Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.06.2008 at 23:01 #202572
Vinsamlega lesið eftirfarandi og hafið augun úti
http://dnnhost.is/DNNhost/Tjaldvagn/tabid/56/Default.aspx
kveðja Atli http://http://dnnhost.is/DNNhost/Tjaldvagn/tabid/56/Default.aspx
15.06.2008 at 21:25 #624362Hefði mætt, en var í Vestm.eyjum
kv. as
03.07.2007 at 23:03 #593134Sæll. Ef hún er eins og í xj bílnum þá er hún inní tanknum og er tekin úr að framan þar sem slangan (úrtakið) liggur úr tanknum. Kv. Atli
26.04.2007 at 15:34 #588150Hæ
‘Eg er á einum ’93 Grand Cherokee á 31tommu 5,2l.Atli Sturluson
08.03.2007 at 17:34 #583488hefur þú athugað hvað Stál og Stansar taka fyrir að skipta um spindlana.
Þeir hafa verið sanngjarni í vinnu fyrir mig.Kveðja
Atli
08.03.2007 at 16:57 #582662Hæ
Er kominn listi yfir hverjir og hvernig bílar eru skráðir í ferðina?
Kv.
Atli
02.03.2007 at 09:14 #582594Maður bíður eftir tryggri veðurspá, til að meta hvort maður eigi nokkurt erindi í þá færð sem verður.
Þó svo maður brosi sjálfur hringinn, fastur á hálendinu á nær óbreyttum Grand, þá er ekki víst að dráttardýrin séu jafnglöð.
Kveðja
Atli
29.01.2007 at 20:08 #577864Sælir
Ég legg til að þeir sem fari með í ferðir litludeildar bendi einhverjum á heimasíðuna f4x4.is þar sem oftast nær er hægt að lesa um hvernig ferðalöngum gengur í skipulögðum ferðum klúbbsins.
Í tilfelli krapaferðarinnar var fljótt ljóst þeim sem fylgdust með á netinu að menn kæmu ekki tímanlega í kvöldmatinn.
Flestir hafa aðgang að neti eða vita um e-n sem hefur það.
Kveðja
Atli
23.11.2006 at 10:04 #567542Sælir
Ég tek alltaf sundskýlu með í svona ferðir. Ef maður rekst á heitan læk eða pott þá er svekkjandi að hafa skilið skýluna og handklæði eftir.
Reikna má með að við verðum seint á ferð í skála annað kvöld og þá betra að skella e-u léttu í sig fyrir háttinn.
Kv.
Atli
14.11.2006 at 20:08 #567890Prófaðu að tala við Jón Stefánsson á Skaganum
Býr að Hnúki en er með verkstæði í bænum(Akranesi)
Hann var mikið í sjálfskiptingaviðgerðum
Kv.Atli
21.10.2006 at 12:11 #564772Ég vona að frúin jafni sig á þessu og glími ekki við afleiðngarnar í framtíðinni. Sá í fréttinni að klippa þurfti hana úr flakinu. Bíltíkina má endurnýja en heilsan er margfalt verðmætari.
kv. Atli
23.03.2006 at 13:43 #546548Ég mæti á mínum gamla
[img:hsm1uzjk]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/1093/10455.jpg[/img:hsm1uzjk]
14.04.2005 at 16:39 #520434Sæll Gundur
Takk fyrir síðast, var með þér á nesinu og vildi leiðrétta smá.
Sá sem dró leiðsögumanninn var Einar á 38“ Toy en ekki Stebbi, þó hann hafi staðið sig ótrúlega vel.
Ég læt nokkrar myndir í albúmið (Þegar ég kemst inn til að setja nýjar)og þar má sjá kappann að leik búinn að rífa aurhlífina undan eftir að hann var sokkinn upp að stuðurum.Kveðja
Atli
R-3362
01.02.2005 at 10:50 #514970Sæll E. Harðar
Kælirinn er ca 18 tommur horn í horn og þikktin ca 1-1,5 tomma.
Festingar og slöngur fylgja með og er gert ráð fyrir að hann festist utaná vatnkassann með sérstökum prastfestingum og er sett gúmmí á milli.Einn fróður maður mælti með að útbúa brakket til að festa kælinn á hliðunum og færa hann aðeins frá vatnskassanum til að hann tæki ekki hita frá vatnskassa.
Varðandi kælinguna þá vísa ég á H Jónsson til að svara því.
Síminn hjá þeim er 564 6200
Ég fer í að koma mínum í fyrir helgi (fyrir þorrablótsferðina) ef ég get
Kveðja
Atli
31.01.2005 at 09:28 #514958Sælir
Ég var að kaupa kæli Hjá Bílabúð H. Jónsson og kostaði hún innan við 10þ. og á að duga fyrir trukkana ykkar.Kveðja
Atli
06.01.2005 at 13:52 #510470Sæll Einar
Ég tala við þig þegar þegar þar að kemur og er gott að vita af þessu.
kveðja
Atli
06.01.2005 at 09:58 #510466Sæll Einar
Nú er búið að hlusta bílinn en ekki hefur gefist tækifæri á krufningu. Virðist sem óhljóðin komi úr framdrifinu en ekki millikassanum. Ég talaði við Mosósnillingana en þeir komast ekki í verkið fyrr en í fyrsta lagi eftir næstu viku.Ég hef ekki átt við svona drif og veit ekki hversu skynsamlegt það er að fikta í slíku.
Eru fleiri snillingar sem eru góðir í þessum viðgerðum og sanngjarnir í verðum?
Kveðja
Atli 897-1565
13.12.2004 at 11:06 #510464Sæll Jónas pípari
Ég verð í sambandi við þig þegar ég kemst í að rífa kassann undan og skoða hvað er að.Kveðja
Atli
08.12.2004 at 10:18 #195017Sælir félagar
Er einhver hér sem veit hvort mikið mál sé að gera upp millikassa í Cherokee ’89 sem er farinn að glamra í heldur hressilega (vantar ekki olíu)Kveðja
Atli
22.11.2004 at 08:42 #509248Daginn
Ég lenti í því um daginn að geymirinn dugði ekki til að starta bíl, 2,3l bens, hjá mér 1-2 dögum eftir síðustu notkun en vel innan dags.Fór í Pólar / gúmmívinnustofuna Skipholti og þeir mældu geyminn undir álagi og þá kom í ljós að hann var ónýtur.
Geymar geta verið að sýna þokkalega hleðslu áður en þú startar en dáið þegar startálagið kemur á þá.Á Cherokeenum lenti ég í að hann tæmdi geyminn yfir nótt og var þar um að ræða ónýtar díóður í alternator (mjög algengt).
Prófaðu að taka plúsinn af geyminum og athugaðu hvort hann hrökkvi í gang eftir tveggja daga stopp. Geri hann það er geymirinn allavega í lagi.
Kveðja
Atli
-
AuthorReplies