Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.07.2013 at 13:56 #226354
Góðan daginn,
Ég er að standa í tilraunum með það að reyna að koma lægri hlutföllum í bílinn hjá mér sem að er Mitsubishi L200 – 2006. Ég er með pajero drif með 5.29 hlutföllum og ætlaði að reyna að koma því undir bílinn hjá mér en því miður er það ekki að reynast jafn samvinnu þýtt og ég ætlaði í fyrstu. Ég er því að velta því fyrir mér hvort að hér inni sé einhver sem að hefur sett 5.29 hlutföll í 2.8 túrbó dísel second generation pajero, eða þekkir til þess hvort að það sé mögulegt án þess að leggjast í enhverjar stórfelldar aðgerðir. Það er myndir hér: http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=5&t=19225
28.08.2012 at 11:03 #756269Er einhver sem að selur þetta fluid film hérna heima?
09.12.2011 at 10:28 #743637Ég veit ekki hvort þetta sé það sem þú ert að leita að en þaðan er allavega hægt að panta crawler gear hlutfall í millikassann: 3.15 : 1
http://www.marks4wd.com/products/gearma … -gears.htm
Annars virðist áhrifaríkara að varpa fram spurningum inná http://www.jeppaspjall.is er meira líf í spjallinu þar.
02.12.2009 at 10:00 #669426Ég er að selja þessar felgur ef að þú hefur áhuga,
[img:1gvypboo]http://nemendur.ru.is/arsaelltj02/felg1.jpg[/img:1gvypboo]
[img:1gvypboo]http://nemendur.ru.is/arsaelltj02/felg2.jpg[/img:1gvypboo]
Getur haft samband í arsaell.johannsson (hja) gmail.com, eða 899-2551
30.11.2009 at 18:53 #669406En hvernig er það með þessa 5 mm speisera setur þetta ekki mikið álag á felguboltanna.
25.11.2009 at 21:12 #668146Sindri, ekki lumaru á mynd af þessari grind sem að þú smíðaðir. Það væri gaman að fá að sjá hvernig hún lítur, mér hefur lengi langað nefnilega í grind framan á bílinn hjá mér.
22.11.2009 at 16:38 #667572Ég þakka góð svör, ef að ég finn þetta einhver staðar án þess að þetta kosti mig handlegg og fót þá hugsa ég að ég fari þessa leið.
20.11.2009 at 13:06 #667554En hvernig er það eykst álagið með því að nota þetta eitthvað meira en það sem myndi gerast ef að ég færi í felgur með minna backspace?. Backspaceið á felgunum sem að ég er með er 12 cm ég þyrfti sennilega að fara í felgu með 10 cm eða minna til að þetta myndi sleppa undir hjá mér, sem væri þá hin lausnin fyrir mig.
Já og ein spurning í viðbót, sleppur maður í gegnum skoðun með svona undir?
20.11.2009 at 11:43 #208443Hefur einhver hérna reynslu að nota svona spacera með boltum. Ég keypti felgur til að hafa vetrardekkin hjá mér á en bremsudælurnar rekast í felguna þar sem að hún byrjar að breikka. Þetta er of mikið til þess að ég geti notað standard 40 mm spacera og ég vil helst ekki fara í einhverja leikfimi með rokkinn á bremsudælurnar. Hins vegar rakst ég á svona spacera með boltum á netinu sem að ég held að gæti bjargað mér, þar sem ég vildi helst vilja halda þessum felgum. Er eitthvað sem mælir á móti því að gera þetta svona?
19.11.2009 at 09:28 #208404Sælir,
Hvað er óhætt að setja 14,5 breið dekk á breiðar felgur. Er í lagi að setja slík dekk á 14″ breiðar felgur?
Fylgja því einhverjir ókostir að hafa dekkin á svo breiðum felgum?
17.10.2009 at 19:31 #662168Nýja bodyið kom í Júní 2006 þess vegna það eru einhverjir 2006 bílar með nýja bodyið þar á meðal minn.
Það væri gaman að fá að sjá myndirnar af bílnum hjá þér þegar þú kemst í að mynda bílinn, hef einmitt verið að gæla við það að koma stærri dekkjum undir minn.kv,
Ársæll
16.10.2009 at 11:09 #662164Sæll,
Ég hef allavega verið með tvo mismunandi ganga af 15" x 10" álfelgum á 33" og 35" undir bílnum hjá mér sem að er 2006 árg L200 og það hefur allt passað án vandræða.En þessu ótengt, Hjalti er einhver staðar hægt að sjá myndir af bílnum hjá þér á 37" ?
kv,
Ársæll
03.10.2009 at 12:17 #206999Er einhver sem hefur verið á ferðinni um kaldadal nýlega og getur gefið mér upplýsingar um færið þar?
-
AuthorReplies