Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
31.05.2004 at 15:03 #194423
Eru ekki einhverstaðar í myndaalbúminu myndir af heklugosinu seinasta.
Ég man eftir skemmtilegum myndum þar sem að landcruiser affelgaði við hraunjaðarinnsendið mér mail ef þig vitið um þessar myndir á netinu.
Kveðja Bæring
Bazzi@simnet.is
29.05.2004 at 13:15 #503373ég er sennilega að fara að gera sama hlutinn.
aðal vandamálið í þessu er að mixa rafkerfin saman. En það getur valla verið það mikið mál.
28.05.2004 at 20:41 #503362þú verður að skifta um gírkassa líka
18.05.2004 at 20:48 #502811málið sníst eiginlega um það hvort ég eigi að halda a´fram að vera á d.cab eða fara yfir í runner. Það er eiginlega mesta spurningin með farþegana hvernig þeym líður. Ég veit að það er alveg hrikalegt að sitja aftur í d.cab sínist það vera meira pláss í runnernum, ég er eiginlega að leita að því hvor bíllinn sé þægilegri til að sitja lengi í til lengdar með 3 farþega
18.05.2004 at 20:17 #502791ég hef heyrt að 4runnerin sér léttari ????? er þetta rétt
18.05.2004 at 18:40 #194372Hvaða munur er á þessum bílum? Þá er ég að meina hvorum er betra að sitja í til lengdar?
Segjum að við séum með báða bílana á gormum.
Hvorn bílinn myndu menn vilja.Mér bíðst 4runner og hilux body til sölu hvort á ég að taka???
Kveðja Bæring
16.05.2004 at 20:25 #502425afgasið kemur beint inná túrbínu á toyotunni, það er því erfitt að koma nemanum fyrir túrbínu. en takk fyrir skjót svör.
En man einhver hvernig reglan um stillingu á olíuverki og turbo er. Mér sínist að ef ég gef snögt þannig að vélin fær fullt af olíu á móti miklu lofti þá hitnar vélin minna en ef ég gef henni hægt og rólega þá er turbinan að blása eithvað í kringum 8 psi ?????
Er einhver regla um þetta. Og eins með reikinn svartur = of mikil olía Hvítur= of mikið loft er þetta ekki rétt?kveðja Bæring
16.05.2004 at 17:05 #502417ég setti neman í afgashúsið s.s kuðunginn sem að púströrið tengist við. það ætti þá að heita eftir túrbínu?????
kv. Bæring
16.05.2004 at 00:23 #194362veit einhver hver hentugur afgashiti á að vera í 2,4 tdi hilux????
var að setja mæli og veit ekki hvort ég á að vera ánægður eða hafa áhyggjur.
hitinn er nálægt 200°c í lausagangi en er einhverstaðar í kringum 500°cm í keirslu
Hveðja Bæring
16.05.2004 at 00:16 #502257ég hef heyrt það oft að það sé pakkningin í kringum öxulinn sem gjöfin er tengd við sem leki.
passaðu þig bara á því þegar þú púslar saman aftur að ekkert sé klemt á milli, eða að þetta sé öruglega rétt. Ef að allt er rétt þá á lokið að detta á réttan stað (engin rifa á milli loks og olíuverks.) ekki þvinga þetta neitt.
Seinast þegar ég gerði þetta var ég að drífa mig of mikið og lét boltana draga lokið að verkinu. Og eiðilagði verkið.Gangi þér bara vel
14.05.2004 at 00:07 #501873jah það kemur alltaf bros á mennina sem eru að vinna þarna þegar að maður minnist á starfsmanna sjóðinn, og hvað þeir ætli að kaupa sér mikinn bjór fyrir hann. Ég er nú bara að vinna þarna í rafmagninu einstaka sinnum, en alltaf langar manni nú í bjór þegar maður sér lagerinn þarna og sérstaklega lagerinn uppí áfengi það er all svakalega skemmtileg sjón.
en brúsarnir kosta 400 kr stk eru 70 l og svo eru einhver minni tegund til sem ég man ekki hvernig er.
niðrí mörk í kvöld var einhver að segja að einu brúsarnir sem sé hægt að treysta til að hafa inní bíl séu einhverjir svartir sleðabrúsar… hann var að meina að olían skemmi allar þéttingar á öllum öðrum brúsum. Ég hef ekki tekið eftir þessu sjálfur en vildi ég bara koma þessu á framfæri.
það sem ég hef alltaf gert er að leggja þá á hliðina með tappan upp. Og hef ég þá ekki fyllt brúsana meir en svo að olían lyggi ekki á tappanum. ??? vona að þið skiljið hvað ég á við.
hveðja Bæring
13.05.2004 at 23:56 #502237já ég hef lent í þessu
viltu vita hvernig þú átt að laga þetta ???
. .
… …..
.... ..
.. ..
….
12.05.2004 at 21:40 #501857mig minnir að í þessum brúsum séu litarefni, … allavegana minnir mig að meginuppistaðan í pepsíinu komi í duftformi, (það var einhverntíman einhver að segja mér allt um þetta þegar ég var að vinna þarna,var ekki beint að hlusta á hann)
En aðalatriðið er að gróðinn af þessum brúsum fer allur í starfsmannafélagið, og bið ég alla um að styrkja þá, svo þeir geti nú keipt sér smá bjór (því að þeir fá ekki að smakka þegar þeir eru að framleiða þetta) ýmindið ykkur hvernig er að standa við færibænd allandaginn og horfa á bjórflöskur.
