Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.08.2005 at 14:14 #196146
Sælir
Égh finn bara alls ekki tenginguna við deildir 4×4 á heimasíðunni okkar!!!
Hvernig fer ég að því að finna mína deild??
Kv
Eiður
01.07.2005 at 15:44 #524596Einfalt reiknisdæmi:
Í gær kostaði líterinn kr 59.- og hver km í þungaskatti 6.91.-
Sem þýðir að bíll sem eyðir 14 lítrum á 100 km og keyrir 20.000 á ári kostar á ári 303.400.-
En í dag kostar líterinn 110.- og engin skattur sem þýðir á sama bíl 308.00.-
Munurinn er óverulegur, en ef bíllin eyðir meiru þá fer dæmið að vera enn óhagstæðara en aftur á móti ef hann eyðir minna þá ertu farin að græða.
Semsagt að endurnýja heimilisbílin og fá sér dísil fólskbíl tila að spara fyrir túttujeppanum (eyðslunni) virðist vera málið.
En auðvitað erum við eflaust allir samála því að þetta sé einum of mikið að skella þessari krónutölu á lítran, það hefði verið nær að hafa þetta bara lægra (svona ca 10-15kr) og setja bara gjaldið á alla olíu hvort sem hún ætti að fara á 37 tonna Komatshu eða 1800 kílóa Hi-Lux.
Með gjaldakveðju
Austmann
08.04.2005 at 00:17 #520540Þetta má ekki leggja niður, það er á hreinu.
Það er alveg ljóst í mínum huga að þetta blað er jafn nauðsinlegt og loftið er í hjólbarðana,
kv
Austmann
17.03.2005 at 20:31 #519248Sæll Atli og til hamingju með fjórhlauparann.
Það sem mér leikur forvitni á að vita er hvaða gorma þú notaðir undir Runnerinn og hvernig þeir hafa komið út??
Mig vantar gorma að aftan en hef ekki enn lagt í að kaupa þá hjá Toyota því þeir kosta vikulaun verkamanns og gott betur.
kv
Austmann
22.02.2005 at 23:24 #517554Takk fyrir viðbrögðin félagar, druslan er komin í gang og gengur sem aldrei fyrr.
Igniter var vandamálið fann notaðan á Norfirði og skipti.
kv
Austmann
22.02.2005 at 15:15 #195546Sælir heiðursmenn.
Er í vandræðum með 4Runner 91, hann vill ekki gefa neinn neista af háspennukefli er búinn að athuga öll öryggi og búinn að prufa að skipta um innspýtingartölvu en ekkert gengur.
Hefur einhver hér lennt í svipuðu eða eru menn með einhverjar hugmyndir um hvað gæti verið að????
með neistakveðju
Austmann
09.02.2005 at 15:34 #516358Ég er með Fjórennir (4Runner) sem ég "tróð" 35 undir, en hann er hækkaður um 3"
Það er reyndar varla nóg því að hann nartar í, en ef klippt er að eins úr líka þá kemst þetta undir með glans.En sumir vilja meina að það sé best að fara bara beint í 4" og klippa síðan því að þá fer 38" undir en það er erfitt að klippa úr þannig að hún sleppi með 3" hækkun.
Þannig að ef ekki á að klippa fyrir 35" þá ferðu í 4" en 3" sleppa ef þú klippir.
Með klippikveðju
Austmann
03.02.2005 at 23:18 #514016Hmmmm….
Það er mín reynsla að það sé betra að vera í breyðari kantinum frekar en hitt!!
Ég hef verið á 12" breiðum felgum með aðeins 33" tommur og það kom mun betur út en 10"
Ef hleypt er úr kemur fyrr brot á banan við felguna ef felgan er mjó, og þetta brot eykur áhættuna á affelgun, og það er staðreynd.
Einnig færðu meiri snertiflöt og því meira flot ef felgan er breiðari.
Þumalputtaregla er að hafa felguna ekki mikið mjórri en breiddin er á sólanum, td er 38" Mudder 15,5" og því segir þumalputtareglan að felgan ætti að vera 15-16"
…bara svona smá innlegg…
Felgukveðja
Austmann
03.02.2005 at 00:01 #195398Sælir heiðursmenn og konur
Er að forvitnast hvort einhver hér getur gefið mér upplýsingar um það hvað 4lítra 6 cylindra Ford er að eyða undir húddi á sjálfskiptum Ford Explorer, þe hversu miklu bíllinn eyðir.
Það er reyndar viðbúið að það komi hér upp hinar ýmsu tölur miðað við það hvernig umræðurnar hafa stundum verið hér en ég held að ef maður tekur bara meðaltalið þá gefi það nokkuð rétta mynd.
Svona nú gerið ykkar besta
kv
Austmann
02.02.2005 at 21:44 #506978Fourlink
loft
eða
gormar
13.01.2005 at 21:34 #506952Bjórkút!!!
Kort eða talva??
08.12.2004 at 17:40 #509622Það er spurningin.
Mér finnst þessi bíll vera bara tær snilld.
Ég sit og horfi á myndirnar grænn og gulur af öfund, til hamingju með glæsilegt tæki. (Það stefnir í myndarlegt allavega)Með breytingarkveðju
Austmann
14.09.2004 at 13:07 #505750Halló
Væri ekki hægt að fá leyfi höfundar á birtingu skýrslunar? Það er ef það er eitthvað bitastætt í henni?
Ég er viss um að sá sem rigerðina skrifaði fagnar því að fá umræður og vangaveltur um ritverkið!!!Eiður
14.09.2004 at 13:01 #505738Sælir félagar
Á heimasíðu Björgunarsveitarinnar Héraðs á Egilsstöðum (egilsstadir.is/bjorgunarsveit) má sjá myndir af snjóbíl Sveins Sigurbjarnarsonar á Eskifirði, hangandi yfir sprungu við svipaðar aðstæður.
kv
Eiður
01.08.2004 at 17:09 #505178Sælir aftur
Væmri semsagt hægt að´nota skiptinguna við 3.0 toy dísil??
KV
Austmann
31.07.2004 at 18:13 #194586Sælir félagar.
getur einhver af ykkur fróðu spekingum sagt mér hvort skriðgírinn sem notaður er í HiLux passar líka í vökvskiptan sex cylindra fjórrennir?
Og einnig hvort ekki sé til dísill sem passar með góðu móti undir húddið á sama bíl og þá með því að not sjálffskiptinguna sem í honum er fyrir??
Kv
Austmann
31.07.2004 at 17:47 #504702Stærri bíll meira fjör.
15.07.2004 at 18:20 #194546Sælir félagar.
Hvar fær maður Trexus 38 tommu?
Mig vantar einn svokeiððis gang.Kv
Austmann.
08.07.2004 at 21:54 #194532Sælir félagar.
Hefur einhver hér lennt í vandræðum með innsog á 4Runner V6?
Hann virðist vera fastur í innsoginu því að hann gengur illa reykir og eyðir bensíni eins og andsk.. (ekki eins og að hann eyði litlu í lagi)Hér virðast alltaf vera einhverir spegingar sem eru með svona hluti á tæru.
Með von um viðbrögð.
kv
Austmann
30.06.2004 at 22:54 #504334Ég bra trúi því ekki að hér sé engin sm geti upplýst mig um þessa hluti.??
Kv
Austmann
-
AuthorReplies