Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.07.2004 at 20:55 #504956
ég er einmitt að velta svipuðu fyrir mér. Ég er með hilux á gromum að aftan og langar að setja hann á koni. En hvaða koni ætti ég að nota?
hafa menn verið að nota þessa rauðu speacial sem eiga að passa vel fyrir hilux? þeir heita 82-2272 samkvæmt http://www.koni.com
eða á maður að nota eitthvað annað? þessir miða væntanlega við blaðfjarðir? kannski það sem koni mælir með fyrir 4runner?hummm…
Baldur
22.07.2004 at 20:42 #504964ég komst að því um daginn að til að ná flugum að framm rúðunni virkar Glass polish frá AutoGlym (þetta bláa) alveg rosalega vel, reyndar það besta sem ég hef prófað á rúður yfir höfuð.
En að ná af lakkinu… ég skal ekki segja, ætli hreinsibón sé ekki bara það bestaBaldur
20.07.2004 at 09:17 #504808ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, en einhvers staðar heyrði ég að þessi bíll yrði aðeins ódýrari en patrol á 44, og þannig bíla eru nú býsna margar hjáparsveitir með. Leiðréttið mig ef þetta er vitlaust.
EN ég fagna því að Toyota sé aftur kominn í hjálparsveitar bílanna, því þetta eru einu sinni lang bestu bílarnir
Baldur
16.07.2004 at 11:02 #504752reyndar er nú algengt að menn séu búnar að taka vélarnar upp í þessum bílum eknum 250 þús, svo ef til vill er búið að fara í þessar viðgerðir nú þegar.
annars er alveg hægt að keyra þessar vélar 400+ þús ef menn hafa ekki látið þær reykja mikið í gegnum tíðina.
kv
Baldur
Þ-455
14.07.2004 at 20:48 #504746sæll
Ég fór einmitt í gegnum þetta í vor, endaði með að fá svona bíl ekinn 160 þús á 750 þús, svo þú ættir nú að geta fengið þennan á eitthvað minna. Bara prófa að bjóða töluvert lægra en þú ert tilbúinn til að borga, því það má alltaf bjóða aftur ef hann segir neikv.
Baldur
Þ-455
11.07.2004 at 20:13 #504714mér hefur alltaf tekist að fara framm úr bara með því að flauta pínulítið. En bíllinn þinn er kannski eins útbúinn og minn … með bilaða flautu.
Baldur
Þ-455
08.07.2004 at 13:13 #504660seglagerðin á þetta allt saman til, ég veit það fyrir víst þar sem ég vann þar. Annars á ég líka eitthvað smá hérna í Everest, en seglagerðin á miklu meira.
kveðja
Baldur
súluviðgerðarmaður
05.07.2004 at 21:20 #194523sælir
Nú þarf hann faðir minn að endurnýja aftur fjarðirnar í Hiluxnum sínum, okkur fynnst orginallinn soldið dýr. Og við vorum að velta því fyrir okkur hvort einhver vissi um eitthvað sem væri gott í staðinn? jafnvel eitthvað mýkra? hefur einhver reynslu af þessum amerísku sem arctic trucks er að selja? eða er kannski eitthvað til frá OME ?
kveðja
Baldur
03.07.2004 at 20:16 #504432daginn
ek hilux dc 1991, ekinn aðeins 173 þús km. og það eina sem hefur verið gert við vélina er að setja á hana túrbínu og kúlertja reyndar var skipt um tímareim í svona 100 þús.
ef einhver veit um minna ekinn 13 ára luxara þá þætti mér gaman að heyra af því.
bg
23.06.2004 at 23:15 #504060Mér hefur fundist það vera málið á þessum blessaða bílamarkaði okkar að menn setja svona 100-200 þús meira á bíla en þeir ætlast til að fá fyrir þá, svo ég held að maður eigi bara að prófa að bjóða nógu lítið fyrst
það er allt í góðu að fá nei, því það má alltaf prófa aftur.
