiðis að langjökli,
þegar við vorum komnir austan við skjaldbreiðlentum við í stórum skafli þar sem lancruiserinn affelgaði. Eftir 1 og hálfan tíma var dekkið komið á en enginn hafði gert þetta áður. Þá átti eftir að losa landcruiserinn og þurfti að draga hann afturbak þannig að hann þurfti að reyna skaflinn aftur.
Þegar hann var laus lögðu allir af stað í átt að karlaríki en ég ákvað að bíða og sjá hvort cruiserinn myndi hafa það yfir skaflinn en hann festi sig aftur, þá reyndi ég að draga hann áfram en það var eins og að keyra á vegg. Þá kölluðum við í Valda á double cab og kom hann að
aðstoða okkur en þegar við vorum að kippa í cruiserinn affelgaðist aftur en nú þurftum við drullutjakk til þess að ná dekkinu undan,
þannig að Ingvar(landcruiser) og Valdi fóru upp á skjaldbreið að ná í tjakk að láni og ég fór í karlaríki að ná í Gísla(jimny) og Þóri(vitara). Það tók enga stund að koma dekkinu aftur á felguna og snerum við þá við enda klukkar orðin sirka hálf sex og enginn nennti að keyra jökulinn í myrkri.
Ferðin heim gekk áfallalaust fyrir sig og vorum ég í bænum kl.8 en hinir aðeins fyrr.
Það var mjög gott færi djúpur snjór og þurr og þetta var góð ferð í alla staði og fínt að fá smá reynslu í affelgun.Bjarni R-2711
11.12.2004 at 22:26 #510868Þessi bíll er ekki ljótur teppið er kanski skítugt en það má redda því.
Mér finnst hann geðveikur.Bjarni
10.12.2004 at 20:48 #510756ER þá ekki málið að fara bara lyngdalsheiðina. Það hlýtur að vera kominn ágætis snjór á helvítið.
ALLIR AÐ KOMA MEÐ
Bjarni (hef ekkert að gera)
10.12.2004 at 20:44 #510848Þetta er svolítið skrítð að allir eru allt í einu á móti v8 bensínhák í landcruiser en enginn segir neitt við
Ford með 351-460 eða chevy 350 o.s.f.v.
En hinsvegar er ég alveg sammála með verðlagninguna á þessum bílum en þetta er bara það sem markaðurinn
býður uppá. Þessir bílar (dísel) eru að seljast á þessu fáránlega uppsprengda verði
af því að þeir eru svo djöfull vinsælirEKKI AUGLÝSA ‘A VEFSPJALLINU.
Kveðja Bjarni R-2711
09.12.2004 at 19:49 #195026Kvöldið við erum þrír sem ætlum á langjökul á laugardag tvær súkkur og einn hilux er einhver sem langar með líka?
Bjarni
28.11.2004 at 23:33 #509774Það er ekki vegna þess að jeppinn þoli ekki eigin þunga heldur er það þveröfugt, hann er of sterkur og þar af leiðandi krumpast hann ekki jafn mikið og fólksbílar, en við það að krumpast þá étur fólksbíllinn höggið
meir en í jeppanum þar sem höggið fer beint í farþegana.Bjarni.
20.11.2004 at 20:47 #508848Er enginn tollur af gps, hvar keyptir þú gpsið, ebay? hvernig fluttir þú það inn????
Ef þú keyptir á ebay hvað heitir þá "persónan" sem var að selja það.
Bjarni.
19.11.2004 at 22:57 #508830hvað kostaði hann , áttu myndir
Bjarni
P.s. hvað er hann keyrður og hvaða árgerð
19.11.2004 at 22:37 #509084Isuzu er ekki ódrepandi kvikindi. punktur.
Bjarni
18.11.2004 at 14:38 #508818Það er af því að eftirspurnin er gífurleg.
Hann er á klöfum að framan.
vélin er 125 hö án intercoller en vinur minn keypti einn á 700.000 í sumar og maður sér þá fara niður í 900.000.
svo er þetta nánast bilanafrítt.Bjarni.
18.11.2004 at 09:20 #5088143litra disel turbo4 runnerinn er það besta í stöðunni hann er þægilegur léttur og kraftmikill, MIKILL munur á honum og hilux. Patrol eru þæginlegir en þeir eru þungir og skila ekki svo góðu afli.
Gleymdu þessum bíl sem þú ert að spá í, að gera upp túrbínu kostar líklega yfir 50 þús.
Bjarni
-
AuthorReplies