You are here: Home / Haukur Írvar Weihe
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
jújú eflaust væri ágætt að hafa fólkbílaauglýsingaflokk og allt í lagi að ræða þessa hluti hérna, en menn eru nú "aðeins" farnir að missa sig hérna.
En nú nenni ég ekki að "commenta" meira á þetta, og held bara áfram að auglýsa minn Yaris, oft.
Ég skráði mig ekki í 4×4 til að geta auglýst einhverja hluti það er alveg af og frá.
Ég kallaði ekki litludeildina barnadeild, heldur finnst mér svörin ykkar hérna lýsa miklum barnaskap.
Mér er nákvæmlega sama hvort þessi Skúli hafi einhverntímann verið formaður eða eitthvað annað, hann er ekki hafinn yfir gagnrýni.
Svo eru þetta ekki persónulegar árásir á einn eða neinn, heldur er ég að lýsa furðu minni á því að það sé verið að eyða tíma í svona bull hérna.
Eins og ég hef sagt hérna áður, þá finnst mér engum koma við að fólk sé að auglýsa hérna, svo framarlega sem það sé leyfilegt og menn séu félagsmenn og ég hef ekki séð neitt sem bendir til þess að fólksbílaaulýsingar séu bannaður hérna. Þessi Þengill og Skúli hljóta að vera í BARNADEILD 4×4, eða þá að börn hafi komist á aðganginn þeirra hérna inn á síðuna.
Mikið væri fallegt ef einhver sem þekkir þá gæti haft samband við þá og látið þá vita svo þeir geti breytt lykilorðinu hjá sér svo þetta endurtaki sig ekki.
Að mínu mati er það meira vandamál heldur en einhver Yaris auglýsing.
Dæmi hver fyrir sig.
Ég er félagsmaður, og ég ætla að auglýsa Yaris hérna eins oft og mér sýnist, enda kemur það engum við.
Þeir sem ekki hafa áhuga á að skoða Yaris auglýsingar eða aðrar fólksbílaauglýsingar skoða einfaldlega næstu auglýsingu fyrir neðan, það fer nú ekki mikill tími í að skrolla niður skjáinn og ýta svo á "næsta síða".
Að gefnu tilefni vil ég benda á að ég er líka með ísskáp til sölu hahahahahaha
Endilega að hafa samband 899-2536
Furðulegt þegar einhverjir gaurar hérna ætla að ákveða fyrir aðra hvaða auglýsingar mega birtast,
sbr. Yaris auglýsinguna.
Þeir sem vilja upplýsingar um Yaris þeir einfaldlega hringja eða senda póst en hinir láta það bara eiga sig.