Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.07.2003 at 20:08 #192744
Mér datt nú í hug allt í einu úr því að menn voru nú að rakka Hlyn greyið niður hér um daginn með þessa ofur 3L Datsun ofurvél hvort Hiclone gæti hjálpað mönnum eins og honum? Allavega þá ættu menn kanski að líta á þennan vef hiclone.is. Hann gæti kanski gert eitt og annað fyrir ýmsa meir að segja 6.5 eigendur sem eiga þann draum heitastan að halda í við okkur Barbí strákana hehe…
Kv.
Benni
23.07.2003 at 17:49 #192740Nú ætlar Palli að fara að selja Eirík þann mikla höfðingja. Veit einhver hvað kallinn ætlar að fá sér? Er kallinn búinn að fá nóg af MMC eða eru önnur ævintýri að gerast?
Kv.
Benni
23.07.2003 at 16:12 #474976Hvað ertu að hugsa, sumardekk eða vetrar. Er Patti breyttur fyrir 44"? Ef svo er þá er 39,5 Trxus einn möguleikinn. Hann hefur þann kost að vera stór og þrátt fyrir að vera þykkur og mikill er hann mjög mjúkur á mölinni. Galli er helst að hann á það til að rása pínu ef ekið er á ósléttu malbiki. Virka vel í krapa og sólbráð, hef hef ekki prufað þau í púðri, gætu verið slæm í því þar sem þetta eru ekki radial dekk.
Kv.
Benni
20.07.2003 at 21:00 #474954Já þetta var allveg frábært.
Takk fyrir okkur!
Benni og CO
16.07.2003 at 16:51 #474844Að vera að eiða tíma í svona vangaveltur sususu auðvitað er KEA best, það segir allavega PalliH
KEA kveðja úr 20 stiga hitanum í KEA bænum Akureyri
Benni
A736PS.
Artic Freysi er orðinn brúnn og pattaralegur (ekki patrolegur..) eftir dvölina (ekki kvölina) hér fyrir norðan
15.07.2003 at 01:54 #474854Ofsi!
Já hvernig er þetta með bókina, ég pantaði hana af netinu í síðustu viku og það bara bólar ekkert á henni HUUU…
Bíð spentur!
[img:6zzd53r4]http://images.animfactory.com/animations/school/books/book_page_flip_md_wht.gif[/img:6zzd53r4]
Kv.
Benni
A736
14.07.2003 at 02:00 #474848PS!
Kanski betra að hafa þessar uppl. með.
BOLT-ON 4LINK BIGBAG KIT
CHASSIS TECH introduces the first HI-LIFT suspension system for 2WD & 4WD trucks. This kit is available in both bolt-on and weld-on versions. Chassis Tech is the worlds? leader in hi tech suspension options. Manufactured from high grade DOM tubing.
14.07.2003 at 01:58 #192720Þetta finnst mér merkilegt, einhver sem kannast við þetta?
Kv.
Benni
A736
12.07.2003 at 14:12 #474768Hvað er annars að frétta af þér BÞV ertu kominn með rétt hlutföll og framlás, eru einhverjar pælingar með skriðgír?
Hjá okkur Toyota köllunum er það helst að frétta að framlás er til í dag og er verið að vinna í skriðgír og er stefnan að hann verði til í Ágúst/Sept. hlutföll verða til í haust eins og áður hefur komið fram.
Svo bíð ég náttúrlega eftir 44" köntum svo ég geti glatt Hlyn S. En það er hans draumur að sjá þennan bíl á 44"
og Hlynur reindu ekki að segja að ég sé að ljúga.Útlitið með stóru kantana er reindar dökt og að mér er sagt engin sérstök áform um að framleiða þá þannig að ég þarf hugsanlega eð verða mér út um plankastrekjara í byko og fara í þá sjálfur…
Kv.
Benni
A736
12.07.2003 at 13:58 #474766Sælir.
Já vissulega er það hækt BÞV.
Nýr GX Landcruser kostar ca 4.9m með skriðgír.
Líka er hækt að fá LX 120 með 38" breitingu framlás og skriðgír á ca 5.9m og er það mjög álítlegur pakki!
Það þarf ekki endilega að velja dýrustu típuna endilega!
Kv
Benni
A736
11.07.2003 at 18:55 #474762Haha… þessir bílar eru mjög og þá meina ég MJÖG ólíkir!
ég kannast aðeins við þennan 90 bíl og er hann með öllu er hugurinn girnist og rúmlega það allt frá skriðgír og niður í smá vinnuljós og allt þess á milli og verður nýr eigandi af honum ekki svikin!Kv.
Benni
07.07.2003 at 19:49 #474652Nógu marga… ég á bara einn jeppa og nokkra sliddara.
LANDCRUSER 120 er nátúran og dýrðin að eilífu AMEN!
Kv.
Benni
07.07.2003 at 16:56 #474716Allir að vera stiltir, ég hef nú littla trú á að Lúther hafi nú meint þetta svona þó hann sé prakkari…
[img:2kv0ui8z]http://skins.hotbar.com/skins/mailskins/img/Fighti/Fighting_Sports_Fight_prv.gif[/img:2kv0ui8z]
Kv.
