Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.10.2003 at 02:56 #477568
Bara svo það sé strags á hreinu að þá hef ég ekkert vit á þessu suðudrasli en reini að bjarga mér einns og hver annar fyrir sem minnstan pening náttúrlega.
Þannig er nú það að ég verslaði vél af Olís sem heitir Telwin 170/1 og hún kostaði einhverstaða á milli 40-50þ sem sagt mjög ódýr vél.
Nú er það hitt og annað hvort þessi vél sé boðleg allvöru suðuköllum? það getur kanski einhver frætt mig og aðra um það. Hingað til hefur hún virkað vel sem húsgagn í skúrnum og hef ég ekki þurft mikið á henni að halda og reindar er það svo vegna vanþekkingar á suðumálum að ef ég þarf að sjóða eitthvað sem þarf að vera skothelt hef ég alltaf farið á verkstæði og látið fagmenn um það.
"Pontið" er það að hér er mjög ódýr vél en spurning hvort hún sé nógu boðleg?
Kv.
Benni[img:15gf6oyo]http://www.telwin.com/webtelwin/telwinimg.nsf/TelWinImg/P00791/$FILE/P00791.jpg?OpenElement[/img:15gf6oyo]
04.10.2003 at 19:03 #477312Hann ættlar bara ekkert að skrifa kallin?
Jæja en það sem er í gangi í stuttu máli sagt að ég held er að það eru einhverjar tilraunir í gangi og erum við að ná WAAS signali af og til frá hnetti sem er mjög sunnarlega. WAAS er víst ekki bara tengt við jarðstöðvar heldur líka í lofti (gervihnettir).
Kv.
Benni
03.10.2003 at 16:10 #477310Hafði samband við Rikka GPS kall og ættlar hann að koma með smá pistil okkur til fróðleiks hvað er í gangi.
Kv.
Benni
03.10.2003 at 13:14 #477306Sæll Steini.
Ég er að nota Garmin 182c tæki og er með Garmin svepp á þakinu. Varðandi loftnet þá held ég að þau skipti ekki máli, aðeins það að tækin styðji þennan möguleika. Ég held að flest nýrri tæki geri það en það þarf örugglega að virkja þennan möguleika í þeim.
Kv.
Benni
02.10.2003 at 12:53 #477316Sæll Haukur.
Fundir hér á Akureyri eru alltaf fyrsta Þriðjudag í hverjum mánuði, næst fundur er semsagt næsta þriðjudag og eru þeir alltaf í haldnir í húnsæðinu hjá Súlum.
Vertu velkominn!
Kv.
Benni
461 4075
02.10.2003 at 02:31 #192941Sælir.
Ég tók eftir því núna um dagin að WAAS war að detta inn á tækið hjá mér og nákvæmnin fór í 2 metra, er þetta eitthvað sem þið hafið verið að taka eftir?
Kv.
Benni
29.09.2003 at 19:52 #477034Sæll.
Ég er nú ekki manna fróðastur um Navtrek en ég veit fyrir víst að það er ekkert mál ef þú er með MapSource.
Ef þú ert með það sláðu þá bara á og ég skal aðstoða þig ef engin önnur betri lausn kemur er varðar Navtrek?
Kv.
Benni
461 4075
23.09.2003 at 19:39 #476794Sæl Soffía.
Þessar sprungur sem sjást á einni myndinni gefur ekki rétta mynd af jöklinum. Þegar farið er upp hjá Snæfelli þá var farið upp of vestarlega þar sem þessar sprungur eru og auðvitað þurftu sumir aðeins að máta þær. Sú leið sem við fórum er hinsvegar talsvert austar og eru engar sprungur þar. Þetta með snjó á jöklinum þá getur það líka verið mjög hættulegt, ef smá snjó hula felur þær. Á þessum árstíma er ekki von á miklum snjó og getur þá verið betra að ekki hafi snjóað því þá eru meiri líkur á að þú sjáir þær og getir þar að leiðandi forðast þær betur. Eins og fram hefur komið fram hjá bæði mér og fleirum sem hafa verið að ferðast á jöklinum þá er hann með besta móti núna. En þetta er alltaf álita mál og misjafnar skoðanir sem menn/konur hafa bara eins og gengur og gerist.
Kv.
Benni
23.09.2003 at 11:45 #476788Hehe, sæl Soffía.
