Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.09.2003 at 04:12 #475976
Sæll Agnar.
Sláðu á til Freysa í AT, hann er með þetta allt á hreinu og verður eflaust bara glaður ef hann getur hjálpað þér.
Síminn hjá honum er 693-3022. Þú þarf alltaf að fá nýja tölvu hjá þeim þannig að það er eflaust best að leita til þeirra í AT strags.Kv.
Benni
21.08.2003 at 02:53 #475728Sæll Dóri.
Ég setti einn fyrir túrbínu og annan eftir þ.e við soggrein.
Varðandi oliuverkið þá var ég aðeins að ýkja með reykin þótt ótrúleg sé þá hefur Pattin minn alldrei blásið svörtum reyk og er það líklega vegna þess að ekkert er búið að fikta í olíuverkinu það er allveg óhreift eflaust er hækt að fá meiri kraft með því að breita því ég bara kann það ekki á þessum bíl þ.e hef ekki hugmynd hvar helv…skrúfan er var mikið búinn að leita af henni einhverntíman og fann hana ekki þetta er Bosch verk og ef einhver veit hvar skrúfan góða er þá má hann allveg deila því með mér og helst senda mynd á b@islandia.is.
Varðandi bústið á túrbínu þá er ég með glæ nýja túrbínu og læt hana blása í 10pci það má fara með hana í 14pci en það gæti verið varasamt spurning hvort þurfi ekki að auka við olíugjöf áður svo maður bræði ekki stimplana? ég held nefnilega að þessi 3.3 vél eigi heilmikið inni því þetta er hugsanlega lang sterkasta og jafnframt traustasta vél sem hefur verið boðinn í Patrol og jafnvel jeppum yfir höfuð fyrr og síðar.
Seint verður hún þó talin til þeirra aflmeiri þó hún sé ekki alslæm.Kv.
Benni
20.08.2003 at 20:34 #475722Sæll Óttar.
Ég setti 2 stk. fyrir og eftir túrbínu.
Kv.
Benni
20.08.2003 at 03:44 #192810Sælir félagar.
Það var þarna um daginn að einhverjir voru að velta fyrir sér Hiclone og einhverjir voru að miðla sinni reinslu af þessu apparati og ættla ég að bætast hér með í þann hóp.
Ég er búinn að setja þetta í Patrol 3.3 Tdi og Doblara 2.4 Tdi og er niðurstaða þessi eftir að hafa ekið upp ákveðna brekku og mælt hraða með GPS:
Patrol 3.3 Tdi 44″
Án Hiclone Km 66,2
Með Hiclone Km 71,0Toyota Dc 2.4 Tdi 38″
Án Hiclone Km 47,2
Með Hiclone Km 56,1Eknar voru 4 ferðir með og án og er þetta meðaltal úr þeim.
Annað er þetta varðar:
Ég tók eftir því að vélarhljóð var þýðara og einnig fór afganshiti niður, get þó ekki staðfest neinar tölur hér.Mengun úr Patrol minkaði mjög mikið núna bara sést ekki reikur úr honum og er ég enn að venjast því og gengur það svona lala, maður þekkir ekki Patról öðruvísi enn á svörtum skýja bólstrum.
Mín skoðun er sú að á eldri bílum virkar þetta pottþétt enn þarf að prufa frekar á þeim nýrri t.d þá fór ég með þeim Hiclone mönnum í dag er verið var að prufa Toyota LC90 1998 módel án millikælis og var ekki að sjá þetta virka þar svo hef ég einnig fréttir frá öðrum eigendum af nýjum bílum sem láta vel af þessu og það er að virka t.d var ég inn á Toyota í dag að bögga menn þar eins og mér einum er lagið þá sögðu mér þar menn á verkstæði að þetta hefði verið sett í mjög nýlegan Toyota
Yaris og datt eiðslan á honum niður um tæpa 2 lítra á langkeirslu sem mér þykir mjög merkilegt á svona smá pöddu sem er ekki að brenna mörgum lítrum fyrir enn þetta segir okkur líka það að þetta getur svín virkað í ótrúlegust tækjum og þeir sem hafa áhuga á þessu ættu bara að prufa og notfæra sér 30 daga skilarétt sem seljandin bíður ef þetta er ekki að virka.Ég er mjög sáttur og ættla að nota þetta.