Baldur
Þ-455
25.05.2004 at 23:57 #194403sælt veri fólkið,
Við fegðar erum að hugsa um að fara í sunnudagsbíltúr á eyjafjallajökul og mýrdalsjökul. Hefur einhver ykkar farið þar um nýlega? Gott væri að vita um snjóalög, hvort jöklarnir séu sprungnir og þess háttar. tja, og bara hvort þetta sé almennt skynsamlegt að fara þarna á þessum árstíma? Er langiskafl kannski bara sniðugri?kveðja
Baldur
Þ-455
17.05.2004 at 15:49 #501901… eiga bara pallbíl, og þá má alveg sullast aðeins úr brúsunum
en stefnum við ekki allir á aukatank? þetta er bara spuring um krónur
baldur
Þ-455
11.05.2004 at 22:34 #194342sælt veri fólkið
Getur einhver bent mér á hvar er hægt að fá ódýrustu eldsneytisbrúsanna? Er kannski hægt að fá eitthvað dót gefins hjá olíufélgunum? Er búinn að athuga á nokkrum stöðum og mér finnst þetta alltof dýrt, slagar upp í aukatank.Baldur – fátæki
04.05.2004 at 20:47 #500915já ég opnaði plöggið áðan, og það stemmir, pólarnir fyir nmea eru ótengdir. En þarf ég ekki að tengja jörð inn á tölvuna líka? Hvering er best að fara að því?
Baldur
04.05.2004 at 12:08 #500902Sælir,
hefur einhver búið til svona kapal fyrir Garmin GPS 12? Vandamálið við hann er að hann tekur 8 volt, ekki 12 eins og flest önnur. Ég á svona sígarettukveikjara straumbreyti fyrir það, en vantar að geta tengt það við tölvuna um leið.getur einhver hjálpað mér?
Baldur
Þ-455
03.05.2004 at 11:25 #501063sæll
ef þú ætlar að fá þér viðgerðarbók, þá gæti verið sniðugt að panta hana frá bretlandiþessi síða hefur flest allar bækur sem maður þarf, og tiltölulega einfalt að panta frá þeim, fyrir utan það að maður sparar sér svona eins og einn tank miðað við að kaupa hana með 2.2 í álagningu hjá bílanaust
Baldur
Þ-455
01.05.2004 at 20:59 #500780væri svona neyðarrás ekki sniðug? en hvering væri þetta framkvæmt?
Baldur
Þ-455
27.04.2004 at 09:44 #500181Ég hélt að þessir bílar væru annað hvort með diskalæsingu eða rafmagni orginal. Allavega var dobblarinn þannig, veit ekki hvering 89 bíllinn var en 90 var með orginal diskalæsingu og eftir mitt ár 91 voru þeir með rafmagni. Svo aftur þegar bensín dobblarinn kom 92 voru þeir með diska.
En ég var í þeirri trú að extra cabinn væri með diska?
22.04.2004 at 23:48 #499641ég held að þetta sé rétta aðferðin við að eiga mmc, bara hafa allt kram úr toyotu. Annars fynnst mér þetta ekkert sniðugt, luxinn er svo miklu fallegri en þessi kassi
en engu að síður; alltaf gaman þegar menn smíða óvenjulega hluti
Baldur
Þ-455
16.04.2004 at 23:04 #499091sælir
Ég er algjörlega sammála því að klúbburinn ætti ekki að taka afstöðu í þessu tiltekna máli, og ég er einnig sammála því að klúbburinn ætti heldur að eyða kröftum sínu í að lækka verð á eldsneyti almennt. Það er eitthvað sem þjónar öllum félagsmönnum.
Nú ætti ég kannski að taka það fram að ég ek díselbíl á fasta gjaldinu, þannig að ef olíugjald kemst á, ætti það að þýða hækkun fyrir mig. En ég hef samt ekkert á móti því að olíugjald yrði tekið upp, þar sem það gerir borgaranna jafnariÉg er bara að nýta mér þessa glufu í lögunum meðan hún er til staðar og sé ekkert að því.
Hins vegar fynnst mér að dísellinn ætti að vera 15-20% ódýrari en bensín, þar sem dísel bílar menga minna á hvern lítra. En það er bara mín skoðunBaldur
Þ-470
-
AuthorReplies