Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.04.2010 at 12:29 #690138
Jú alveg satt 😉 eina leiðinn sem ég hef fundið til að leisa þennann hvimleiða vanda er að skilja ljósin reglulega eftir á bílnum svo ég þurfi að sníkja start, sem er ekkert góð lausn. Og hitt að setja chevy ofaní húddið, sem er sennilega ekkert betri lausn, en hvað á maður að gera, Þetta er jú Toyota
20.04.2010 at 19:15 #691278stálu þeir dekkjunum undann bílnum?
12.04.2010 at 19:05 #690132Nei sennilega ekki, ég man það bara ekki, þarf bara að athuga það næst þegar ég opna húddið. Þetta er nebbla Toyota skiluru, menn eru oft í vandræðum með að barkinn til að opna húddið festist af notkunarleysi 😉
12.04.2010 at 01:59 #690128ég var eiginlega að fiska eftir því hvort þú kannaðist við þetta vandamál. Fyrir mér virkar þetta eins og þú lýsir, ljósin þarf að kveikja og slökkva nokkrum sinnum ef kallt er, og ef keirt er á malarvegi á meðan spennarnir eru kaldir eða nýbúið að kveikja á þeim slökkva þeir stundum á sér. veit ekki hvort hægt er að tala um að spennarnir hitni, en þetta vandamál virðist hverfa ef ljósin ná að vera kveikt í smá tíma… ég býst við að kaupa af þér kit fyrir haustið 😉
11.04.2010 at 22:39 #690124Benni geturu útskírt f. mér afhverju peac of shit xenon kittið mitt (ebay) dettur út öðru hvoru, oft þegar ég keiri í holu á malarvegi og kveikir oft bara á öðru ljósinu….
kannastu við þetta vesen? er hægt að lækna þetta með einhverjum ráðum öðrum en að kaupa annað xenon kit???
11.04.2010 at 22:32 #690212strákar það þíðir ekkert að vera svona sárir, það trúir enginn svona lygum…
10.04.2010 at 01:20 #689808Ef þið sjáið ekki fegurðina í þessu…. þá eruð þið Kjellingar
03.04.2010 at 02:06 #688942var þarna í dag, þegar ég var kominn niður heirði ég í fréttunum að ekkert ferðaveður væri á hálsinum…. það var þoka, og smá vindur. jújú lítið skyggni en ekkert til að hafa áhyggjur af, fyrir vana fjallamenn, en þarna voru samt óbreyttir bílar, þarna var fólk á fjórhjólum, og krossurum og svo náttúrulega þessir venjulegu göngu garpar. ég bæði skil þessa forræðishyggju eftir að maður sá liðið sem var þarna, en það fer líka rosalega í taugarnar á mer að vera settur í sama flokk og þessir sauðir
19.03.2010 at 10:44 #687480Mig minnir að einhverjir af þessum bílum hafi komið með díselvélum. ertu búinn að prófa google, svo er hitt málið að þetta er allt saman hægt, þetta er bara vinna
26.02.2010 at 19:46 #685206Góður
25.02.2010 at 23:02 #685046já sæællll…. og ertu ekki búinn að kæra?
hvernig eru reglurnar aftur.
Bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega í náttúru Íslands. Heimilt er þó að aka vélknúnum ökutækjum á jöklum svo og snævi þakinni og frosinni jörð svo fremi að ekki skapist hætta á náttúruspjöllum.
mín skoðun,þetta er á gráu svæði, en ég myndi ekki gera stórmál úr þessu
var alveg 100% viss um að reglurnar sögðu á snævi þakinni eða frosinni jörð… en sama þetta er á gráu svæði og ekki vert þess að missa svefn yfir
19.02.2010 at 02:00 #683648[quote="lilli":1yc0zt58]Það fer nú aðallega eftir aðstöðu og kunnáttu. Þetta er allavega ekkert sem maður vill mixa við lágmarksaðstöðu inni í skúr.
Fyrst þarf náttúrulega að strípa hásinguna og svo skera stútana af og fasa vel fyrir suðuna og svo er auðvitað mjög mikilvægt að öllu sé stillt nákvæmlega rétt upp áður en steikt er saman. Bæði varðandi camber og caster (hjólhalli og spindilhalli).Ég myndi ráðleggja þér að láta gera þetta hjá vönum mönnum eins og td. Stál og Stansa.