Elskan mín, láttu þér ekki detta til hugar að svona stubbur eins og ég myndi voga sér að láta svoleiðis út úr sér fara, þ.e. að kalla alvöru dömu eins og þig kellingu. Það á ekki við þig frekar en aðrar alvöru konur/dömur. Ég er svo heppinn að eiga alvöru jeppakonu nefnilega sjálfur og var það hún sem kallaði ferðanefndina kellingar. Ég fékk þetta bara lánað hjá henni. Annars bara svo það misskiljist ekki þá hefur þessi blessaða nefnd okkar staðið sig vel í gegnum árin og eru þar mjög fínir einstaklingar í henni. Það er bara þannig að þegar menn svara eins og hér að ofan og láta mig líta út eins og einhvern hálvita þá verða menn náttúrlega að svara fyrir sig stundum, ekki satt? Það er ekki líkt mér að skrifa á þessum nótum og þykir mér það miður í sannleika sagt en því var ekki hjá komist í þetta sinn.
Kv.
Benni
23.09.2003 at 01:20 #476784Ææææ, þarna hef ég greinilega snert viðkvæma strengi hjá einhverjum.
Fyrir hádegismat, jú, það er nánast rétt hjá þér. Við komum heim um kl.7:30 á mánudagsmorgun og taktu nú eftir, Tómas, það er vegna þess að þegar við vorum löngu komin niður af jökli á leið í Kárahnjúka fór einn af bílunum útaf og var við það að velta. Þarna eyddum við mörgum klukkutímum við að ná honum upp og er það ástæða fyrir því að við komum seint heim. Ég ráðlegg þér eindregið að kynna þér fyrst málin áður en þú mundar byssuna í framtíðinni, Tómas, því svona púðurskot virka ekki.
Einnig þér til fróðleiks.
Bæði Stöð 2 og Ruv töluðu um það í veðurspá á fimmtudagskvöldi, degi fyrir fyrirhugaða ferð að sú lægð sem von var á myndi fara framhjá landinu sem og varð. Einnig mátti sjá á veðurkorti Halo allt um veðrið og leit það bara vel út fyrir þessa helgi og staðreyndin er sú að veðrið var alveg frábært alla helgina á jöklinum. Á laugardag var smá GOLA, ekki rok heldur smá GOLA. Um kveldið snjóaði á okkur og var það alveg hræðileg tilfinning að aka um í nýföllnum snjó. Á sunnudag var mjög bjart og logn, við reyndar þurftum ekki að nota sólgleraugun eins og daginn áður.Færið á jöklinum var eins og best verður á kosið og var alveg frábært.
Ég skil vel, Tómas, viðbrögð þín. Þið voruð búnir að dæma þessa ferð af með löngum fyrirvara eða á þriðjudegi eftir því sem mér er sagt og standa menn á þeirri meiningu að það sé vegna áhugaleysis hjá ferðanefnd. Útskýrðu til dæmis eitt fyrir mér og hinum sem eru búnir að vera að bauna réttilega á ykkur. Af hverju var þessi ferð ekki sett í skoðun aftur eftir 2 eða 3 vikur. Þú gerir þér greinilega ekki grein fyrir að þarna voru fullt af mönnum sem voru búnir að bíða lengi eftir þessari ferð. Það er líka þannig, Tómas, að þarna er stór hópur eins og þú bendir réttilega á og svei þér að líta á þá sem einhverja ósjálfbjarga aumingja því þarna eru menn sem er margir búnir að vera að ferðast frá því að menn eins og ég voru í jeppaleik í sandkassa og þeim sem ekki hefðu litist á blikuna hefðu bara getað verið heima.
Þetta með veðurspána, datt ég einhvers staðar svona hræðilega að höfuðið á mér er svona illilega skaddað, er íslenska veðurspáin nú orðin svona rosalega rétt að ef spáð er vindi á eiga bara allir að vera heima?
Ég er svo hissa, Tómas, maður með jafn mikla reynslu og þú, þú er einn af okkar bestu jeppaköllum hér fyrir norðan hvar í fjandanum náðir þú þér í öll þessi KVENNHORMÓN? Vinsamlegast skilaðu þeim því þau fara þér ekki vel.
Kveðja
BenniPS.
Skammaðu mig bara á morgun…
22.09.2003 at 17:19 #192897Nokkrar myndir hafa verið settar inn á heimasíðu Norðlendinga. Þar eru myndir frá Vatnajökli en farin var ferð sem hepnaðist virkilega vel hvað varðar veður og færð
þann 12-14 Sept eða sömu helgi og norðan klúbburinn frestaði sömu ferð vegna veðurs…KELLINGAR!Fleiri myndir koma í kvöld vonandi af sprungu ævintýri og fl. En það var mjög títt að það heyrðist í talstöðinni: „Stákar getið þið aðeins hjálpað mér!“ og alltaf var það sami aðilinn sem var alltaf að koma sér í vandræði og hver haldið þið nú að það hafi verið? …hann er á hvítum hilux… Ég sagði aldrei að fyrsti stafurinn væir Lúther.