Kv.
Benni
12.08.2003 at 19:35 #475400Nei engin nöfn nema það sé jákvætt, mín regla.
Kanski er þetta eitthvað eistakt tilfelli hjá viðkomandi og óþarfi að vera að skíta út einhvern á slíku.
Við gerum nefnilega allir mistök stundum, líka ég.
Kv.
Benni
12.08.2003 at 18:52 #475440Sæll félagi.
Ég er ný búinn að vera í Turbo pælingum og veseni og það sem ég gerði var mjög einfalt, verslaði bara einn Turbo mælir, það er mjög einfalt að koma þeim fyrir.
Ég setti minn þ.e slönguna sem fylgir mælinum bara á eitt rörið sem kemur inn á greinina þannig að ég þurfti ekki að gera gat á hana sjálfa.
Svona mælir með öllu kostar ca 5500-6500 kr.
Kv.
Benni
12.08.2003 at 04:15 #475396Sælir.
Það var Turbo kallin sem slepti því að stilla Turbínuna og þess vegna virkaði hún ekkert.
Skrúfan var svolítið stíf þannig að hann hefur bara ákveðið að sleppa þessu án þess að segja frá því, þokkalegur.
Patti er semsagt kominn á lappir hress og kátur og malar eins og köttur tilbúinn í slaginn næsta vetur.
Kv.
BenniPS.
Hann er enn til sölu ef einhverjum vantar allvöru 44" snjótrukk. Núna er hann kominn með glæ nýja Turbínu og þræl vinnur ( án þess að reykja!!! )Hlynur S!
Mér finnst að þú eigir að kaupa hann og fá þér alvöru Patrol sem drífur, þá kanski fækkar myndunum af þér föstum í sköflum hér þar og allstaðar, engar afsakanir með fyrsti bíll þetta og fyrsti bíll hitt… og hvar eru dekkin sem þú ættlaðir að senda mér, vonandi ertu ekki á leiðinni með tuðrurnar sjálfur á þínum Patrol þær gagnast mér nefnilega ekkert eftir áramót ef þú verður kominn þá, eflaust ekki fyrr…
10.08.2003 at 13:54 #475392Sælir.
Kannaði allar lagnir og allt í lagi með þær.
Getur verið að blessaður Turbokallinn hafi gleymt að stilla Turbínuna? þetta er á 3.3 Patrol og ég veit að hjá félaga mínum einum er pinninn á Turbínunni skrúfaður í botn meðan ca 8-10mm eru eftir á þessari sem ég er með. Ég get heyrt smá væl í Turbínu þegar gefið er inn í kyrrstöðu en það er mjög lítið og þegar ekið er þá verð ég ekki var við neitt væl frá henni sem er náttúrulega óeðlilegt. Þannig að ég er farinn að hallast á beinlínis að kallinn hafi gleymt að stilla hana og hún sé bara ekki að blása neitt eða því sem næst (nú væri gott að vera með "búst" mælir).
Allar hugmyndir vel þegnar.
Verð í skúrnum í dag.
Kv.
Benni
896 6001.
10.08.2003 at 00:53 #192781Sælir drengir.
Það sem gerðist.
Vélin misti afl og út kom mikill svartur reykur semsagt túrbínan hrundi.Nú er ég loksins búinn að fá hana til baka frá Turbínu fyritæki úr borginni og á allt að vera nýtt nema öxull og leguhús, semsagt hún á að vera eins og ný og kostaði þessi viðgerð 58.673,- sem ég svo sem græt ekkert yfir en vandamálið er að dollan er nákvæmlega eins þ.e mikill svartur reikur, ekkert afl og ekki virðist túrbínan virka neitt.