Benni
07.07.2003 at 01:25 #474684Sæll
Þú færð þér lítin loft tjakk.
Veit ekki allveg hvernig menn hafa komið honum fyrir en eflaust er einhver þarna úti sem veit það.
Kv
06.07.2003 at 16:37 #471842Ja, ég hef alltaf sagt það að vera á of léttum bíl gæti líka verið galli. Ég held að við þurfum ákveðna þyngd altaf til að fá réttan ballans í floti og grip þ.e. á léttum bíl í 3PSI þá eru dekkin ekki að fletjast nægilega og oft hefur maður séð slíka bíla, þ.e. létta bíla, í mesta basli upp erfiðar brekkur og o.s.frv. Er þá ekki málið að þeir eru ekki að ná að pressa loftið nægilega mikið úr snjónum og ná þar af leiðandi ekki í jafn massíft grip?
Varðandi bíla sem eru 1900 eða 2400kg tilbúnir í ferð þá held ég að sá þyngri sé í raun betri þegar á heildina er litið. Hann flýtur eflaust ekki jafn vel í sumum tilfellum og þarf að fara jafnvel aðeins hægar yfir af og til en er að sama skapi að ná í massífara grip og þá að drífa betur þó hann fari hægar yfir í raun og veru.
Hér er ég að miða við Dobblara og Barbí sem ég hef átt og eflaust eru ekki allir sammála mér hér og er það bara gott því að ég er bara ekki alveg viss um að þetta sé endilega svona. Þetta er bara mín tilfinning eftir að hafa ekið þeim báðum. Hvað heldur þú? Hefur þú samanburð sem þú getur deilt með okkur?Kv.
Benni
A736PS.
Ég held líka að þegar þú ert kominn yfir 2500 kg á 38" þá ertu farinn yfir strikið, miðað er við Radial mödder.
06.07.2003 at 01:23 #471836Nei það þarf ekki endilega að vera ef annar bíllin er nánast tómur og án olíu meðan hinn er tilbúinn í ferð þá finnst mér 300-400 kg bara nokkuð eðlileg tala og reindar bara vel sloppið held ég.
Kv
Benni
A736
05.07.2003 at 15:52 #471828Var að vikta LC120 dolluna okkar og á 39,5 trexus fullur af olíu (90 lítrar held ég) tjakkur, verkfæri, nesti, grill, 2 gaskútar, Fatnaður fyrir 2, og ein klósettrúlla…
sem sagt allt sem þarf með í 3ja daga vetrarferð.2.390 kg þetta er án okum. og farþega.
Kv.
Benni
A736
05.07.2003 at 00:00 #474646Blessaður, Lúther og hinir náttúrlega líka.
Nei, nei, það á ekkert að fikta við "Drauminn" LC120. Þar þarf akkúrat engu að breyta, ég er að spá í Toy DC sem ég á líka hann er reyndar með lolo gír sem virkar ágætlega en ef farið er í breytingu á annað borð er þá ekki gott að líta á málið frá öllum hliðum eða kanski heldur öllum brekkum… Hann er ekkert mjög vingjarnlegur á þessum fjöðrum að framan skal ég segja þér :/ (4-link að aftan).
Ég held að þú vitir alveg hvað ég er að tala um.Annars varðandi lolo gír í 120 Cruser þá erum við Freysi og Ægir að vinna í því á fullu og er stefnan tekinn á 4:1 gír og vonandi verður hann til og kominn í fyrir ferðina hjá okkur í lok ágúst? "gamli" LC90 var með 2.7 gír og hann var mjög góður fyrir 38" en á nýja LC120 er allt miðað við 44" eins og þú kanski veist.
Kv.
Brekkubaninn
04.07.2003 at 18:38 #474642Sælir strákar og þakkir fyrir viðbrögðin!
Þegar ég var að spá í að hafa púða á framan var ég eiginlega að hugsa um erfiðar brekkur og þá að geta látið hann fara á trínið og lyft að sama skapi upp að aftan eða í stuttu máli færa meiri þunga yfir á framhjól sem er jú mikill kostur vænti ég þegar erfiðar langar brekkur eru framundan.
Í 120 Cruserinum hef ég aðeins verið að fikta í þessu þ.e. lyfta honum að aftan á loftpúðunum og þó að sé ekki nema einhverjir örfáir sentimetrar sem hann fer upp að aftan þá finn ég klárlegan num á að hann er auðveldari upp brekkur grefur sig síður niður að aftan það er þó engin ósköp sem munar, rétt að maður finni það.
Kv.
Benni
A736
02.07.2003 at 18:00 #192698Góðan daginn, drengir.
Nú er ég að spá í að taka fjaðrir undan (framan) 91′ DC og setja þar betri fjöðrunarbúnað og datt mér í hug 4-link eða jafnvel Landcruser stífur og nota með því gormar eða jafnvel loftpúða?
Hvað segið þið, sem betur til þekkið, hvaða lausn er best? Hversu mikið mál er þetta og hver er bestur í slíkt verk?
Kv.
Benni
A-736
-
AuthorReplies