Kv.
Benni
18.09.2003 at 12:58 #476534Sælir.
"Reiknisdæmið er einfalt í grófum dráttum"
Nei þetta er ekki svona einfalt.
Það sem þú ert lika að fá er minni afganshiti sem lengir endingu á vél og ferð mun betur með vélina hjá þér, þetta er mjög mikilvækt atriði sem oft vill gleymast þ.e afganshiti. Það er þó ekki sjálfgefið að Hiclone lækki afganshitan í öllum vélum þetta er eitthvað sem menn verða bara að prufa hver fyrir sig og þá vissulega þurfa menn að vera með afgansmæli til að sjá muninn.
Kv.
BenniPS.
Fannst þér gangur í vélinni eitthvað breytast við hiclone, vera mýkri?
16.09.2003 at 14:22 #476420Rétt það sem Skúli segir!
Við fórum upp á Grímsfjall og þar er mjög varasamt og vækt til orða tekið. Þar eru mjög stórar sprungur og snérum við burtu frá fjallinu þar sem við vorum þar í mirkri og ekki mikklu skyggni. 44" Blaser S10 misti afturendan niður í eina sprungu þannig að frammendinn stóð nánast beint upp í loft og ekki til að bæta það að önnur sprunga samskonar í stærð var beinnt fyrir framan hann og var hann inni lokaður á smá bletti eða rétt að hækt var að snúa honum og taka það á ferðinni til baka og hafði hann það af í bæði skiptin að bjarga sé úr þessari klípu, mér er sagt að menn hafi misst andan gersamlega á meðan þessu stóð yfir, þessar sprungur sáust ekki þar sem smá snjó hula faldi þær.
Annars var jökulinn mjög góður þ.e sú leið sem við fórum fengum frábært veður á Laugardag og Sunnudag smá gjóla svo snjóaði talsvert á Laug. kvöld og smá rok um nóttina sem gengið var yfir um morgun þanig að ekið var í allveg frábæru færi og túrinn heppnaðist mjög vel fyrir utan smá bilannir, gat á olíuleiðslu, pakkdós í skiptingu og þreitt túrbína etc.
Færið upp á jökulin frá Snæfelli er bara þjóðvegur 1 (mjög gott)en ef farið er þessa venjuleg leið hreinnt helvíti þar allt sprungið í tætlur.
Lúther og Stebbi voru með okkur í för og stóðu sig mjög vel. Jæja Luther og Stebbi hvernig var svo að ferðast með norðan mönnum og og konum, þið bætið við ferðasöguna.
Kv.
Benni
16.09.2003 at 02:25 #476416Sæll.
Þetta eru nokkrir punktar af seinni hlutanum og niður í Snæfell sem þú ferð væntanlega í og þaðan í Kárahnjúka.
Það er ekki til neins að ættla að stitta sér leið niður af jökli niður í snæfell þá rambar þú bara inn á sprungusvæði.
Meilaðu bara á mig og ég skal senda þér track frá því um helgina.
Þú þarft að vera mjög varkár á síðustu 6
1. N64.47269 W16.55159
2. N64.53927 W15.88649
3. N64.56757 W15.82838
4. N64.60946 W15.71948
5. N64.63223 W15.72229
6. N64.62974 W15.77965
7. N64.63139 W15.78398
8. N64.63156 W15.78358
9. N64.63426 W15.78034
10.N64.63980 W15.76555
11.N64.65117 W15.74478Kv.
Benni
08.09.2003 at 02:34 #476140Sæll Glanni.
Ég er ekki sammála því að Patrol felgur séu bestar.
Ég vill meina að gömlu Landcruser felgurnar séu betri og þú ættir að leita þér að svoleiðis, þær standa málið mjög vel, ég hef mjög góða reynslu af þeim bæði undir Barbí og Patrol, á 38" og 44", alldrei misst dekk af 7-9-13 bank bank…
Ég fékk mínar hjá Magga felgukalli.
Þú þarft kanski að láta renna gatið aðeins í þeim, gæti þó sloppið? Ég er með Dana hásingar undir patta hjá mér þannig að það slapp mjög vel hjá mér.
04.09.2003 at 18:51 #476012Sæll Siggi.
