You are here: Home / arnar agnarsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Ég sendi svipaðann póst inn á fornbílaspjallið og það hefur spunnist áhugaverð umræða út frá því.
Endilega kíkjið á það og hjálpið mér verja rök eiganda breytra fornbíla.
Hér eru svörin sem ég fékk frá sjóvá þega ég sótti um:
Sjóvá: Sæll xxxx, hér kemur tilboðið. Við getum því miður ekki skráð xxxxh sem
fornbíl því hann hefur verið keyrður meira en
1.000- 2.000 km á ári þangað til að númerin voru lögð inn. En ég sendi
samt sem áður á þig tilboð sem þú getur kíkt á ef þú vilt.
Ég bað um að fá að vita hvar hún/hann hefði fengið þessar upplýsingar því bíllinn hefur ekki verið skoðaður síðan 2008 og svarið var.
Sjóvá:
Skilyrði okkar fyrir fornbílum eru að bílarnir séu uppgerðir eins og þeir voru upprunalega og skráðir í fornbílaklúbbinn. Er þessi bíll skráður í fornbílaklúbbinn? Þar að auki eru jeppar yfirleitt ekki að fara í fornbílaflokk.
Þetta er bara bull og algjörlega óskiljandi. Fornbíll er fornbíll og þetta heitir fornbílatrygging
Kv arnar
Jæja loksins náði þráláti patrol’inn minn réttum aldri eða 25 árum var ég búinn að hlakka mikið til að fá fornbílatryggingu á gripinn. En það virðist vera mun flóknara en ég hélt, allaveganna er ég búinn að fá neitunn hjá 3 fyrirtækjum og voru ástæðurnar mismunandi. Sjóvá vill ekki tryggja breytta jeppa sem hafa náð tilskipuðum aldri og TM þóttist hafa heimildir fyrir því að bíllinn hafa verið ekinn meira en 1000-2000 km á ári áður en bíllinn varð fornbíll, sem er yfir leifileg mörk fyrir fornbíl. En það sem er doldið áhugavert er að bíllinn hefur farið í 2 ferðir síðan 2008 og hefur verið bilaður síðustu 3 árin og hefur ekki verið skoðaður fyrir vikið.
Er einhver sem getur sagt mér hver skilyrðin eru og bent mér í rétta átt?
Ég er ekki meðlimur hjá fornbílaklúbbnum en er meðlimur hér hjá 4×4.
Kv arnar evuson
Eigum vid ad kikja á föstudag laugardag??