FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Baldur Gunnarsson

Baldur Gunnarsson

Profile picture of Baldur Gunnarsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 11 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 437 total)
← 1 … 6 7 8 … 22 →
  • Author
    Replies
  • 03.06.2006 at 22:26 #198037
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    Ég er að velta fyrir mér hvað ég á að gera við vélina í hiluxnum mínum. En það er 2.4 diesel sem er farin að blása fullmikið upp í ventlalok og lekur flestum vökvum. Annað hvort er að taka vélina upp eða fá sér aðra og skemmtilegri vél.

    En hvað er hægt að fá þetta? eða réttara sagt hvar er hægt að fá vélar. Ég er helst að horfa á 3L (2.8 lítra), 5L (3 lítra), eða KZ (3 lítra) toyotuvélar. Hefur einhver hugmynd um það hvar væri hægt að fá svona vélar? Eða er kannski hægt að mixa eitthvað úr 3L og 2L ?

    Einhverjar hugmyndir? vefsíður eða eitthvað sem selur svona dót.

    Ég hef engan áhuga á bensínvélum svo þið getið sleppt því að benda mér á þær.





    15.05.2006 at 01:31 #552558
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    andri, hvar fannstu upplýsingar um tork? ég fann bara tölur um afl, og ekkert um snúing. Og það segir manni nákvæmlega ekkert. En ef hún er að skila þessum 800 hp (m.v. síðu sem ég las) á svona lágum snúning eins og þú segir, þá ætti þetta að torka alveg helling.

    Einhver staðar las ég svo að þetta væri diesel! en samt með kerti! gæti reyndar verið bull.

    En þetta væri fínt í sumar gerðir bíla, því head vandamál myndu alveg vera úr sögunni!! enda ekkert head, ventlar og óþarfa vesen 😉





    11.05.2006 at 19:18 #552342
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    ég er líka fátækur námsmaður. Mér fannst alltof dýrt að eiga 2 umganga af dekkjum. Svo ég fór þá leið að kaupa mér 38" mudder og láta mircoskera hann alveg út. Og ég keyri bara á þessum dekkjum allan ársins hring. Kemur bara mjög vel út, enda þarf maður ekki nagla hérna á höfuðborgarsvæðinu, og ég keyri bara varlega þegar ég fer norður á veturna.

    En á móti kemur að ég er alltaf á almennilegum dekkjum ef mér dettur í hug að jeppast 😀 Og fyrir utan það hvað 38 tommu breyttir bílar eru ljótir á 35 😉





    02.05.2006 at 23:12 #551792
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    mjög líklega vírar eða plögg sem liggja niður að þessu, þetta á það til að losna og nuddast í sundur. Það gerist allavega á Hilux, geri ráð fyrir því að þetta sé svipað. Ég hef allavega aldrei fundið neitt öryggi fyrir þetta í bílnum mínum





    27.04.2006 at 19:22 #551176
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    Ég talaði við Sverri, sem er sonur hans Kalla Geirs sem smíðaði þann rauða, og þetta er ekki sami bíllinn, númerið á þeim rauða er þ-3905.

    En þessi bíll var í eigu manns sem er kallaður Grímur Agnars og hann lét víst sprauta hann svona eftir veltu.





    26.04.2006 at 03:29 #551174
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    Gott ef þetta er ekki númerið sem er á Úllunni. Ég get svo sem komist að því. En Úllan (þessi stóri rauði) var lengi á Húsavík, Kalli Geirs smíðaði hann. Varð meira að segja íslandsmeistari í sandspyrnu á honum ef ég man rétt. Ég veit ekki hvar hann er núna, en ég ætti að geta komast að því.
    Ég skal bara komast það því hvort þetta sé sami bíllinn.
    Kalli er núna búinn að breyta ógurlegum Blazer. Og já hann hugsar stórt 😀

    [url=http://www.live2cruize.com/phpBB2/viewtopic.php?t=24208&highlight=:2twctogb][b:2twctogb]hér eru myndir af blazernum[/b:2twctogb][/url:2twctogb]





    22.04.2006 at 22:04 #550360
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    er þessi listi sem þið segið að Freyr hafi skrifað ekki bara frá því hann fór á suðurskautslandið? 😀

    annars finnst mér nú alveg eðlilegt að menn séu með varahluti í það sem er veikt í bílnum þeirra, framhjólalegur í patrol, hrútshorn í hilux, öxla í landrover.. ofsv. svona í það minnsta það sem er nóg til að koma manni til byggða





    22.04.2006 at 00:51 #550312
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    mikið er ég hjartanlega sammála bjornod, áfengi og fjallaferðir eiga aldrei saman, hvort sem menn eru gangandi eða akandi. Og það á líka við um það að drekka á kvöldin og nóttunni, bara merkilegt að það hafi ekki orðið fleiri slys út af drykkju á fjöllum.





    20.04.2006 at 16:07 #550158
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    það er tvennt sem skiptir máli í sambandi við sólgleraugu sem á að nota í snjó:
    1. þau þurfa að loka vel að augana allan hringinn, en það er mismunandi hvað passar á fólk því við erum jú misjöfn
    2. linsunar þurfa að filtera út þá geisla sem við viljum ekki fá í augun. Það er ekki nóg að þau séu bara með lituðum glerum eins og ýmislegt drasl sem er á markaðnum.

