You are here: Home / Árni Alfreðsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Þessi umræða snýst ekki um eitthvað "réttlæti" milli efnamikils fólks á dýrum jeppum og annarra sem eiga ekki nema nokkurra milljón króna fólksbíl.
Helstu rök þeirra sem vilja uppbyggðan veg í dag (föstudaginn 16. apríl 2004) er að hann nái EKKI "nema inn að Jökullóni" og þarmeð eyðileggi hann ekki ALVEG ævintýraljómann af Þórsmerkukurferð. Enginn hefur hefur sagt að fólksbíll eigi að komast þarna inneftir (a.m..k. í fyrstu atrennu). Þarmeð eru hrunin þessi svokölluðu "jafnréttissjónarmið".
Málið er hrein rökleysa frá upphafi til enda eins og málflutningur "Óla" nokkurs. Ef hann heldur fram að mótmæli gegn þessarri nokkur hundruð milljón króna framkvæmdum sé einhver deila milli jeppaeiganda og fólksbílaeigenda þá er hann einfaldlega ekki búin fylgjast með umræðunni.
Lestu blöðin og hlustaðu á útvarpið á næstunni. Jafnvel hörðustu jeppaandstæðingar eiga eftir steinþagna þegar hið sanna kemur í ljós.
Það er hins vegar alveg ljóst að ferðaklúbburinn 4×4 ætti að fara sér mjög hægt í að gefa út háværar yfirlýsingar um þetta viðkvæma mál. Best er sígandi lukka eða eins og afi gamli sagði og keyrði "það er betra að fara hægt og hafa það"
Kv. alfur