You are here: Home / Ingólfur Finnbogason
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Sælir
Loksins má sjá fyrir endann á þessari djöfulsins vitleysu. Hverjum hefði grunað að saklaus sunnudagsbíltúr ætti eftir að draga á eftir sér hálfs árs málaferli, tja ekki mér.
En hvað um það þá er niðurstaðan fagnaðarefni og nokkuð fyrirsjáanleg.
Ég vil samt sem áður þakka öll þeim félagsmönnum sem aðstoðu okkur sökudólgana við að afla upplýsina um Hafravatnssvæðið og lögðu þar með hönd á plóg skýknudóms. Ef ekki hefði komið til allar þær upplýsingar sem um svæðið söfnuðust er alls ekki víst að málið hefði endað jafn farsællega og raun ber vitni.
Það er synd hvað þessi della er búin að kosta mikla fjármuni fyrir ríkið, sem og okkur persónulega. Það má samt ekki gera lítið úr vægi þess að vernda náttúruna og stoppa vitleysinga sem keyra með rassgatinu og valda stórspjöllum á landinu.
Það hefur verið gaman að fylgjast með áhuganum hérna fyrir þessum málum og ég held að það sé bara eitt að gera úr þessu og það er að ganga í félagið.
Hvenær er annars næsta ferð minni jeppa?
Ingólfur