Einhverjar hugmyndir hvað getur verið að?
Kv.
Benni
08.08.2003 at 18:04 #475364Sælir, drengir.
Því ekki að reyna að koma fyrir eldri 7.3 Turbo vélinni.
Hún er sögð miklu áræðanlegri og er fín í gang í kulda það vill svo vel til að ég á eina svona vél og er aflið í henni mjög gott, alla vegana þeytir hún tæplega 4 tonna Liner vel áfram og eyðir ekki svo óskaplega, ekki miðað við tæp 300hö og þyngd á dollunni á 44" Svamper.
Annar kostur er að reyna að komast yfir 6.6 Duramax. Ég hefði haldið að það sé það allra besta sem hægt er að fá undir húddið, þó það væri ekki nema bara út af Allison skiptingunni sem er algert meistarastykki. Ég hef trú á að Duramaxinn sé miklu bæði sterkari og endingabetri en 6.0 Powerstroke en þeir lögðu talsvert meiri vinnu í að hanna hana heldur en 6.0 með það í huga að búa til vél sem væri viðhaldsfrí og entist að einhverju viti svo er líka hægt að endurforrita tölvuna á mjög einfaldan hátt í 6.6 og þá ertu kominn með 400hö skrímsli undir húddið og það góða við þessa breytingu á tölvu 6.6 er að þetta fer ekki illa með vélina eins og hinn dæmigerði tölvukubbur gerir og eyðir hún t.d. mun minna eftir endurforritun.
gaman að pæla…
Kv.
Benni
05.08.2003 at 01:32 #475202Með því að lengja þessar elskur ertu að fá betri fjöðrun og einnig eru þeir mun duglegri að príla upp erfiðar brekkur. Hvað er skemmtilegra en að vera á undan félaganum upp og stilla sér þar upp með video cameruna og mynda þegar hann er að rembast við að komast upp og svo loksins þegar hann nær því ef hann nær því að skella því beint í andlitið á honum: "MIKIÐ VAR!" Nei, nei, maður gerir náttúrlega ekki svona en já, betri fjöðrun og meiri drifgeta.
Ókostur er alla vegana einn sem ég veit um það er þegar verið er að príla upp á t.d. árbakka þá geta þeir farið á kviðinn en það er allt í lagi þú biður bara félagann afsökunar á þessu með video cameruna og því sem þú hreyttir í hann og hann kippir í þig…
Kv.
Benni
05.08.2003 at 01:16 #475200Nei hann er ekki þar, meila mynd til þín.
Þessi sem þú sást er í eigu Gísla Ólafs, allveg þræl magnaður bíll með 3L vél og öllu, hann er öruglega ekki til sölu?
Minn er eins og strætó, hann er svo langur og er rauður.
Kv.
Benni
05.08.2003 at 01:08 #475268Já, þetta með þjónustuna, hún getur nefnilega skipt mann ótrúlega miklu máli stundum.
Ég get nefnt nokkra aðila hér sem eiga hrós skilið!
Aron í Jeppaþjónustu Arons er alveg hreint ótrúlega liðlegur náungi ef mikið liggur við og ekki skemmir heldur að hann veit lika hvað hann er að gera.
Mín reynsla af Toyota er frábær, ég bara verð að segja það að geta átt menn eins og Freysa og fleiri að þegar mikið liggur við getur verið ómetanlegt og svo er mín reynsla af þeim í ArticTrucks frábær í einu og öllu.
Þeir hjá Toyota á Akureyri eru mjög liðlegir ef þarf að koma dollunni inn þá hefur maður nánast geta gengið beint inn, alltaf finna þeir tíma strax og bjarga manni.
Nafni minn Benni á Akureyri er einnig mjög góður og góðir viðgerðarkallar þar á þeim bæ sem gott er að eiga að.
Verkstæði Jón Gunnars á Akureyri er líka mjög gott.Þetta eru þeir sem ég hef þurft að leita til oftar en einu sinni og hafa aldrei brugðist!
