Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.04.2005 at 09:09 #521244
vélinn er fyrir frama eitt stykki hásingu þannig að ég get alveg sett kellu fyrir aftan afturhásingu ef hún er með eithvað múður ásamt 4 kössum af bjór? erum við þá ekki að jafna út þyngdina.
19.04.2005 at 08:46 #195850Ég var að pæla í með hleðslu aftur í jeppum, menn tala um að setja alltaf það þyngsta fyrir framan afturhásingu og það létta fyrir aftan, er þetta gert til að bíllin fjaðri betur. Mig langar til að vita rökinn fyrir þessu á vísindalegan hátt og þá kannski eins og með gormana.
18.04.2005 at 13:31 #521088ýta á back,virkar það ekki og svo á copy, skrá sig því næst aftur inn og svara þræði með því að paste
14.04.2005 at 14:06 #521156Það er líka til annað orð yfir ballansstöng?
Smá í viðbót, það er er ekki hægt að setja tölustafi í titil ( skrítið? )
14.04.2005 at 14:02 #521154Mér þætti gott að vita hvernig þú ferð að því að ferðast án þess að villast.
Þetta gat ekki verið auðveldara fyrir þig, prufaðu að fara léttu leiðina að þessu og farðu í myndaalbúmið þar sérðu mynd af toy undirvagni og ef vel er skoðað þá sérðu hvað ég er að fara.
Fleiri vísbendingar seinna.
14.04.2005 at 11:51 #195836Sæll Gísli, sá þarna nokkrar myndir frá þér þar sem þú ert að setja loftpúða undir. Mér leikur forvitni á hvort þette sé yfir höfuð að virka hjá þér, ertu búin að láta bílinn misfjaðra? er stöngin ekki að vinda upp á sig frekar mikið, notaðir þú ekki skástífuna, og af hverju þarftu ballansstöng?
13.04.2005 at 20:06 #521100þessi síða er einkar glæsileg að mínu mati þó svo að nokkrir hnökrar séu ennþá að koma í ljós og má formaður vera stoltur af henni og sjálfsögðu að auglýsa hana um allan bæ en þannig fáum við fleiri félaga inn í okkar sértrúarsöfnuð. Sjáum til eftir svo sem mánuð hvort þú ert ekki búin að læra inn á síðuna og allir fídusar klárir, það eru margir nefnilega sem nenna ekki að leggja það á sig að lesa leiðbeiningar ( RFM ) read the focking manual!!!
Annars er það nú ýmislegt sem mér finnst að mætti bæta, t.d. finnst mér óþolandi að sjá ekki þráðinn sem ég er að svara þegar ég er að svara.
09.04.2005 at 08:36 #520722Ég get ekki betur séð en að leitarvélin virki, allavegana hjá mér þegar ég sló upp orð í gömlum þráð sem ég tók þátt í á síðasta ári. Myndaalbúm á ábiggilega eftir að skána annars sakna ég ekkert myndanna minna, á þær allar á diski og get skoðað þær allar. :)Þetta með villumeldingar kemur þegar það er verið að vinna í síðunni, farið bara inn eins og ég kl 0600 þá eru blessaðir castor menn sofnaðir og allt gegur snuðrulaust fyrir sig.
08.04.2005 at 09:54 #520696tjáir eik sig um þessa síðu, það væri gaman að sjá hvað þig langaði til að verði gert til þess að þú verðir ánægður. Hvernig finnst þér gop síðan, þetta er nú allt í vinnslu og er ég personulega mjög ánægður með síðuna þó svo að það séu nokkrir hnökrar á henni en kalda vatnið rennur ennþá hérna í hafnarfirði eins og er. Með leiðinlegar myndir í auglysingunum þá held ég að þær eigi að detta út eftir einhvern ákveðinn tíma eins og allar auglýsingarmyndir.
07.04.2005 at 06:59 #520668þú klikkar á gera ofsa að vin og þá birtist nafn hans hægra megin neðst á síðunni ÞINNI, þar getur þú klikkar á nafnið hans og þá færðu uppl um hann og einnig emailið, þeir sem ekki setja inn emailið inn hjá sér birtast sem ekki vinur að ég held.
06.04.2005 at 20:34 #520554Tor net í Hafnarfirði eiga spotta handa þér
21.03.2005 at 07:35 #519438getur gert þetta fyrir þig. Þeir eru í drangahrauni í hafnarfirði, allir jeppakallar.
14.03.2005 at 08:05 #518192Beint til seturs skálanefndar.
Verður vakt í setrinu um páskana hjá ykkur, ef svo er hvað er í boði, vöflur með rjóma eða hlaðborð.
