You are here: Home / Baldur Hermannsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Veit ekki. Hann stendur á plani úti í bæ. Ef ég læt 60 l af bensíni renna á planið verð ég drepinn á staðnum. Ég var að keyra og skyndilega drap hann á sér.
Afsakið aulaháttinn, en það hlaut að koma að því. Fyllti tankinn af bensíni. Þetta er Nissan Navara. Það er miðnætti – en ef einhver er vakandi að lesa þetta: veist þú hvað best er að gera í þessari kjánalegu stöðu?
Rúnar, takk fyrir þetta, en hvað áttu við með "loftun"? Boraðirðu gat framan á skúffuna – og hve stórt þarf þetta gat að vera? Kv. B.
Ég er búinn að fá mér pallbíl, Nissan Navara, og setti undir hann vegleg dekk og lok yfir pallinn. Gallinn er sá að það rykast alveg ferlega inn í hann. Vitið þið hvernig best er að þétta hann? Eftirfarandi hef ég heyrt:
.
1) Arctic Trucks eru með hentuga gúmmílista.
2) Sniðugt að bora gata framan á skúffuna til að skapa yfirþrýsting.
.
Ég hef lítið vit á þessu og langar til heyra ykkar álit áður en ég geri nokkuð í málinu. Takk, bless, Baldur.
Flott lýsing, Þorsteinn, ég prenta þetta út og hef í farteskinu…. ! B
Þakka þér fyrir Markús, gott að vita þetta. B
Fyrirgefið fáfræði mína, ég er nýr hér, en veit einhver snillingur hér um færð inn í Lakagíga? Ég veit að það er ein á sem fara þarf yfir – er hún nokkurt vandamál fyrir Izuzu Trooper? Takk fyrir mig. B