Jæja, þetta er nóg af bulli, KEA er best…Benni
Það GOTT að eiga góða að!
31.07.2003 at 16:01 #475194Sæll Bjarki.
Ég á mjög góðan DC handa þér!
Búið að lengja hjólabil um 47cm með Skriðgír og allar græjur hann er annars með:5:29 (að sjálfsögðu)
100% Læsing að fram/aftan.
Er á 38" og ekkert mál að setja 44" undir.
Skriðgír.
Upptekin vél 2.4Tdi sem vinnur mjög vel! ( boddy ekið 230þ)
Upptekin kassi.
Alltaf í viðhaldi hjá Toyota , ölla sagan til á bakvið hann!
Leður klæddur að innan.
Aukatankur samtals tæpir 300 lítrar.
Loftdæla ásamt safnkút.
Kastarar.
4link fjöðrun að aftan.
Og fl.og fl.
Semsagt allvöru bíll sem er til beint á fjöll.Benni
461 4075 / 896 6001
29.07.2003 at 18:34 #475114Sæll félagi Ofsi.
já ég tek undir það, það verður spennandi að fylgjast með því ég er ekki viss um að Vestari Jökulsá sé mjög spennandi núna án þess að vita það fyrir víst.
Þú lofar okkur að fylgjast með ef þú færð fréttir.
Kv.
Benni
29.07.2003 at 16:02 #475076Ójá þú mátt það.
Það er vegna þess að það eru svo margir í familíunni sem stunda þetta sport og hafa hlutirnir æxlast á þann veg að ég hef borið stóran hluta af kostnaði sem ég ekki tími lengur og er þess vegna að selja þatta "umframdót"
Kv.
Benni
29.07.2003 at 15:37 #475110Var að heira í Stefáni og Co og eru þaug nú á leið niður Skagafjörð og lentu ekki í neinum vandræðum með óbr.jeppan sem með þeim var, þarna er ekkert mál að fara um eins og einhverstaðar hefur komið fram áður…
Kv.
Benni
28.07.2003 at 18:17 #475072Þetta er fullorðin fjallabíll með öllu sem til þarf og er sannarlega góður kostur!
Einnig var Palli að auglýsa Eyrik til sölu ef þú villt bensíntitt hann er líka með low gír.
Svo á ég líka 2 helv… góða handa þér fyrir sangjarnan pening 44"DC með low gír og 44" Patta 1986 model, mikill höfðingi.
Kv.
Benni
461 4075
28.07.2003 at 17:46 #475098Þessar ár sem verið er að vitna í verða ekki á þinni leið. Ég veit ekki alveg af hverju menn eru að setja þessar slóðir inn sem þeir eru að vitna í en mjög mikið er til í því sem þeir segja. Það á bara ekki við í þessu tilfelli að öðru leiti en að vera bara smá fróðleiks innskot um aðra leið sem einnig er til en er ekki beint fyrir minni jeppa og reyndar mjög varasamar stundum.
Notaðu þetta sem viðmiðun, þetta leiðir þig áfram rétta leið frá Skagafirði niður í Eyjafjörð.
65.18.094N
19.04.301W (Vesturdalur)65.01.840N
18.19.119W (Norðan við Laugafell)65.03.385N (Nýjabæjarafrétt niður í Eyjafjarðardal)
18.15.251WMundu að þetta eru einungis punktar til viðmiðunnar og eru skekkjumörk einhver.
Kv.
Benni
28.07.2003 at 14:48 #475092Sæll Stefán.
Þú ættir ekki að lenda í neinum vandræðum á þessari leið.
Var upp í Laugafelli í gær fór yfir í Grána og Bergland í trakk leiðangur.
Kv.
BenniPS.
Að ég sé manna fróðastur um þessi mál hér norðan heiða er kanski ekki allveg rétt, ég kanski þekki svolítið til en það eru margir sem þekkja þessar leiðir jafn vel og jafnvel betur en ég hér fyrir norðan.
-
AuthorReplies