10.03.2005 at 19:09 #518170Góð hugmynd hjá þeim félugum, fínt að renna þarna upp eftir í kaffi áður en lengra er haldið eða bara gista í heitum skála og rúnta um svæðið með leiðsögn kannski, frétti að þeir verði nokkrir með vagt þarna uppfrá.
10.03.2005 at 16:38 #518534Sjálfur formaður suðurnesjadeildar ekki búin að borga ??? :):):):)ég get sent þér blaðið um leið og ég er búin að fá eitt stykki um bréfalúguna. Hélt reyndar að blaðið ætti að koma út fyrir mánudagsfundi hér í bænum, er ritnefd að klikka á þessu.:)
05.03.2005 at 20:35 #512818Þar sem allt gekk að óskum í dag ( losnuðum við Þröst ) vorum við að spá í að fara aftur á fjöll og ekkert hálfkák í þetta skiptið, 2 til 3 jökla að minnsta kosti!
Kveðja
03.03.2005 at 11:24 #516202Hverjir verða í fararstjórn og hvenær fara þeir af stað, verða þeir til aðstoðar pæju mönnum???. Ætla þeir að skoða leiðir á undan og tékka á sprungum. Verða önnum skilt að lækka niður í sendistyrk á stöðvunum. verður farið yfir einhvað sérstakkt í kvöld ( fimmtudag )verður Ella með í ferðinni, verður gaman á akureyri, verð ég undir stýri í ferðinni. Enn í óvissu
27.02.2005 at 14:30 #517794góðan ferðafélaga. Hann reyndist mér afskaplega vel og verður seint gleymdur. Hann fór með mér í margar góðar ferðir og stóð eins og klettur við hlið mér. Margt höfum við reynt saman og er 1 ferð ógleymanleg en þá var hann hætt kominn í krapa en með þrautsegju og baráttuþreki stóðst hann þá raun með óbilandi seiglu og orku. Við höfum oft gleymt okkur saman í skúrnum einhvað að bralla og gera góða hluti betri. Oft hef ég verið soldið aðgangsharður við hann og látið hann gera hluti sem öðrum blöskrar við en eftir svoleiðis meðferð hefur hann oft verið öfundaður af öðrum og margir spurt hvernig ég hef gert þetta og hvort hann eigi að þola svona lagað, en hann er með þykkan skráp sem kallar ekki allt ömmu sína. Í dag er hann á fjöllum án mín og veit ég ekki hvort við munum ferðast saman aftur, hann fór með minni konu í setrið og er núna í dag á leið upp á vatnajökul. Hann ætlar að stoppa stutt í hrauneyjum og fá sér þar smá orku. Líklega mun ég sjá hann aftur í kvöld en ég held að við munum ekki ferðast saman aftur þar sem hann hefur heillað konuna mína upp úr skónum, verður kannski kaflaskipti í lífi mínu þar sem ég tek til nestið en konan sinnir honum fyrir ferð með ást og alúð. Þín er sárt sakna elsku súper trooper og skemmtu þér vel með konunum í dag því ég er farinn á bílasölur að athuga nýjan ferðafélaga en hann mun aldrei komast nálægt þínum afturstuðara. Beggi og bílskúrsdótið.
26.02.2005 at 22:02 #517786Stelpurnar voru heldur betur í góðum gír í dag, fóru á jökul á mettíma. Ella ofurgella og Soffia á supertrooper voru í spyrnu upp jökul og er niðurstaðan eins og reiknað var með, (patrol fór í save mote)Hittu þær norðanmenn á toppnum sem voru að skoða leiðir og fleira.Þær voru um 40min niður og inn í setur aftur að norðaverðum jökli og flott færi en það var sprunga frekar ofarlega á jöklinum sem runner datt ofaní en ekkert alvarlegt, verður sú sprunga sett í leiðarbók, eins verður trakkið þeirra að ég held líka en þeim leist ekkert á trakkið hans eika. Svartur þetta eru meiri aularnir sem við þekkjum, þeir lögðu af stað frá fjöllum en þurftu að snúa við vegna rauðvínsskorts á leiðinni, ekki kallaðir svampar fyrir ekki neitt:)nú er kvöldvaka að byrja eftir svaka máltíð og verður spáð í heimleið á morgun,kannski kýkt í nautöldu en ræðst af veðri. Ella ætla víst að draga patrol upp á veg í fyrramáli, líkur sækir líkan heim.
26.02.2005 at 13:15 #5177721 jeppi bilaður en verið er að redda því með kvennlegu aðferðinni.
-
AuthorReplies