    Ég hef fengið bruna í augun eftir nokkra klukkutíma í snjó með gleraugu sem lokuðu vel, linsunar voru bara ekki góðar, enda gleraugun ódýr. Ég mæli með að fólk kaupi merkjavöru í sólgeraugum, cébe, okley, alpina eða eitthvað þannig.





    18.04.2006 at 22:22 #549840
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    svo er það líka þannig að ef maður æltar að kaupa 44 tommu breyttan svona bíl, þá er í flestum tilfellum búið að laga gallanna á LC, þ.e. setja sterkara framdrif í hann. En því miður eru í fæstum tilfellum búið að laga gallanna í patrol, en það er jú töluvert meira mál að setja almennilega vél í bíla heldur en að skipta um drif 😀 Annars finnst mér patrol frábærir bílar og ég er búinn að ferðast mikið á þannig. En ég myndi aldrei nokkrun tíman kaupa hann með þessum vélum sem eru í boði og meðan umboðið stendur sig eins og það stendur sig.

    En draumabílinn minn væri samt sem áður patrol með LC 100 vél sem væri hægt að kaupa alla varahluti í þegar mér dytti það í hug.





    18.04.2006 at 17:59 #549766
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    ég vil byrja á því að segja að ég samhryggist þér innilega, ég er akkúrat í rafmagnsveseni með minn líka.
    En það sem mér var sagt að gera var að athuga öll tengi, geymatengi, startara og jarðtenginu á mótor.
    Ef það er allt í lagi, þá myndi ég skoða punginn og startarann.





    10.04.2006 at 16:49 #548950
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    ef þú ert að meina þessi gulu, þá er það Prófílstál (briddebilt) sem smíðar og selur þau. Ættu reyndar að fást í flestum jeppabúðunum líka. allavega hjá arctic trucks





    07.04.2006 at 19:05 #548684
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    nei patrol er það ekki 😉 Þessi bíll mun vera ættaður úr kópavogi





    07.04.2006 at 17:55 #548672
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    sæll félagi
    þegar ég var að skoða þetta með pabba fyrir nokkrum árum varð palomino frá seglagerðinni fyrir valinu. Þau voru á þeim tíma þau einu sem voru ‘upphækkuð frá verksmiðju’. Og núna er víst kominn enn stærri dekk undir þau.
    allavega hefur þetta reynst vel hjá pabba, þau eru búin að draga þetta um all hálendið, meðal annars allaleið upp í Dreka. Og það var ekkert átt frekar við það, ekkert loftpúða dót eða neitt svoleiðist.





    06.04.2006 at 18:28 #548468
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    já ég var búinn að tala við part, þeir eiga bara svo þykk blöð í augnablikinu.
    Annars var ég búinn að finna notuð blöð sem eru reyndar allt örðuvísi. Og ég á eftir að fara í toyota og skoða það sem þeir bjóða uppá.





    06.04.2006 at 13:23 #548460
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    já ég held að það sé nokkuð ljóst að ég er ekki að fara að sjóða þetta saman, þar sem það vantar bút inn í blaðið. Og svo þarf þetta líka að endast lengur en mánuð.





    06.04.2006 at 00:40 #548444
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    ég gleymdi að taka það fram að ég næ ekki að finna peninga, aðstöðu og tíma til að smíða gormafjöðrun undir hann fyrir páskaferðina…

    en ég vissi af þessum möguleika og hann er á langtímaplaninu.





    05.04.2006 at 20:35 #197688
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    daginn
    Ég er í vandræðum með fjaðrir í Hiluxinn minn. En það er brotið blað í framfjöður. Nánar tiltekið neðstablaðið. Vandamálið er að engin veit nákvæmlega hvering fjaðir þetta eru, en ég er farinn að hallast að því að þetta séu Rancho fjaðrir 1-2 tommu lift. En ég er búinn að skoða fjaðrir sem eiga að vera orginal og þær eru allt örðuvísi, og mér skilst að á downy noti menn neðstu blöðinu úr orginal með.
    Þetta blað nær ekki alla leið fram (svona 3/4, en alla leið aftur, miðjuboltin er svona 60/40 cirka.
    Ég er ekki búinn að mæla þetta nákvæmlega, þar sem ég hef alltaf verið einn við þetta.

    Getur einhver bent mér á það ég gæti mögulega fengið svona blað? Eða kannski einhver ykkar sem á svona? Er kannski eitthvað skítmix sem ég get farið í? Þetta þarf ekkert að vera fallegt, fjaðrar hvort sem er lítið einsog þetta er.
    Ég var búinn að tala við benna og þeir eiga ekki von á rancho fjörðum fyrr en í fyrsta lagi eftir mánuð, og ég veit ekki einu sinni hvort það muni passa.

    með fyrirfram þökk
    Baldur
    Þ-455





    04.04.2006 at 18:16 #548356
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    ég tel að það sé gáfulegast að kaupa lás sem þolir töluvert meira heldur en spottinn, festa þetta svo í eitthvað almennilegt á bílnum. Allavega við ég frekar frá enda á spottanum í bílinn minn, heldur en lásinn.

    Og fyrir utan það á þýðir lítið að nota orginal dráttarlykkjur á jepplingum í það minnsta. Ég hef dregið svoleiðist af nokkrum.





    31.03.2006 at 17:26 #548030
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    stendur trd á hliðinni á þessu? ætli það sé toyota mótor í þessu 😉

    En damn! þetta er alvöru bína 😀





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 121 through 140 (of 437 total)
← 1 … 6 7 8 … 22 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.