Nei það eru allt önnur dekk og mjög ólík þessum sem ég er með.
Ég er að nota núna 15×12,5 felgu það væri eflaust mikklu betra að vera með þessi dekk á 14"-16"br. Felgu.Þessi eru ættuð úr GVS aða hvað það nú heitir dekkjaverkstæðið þarna rétt hjá Coke en þeir eru fínir strákarnir þar og hafa séð um mín dekkjamál ásamt Hinriki í Heklu sem ég hef átt fín samskipi við.
Kv
BenniPS í albúminu mínu getur þú séð þessi dekk á 90 Cruser og náttúrlega betri myndir hjá framleiðandanum Super svamper æi hvað heitir hann nú aftur…Inter eitthvað sorry ég er bara gersamlega straumlaus eftir daginn og úr öllu sambandi þarf greinilega að komast út í skúr og ná mér í smá smurningu á puttana þá kanski hressit ég…
03.09.2003 at 23:46 #476006Sæll Matti.
Ég er með ARB loftdælulásinn er Algrip sá íslenski sem hefur virkað mjög vel í eldri Cruiserum og fleiri gerðum einnig þannig að ég setti hann í 120 bílinn þar sem hann er mjög sterkur og góður, reynslan af honum hingað til í 120 bílinum er mjög góð.
ARB loftdælu valdi ég bara vegna þess að þær eru ekki að klikka.
Hlutföll, eins og er er ég með 4:30 sem er orginal hlutföll en í hann fara 4:88 og var það keypt með pakkanum á sínum tíma, þau koma einhvern tímann með haustinu og verða þá sett í hjá AT.
Kv
Benni
03.09.2003 at 21:17 #475998Lúther!
Þú er bullukollur.
Það eru komin frá GoodYear 40" Radial dekk. Eini "gallinn" er að þau eru bara fyrir 17" felgur ennþá og hef ég svosem ekkert fyrir mér að þau komi fyrir 15". En þau hækka dolluna allavega aðeins upp og minni líkur á að reka hana niður og gata aukatank eða skemma eitthvað annað á grjóti. Almenn drifgeta? Ekkert sem segir okkur að þau verði neitt betri en 38" á 15".
Nú, Trexus er annað dekk sem ég er með undir 120 dollunni og er það 39,5" og er diagonal (ekki radial). Ég er búinn að fara nokkrar ferðir á jökul á þeim og hafa þau komið vel út hingað til. Varðandi almenna keyrslu þá eru þessi dekk mjög góð t.d. finnst mér 120 bíllinn betri á langkeyrslu á þeim en Ground Hawk, ó já, ekkert hopp og bara fín. Gallinn við þau er að þau leita aðeins ef þau lenda í djúpum hjólförum á malbiki í innanbæjarakstri.
Radial dekk er betra fyrir okkur jeppakallana heldur en diagonal.
Hinrik dekkjakarl!
Hvað er að frétta af þessum dekkjum (40" Radial), eru þau ekki að koma? Varst þú ekki búinn að berja þetta í gegn með að fá að flytja þau inn eða ertu enn að hamra á þeim í í útlandinu?Kv.
Benni
01.09.2003 at 22:54 #475990P.S.
Pési, ef þú ert að spá í svona bíl þá skalt þú láta vaða á það, ég er búinn að fara nokkrar ferðir á mínum og það er í stuttu máli frábært frá A-Ö að ferðast á þessum bíl og ég get fullyrt að þessi bíll drífur meira en eldri Barbí, hef góða reynslu þar!
Hér ert þú ekki að taka séns á að kaupa eitthvað sem virkar kannski, kannski ekki. Þessi bíll einfaldlega svínvirkar.
Kv.
Benni
01.09.2003 at 22:48 #475988Eitthvað kannast ég við þennan…
Hann er reyndar með færslu á hásingu, loftlás að framan, einnig eru allar lagnir fyrir GPS, VHF og NMT komnar sem og loft þ.e. dæla, sér dæla (ARB) er fyrir loftlás.
Hann er breyttur fyrir 40" með það í huga að það eru kominn 40" radial dekk á markaðinn og einnig með það í huga að þegar AT kemur með 44" kanta fyrir hann þá er hann nánast klár fyrir 44". Það var klippt meira innan úr á þessum bíl en á venjulegu 38" bílunum, líka með ísingu í huga.
Þannig að hann er bara fullbúinn og bíður bara eftir snjó.
Kv.
BenniP.S.
Þeir sem vilja frekari uppl: 896 6001.
-
AuthorReplies