Ef vel á að vera þyrfti einnig að hjólastilla bílinn bæði fyrir (til að fá rétta mynd af skekkjunni) og eftir til að fá rétta innskeifni og til að tryggja að vel hafi tekist til.Kv. Sigurþór[/quote:1yc0zt58]
já sæll… þú ert ágætur.
það er ekkert stór mál að skera stútana af með venjulegum slípirokk, þú skerð bara suðuna af, lemur þá útúr hásingunni, þrífur hásinguna og stútana vel og lemur þetta aftur saman, en jújú farðu með bílinn í hjólastillingu, eða keiptu þér ódýrann gráðumæli, þú getur svo farið með þetta svona tilbúið á eithvað verkstæði ef þú treystir þér ekki að sjóða þetta saman aftur, en aðalatriðið er að það er sæti á stútnum sem rennur inní hásinguna, þetta eru engin geymvísindi eins og atli segir, bara að byrja og svo er þetta bara vinna.
03.02.2010 at 23:11 #681420passar..
ekkert næstm því
22.01.2010 at 12:45 #678468vandamálið er að á skiftigöflunum eru gormar sem ýta á kúlu sem þrýstir á sæti á stöngunum, þessir gormar slappast og vill þá kassinn detta úr gír, eins og þú ert að lýsa. leitaðu eftir bolta með sexkantshaus, sitthvorum meginn á kassanum.
01.01.2010 at 19:03 #672176Er kerran komin í bæinn?
01.01.2010 at 14:49 #673590Mér fynnst spotti vera maður ársins. Fyrir jákvæða umfjöllun og gífurlega góð og vönduð skrif á vefnum.
En Jón snæland Kemur þar sterkur í 2 sæti svo Simmi og Hlynur snæland koma þar sennilega fast á hæla hans, fyrir að koma hlöðufellinu á kortið hjá okkur. Svo raða menn sér sennilega þar á eftir, Sveinbjörn formaður hefur nú sennilega gert eitt og annað, eins og fjölmargir aðrir, Logi Jólasveinn ásamt Helenu og þorgeir virðast standa vörðinn á bjórkvöldunum okkar. Ekki megum við ekki gleima vefnefndinni.
Og öllum þeim sem hafa barið umhverfisráðuneitið að utan í baráttunni fyrir ferðafrelsinu, held að ætti bara að tilnefna ferðafrelsisnefndina eins og leggur sig, Skúli, Snorri, Óskar…. vá þeir eru svo margir að ég get ekki talið svona hátt, Ég held það sé bara best að tilnefna þessa menn hérna og hvetja þá til áframhaldandi dáða ;=) https://old.f4x4.is/index.php?option=com … Itemid=234
22.12.2009 at 13:13 #672614það væri sennilega gott f. ykkur að grafa upp þráðinn síðann í vor um akkúrat þetta mál, þar gætuð þið lært 1-2 góða punkta…
16.12.2009 at 12:35 #671250og nú hefur þú tekið þátt í sandkassaleiknum, til hamingju
15.12.2009 at 00:23 #671232diskar eru dót.
en nospin virkar þannig að ef annað dekkið snýst hraðar en hitt læsist drifið, nema um leið og kúplað er frá, þá sleppir lásinn um leið. s.s. undir átaki læsist drifið alltaf.
14.12.2009 at 01:03 #671222átti 36" hilux í mörg ár, soðinn að framan og nospin að aftan…. alger f. snilld…..
tók úr annari lokunni þegar ég var ekki að nota frammdrifið og keirði bílinn þannig ef það var hálka, reif svoldið í þegar maður skifti um gíra en ekkert sem skifti máli ef maður vissi af því. setti í báðar lokunar ef hálkan var nógu mikil. en það skifti máli hvora lokuna maður tók úr sambandi, minnir að ég hafi tekið hægri öxulinn út, alltaf jafn ógeðslega gaman þegar maður fór út til að setja í hina lokuna, og menn héldu að ég hefði virkilega komist þetta langt í afturdrifinu, en bottom line, dreif allt og klikkaði aldrei.en diskalás hef líka verið með 1 eða 2 svoleiðis og hefur það í bæði skiptin verið slys…
fyndið samt, helgi og stebbi. ég hef farið með ykkur báðum á fjöll og þið voruð báðir í förunum eftir mig allann tímann ;)… Nei ég get ekki logið svona, helgi greip tækifærið þegar ég stoppaði til að míga og stakk mig af…
-
AuthorReplies