12.05.2004 at 00:31 #501833starfsmannafélag ölgerðarinnar Egill skallagríms. er að selja mjög góða brúsa. sem eru á einhverja hundraðkalla man ekki nákvæmlega hvað. mjög ódýrir og góðir brúsar ég hef notað svoleiðis í nokkur ár.
það er auglísing um þetta niðrí mörk með símanúmeri og svo geturu öruglega bara farið uppí ölgerð. (beint á móti select á suðurlandsveginum)
08.05.2004 at 12:35 #501643en veit enginn um annað öryggja box en þetta hjá bílstjórahurðinni.
07.05.2004 at 00:46 #194325ég er með pajero grei í höndunum núna sem að er með eftirfarandi vandamál.
olíusmurþrístingsmælirinn og hitamælirinn virka ekki og svo drepur hann ekki á sér þegar svissað er af honum.
Þessi bíll er c.a. 89-91 árg. hann var orginal með bensínvél og er núna komin dísel vél í hann, maðurinn sem mixaði rafkerfin saman hefur átt alveg einstaklega mikið af gulum vír því að það er eini liturinn sem sést ef litið er innundir mælaborðið. Ég þekki þessa bíla lítið sem ekkert, og fann bara eitt öryggja box í bílnum. (vinstra meginn á hliðinni á mælaborðinu, blasir við þegar maður opnar hurðina)
1. Er einhverstaðar annað öryggja box.
2. vitið þið um einhverjar bilanir sem gætu valdið þessu (hef tjekkað á segullokanum á olíuverkinu, hann virkar)(virðist fá straum eftir að svissað er af)
endilega látið mig vita af öllum ykkar hugmyndum.
sjálfum dettur mér helst í hug að það hafi eithvað klikkað í þessu rafmagns mixi en vil endilega fá hugmyndir áður en ég ræðst á alla gulu vírana.
Kveðja Bæring
06.05.2004 at 19:26 #501431ég er sammála seinasta ræðumanni.
Hvernig væri að reyna að byggja upp eithvað forvarnarmál.t.d. búa til myndband sem að klúbburinn getur látið sína í sjónvarpinu eithvað álíka og sniglarnir eru búnir að vera með í mörg ár, auglýsa fyrir lestra um akstur jeppabifreiða, eða dreifa bækling í þessum jeppabúðum sem að allir geta nálgast, eða eithvað í svoleiðis dúr.
Það myndi skapa jákvæða ýmind fyrir klúbbinn.Umræðurnar eða nöldrið sem hefur verið hérna á síðunni undanfarið hefur bara gert menn pirraða út í hvern annan, og hafa þær sennilega bara búið til neikvæða ímynd fyrir klúbbinn.
03.05.2004 at 21:26 #501139Ég hef lítið annað um þetta að segja en:
1.
Patrol menn geta ekki farið á fjöll án þess að lenda í vandræðum nema það sé allavegana ein Toyota með.2.
Meiri hluti þessara ágætu manna eru fyrrverandi Toyotu menn sem héldu að þeir myndu sjá ljósið í Patrol.
En eiða svo næstu árum í það að reyna að sannfæra sig og aðra um það að þetta hafi verið rétt ákvörðun. Sem kemur ægi oft svoldið pínlega út fyrir þá sjálfa.3.
Jafnvel hörðustu patrolmenn hafa farið að dásema nýja Cruisernum sínum þegar þeir eru komnir svoldið í glas. En eru svo að sjálfsögðu hundóánægir með gripinn þegar þeir eru komnir í hóp annara patrolmanna. (kallast hópþrístingur)4.
Ótrúlega oft hef ég heirt þá umræðu undanfarið "hvað það væri nú sniðugt að kaupa saman einn úrbræddann patrol, svona bara til að eiga í varahluti"5.
Undarlegt. Þegar Patrolmenn kaupa varahluti þá kaupa þeir oftast tvo, (einn til að eiga næst þegar þetta bilar) (líklegast til að spara ferðina, það er sennilega pínlegt að hugsa til þess hversu oft þeir hafa farið í varahlutaverslun Ingvars helgasonar.)6.
Þegar þessi kvikindi pompa niðrí litla læki, þá þarf stundum gröfu til að sækja draslið.7.
Heyrst hefur að bíllinn með nýja boddíinu sé eiginlega of þungur til að vera bara á 38" (þennann orðróm hefur ítrekað verið reynt að kæfa í fæðingu)8.
Eitt gott við þessa bíla er að það er hægt að nota þá sem affelgunarvél ef svoleiðis búnaður er ekki við hendina á fjöllum8 1/2.
Það er ágætt að hafa þessa bíla með, því að eigendurnir eru svo fúsir til að sína okkur hinum hvað draslið getur og gera gjörsamlega allt til að fá að riðja. (sem er alveg rosalega eldsneitissparandi fyrir okkur hina)(sem hefur stundum farið útí tóma vitleysu t.d. Hlynur Snæland sem er farinn að halda að hann sé aðal björgunar vél klúbbsins og að menn geti hreinlega ekki farið á fjöll án hans)
9.
Eins og Hallgrímur Húsavíkur deildar maður orðaði þetta um bílinn sinn Patrol 44"
"þetta var alveg gjörsamlega dautt þangað til að Cruiser vélin fór ofaní húddið"10.
Það er búið að fynna lækningu við þessu hún heitir Land Cruiser (þó hann kosti örlítið meira hvernig væri að fara bara strax í hann)
24.04.2004 at 01:22 #499589:O)
23.04.2004 at 23:44 #499578Vill Latur útskíra afhverju hann er að auglísa eftir framfjöðrum?????????
-
AuthorReplies