Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.09.2008 at 23:08 #628870
Alveg rétt, þetta sár sem Hlynur talar um hefur einmitt mikið verið til umræðu í sveitinni. Þarna er einnig gömul malarnáma í Fagrafellinu, lýti sem aldrei verður hægt að laga. Ég held að það skynsamlegasta sem hægt væri að gera væri að halda áfram með námuveginn þvert yfir Hamragarðheiðina (ofan við Efra Klifið), niður hálsinn norðan við Gljúfurána og niður milli námunnar og svöðusársins. Ekkert af þessu sést frá þjóðveginum og ekkert af þessu ber í Seljalandsfoss. Þarna er hvort eð er búið að valda óafturkræfum skemmdum. Námuvegurinn kemur þá niður á námkvæmlega sama stað og búið er að ákveða (við Kattarnefið) og þetta er ekki lengri leið fyrir verktakann.
Kv. Árni Alf.
PS Bendi einnig á grein í Mogganum í dag um þessi mál . Kannski einhver tölvutækur vippi henni hér inn.
12.09.2008 at 22:19 #628866Rétt svona til að upplýsa menn þá er ekki hugmyndin að loka námunni þegar framkvæmdinni Bakkafjöruhöfn verður lokið. Þörfin fyrir grjót er mikil á svæðinu t.d í viðhald og viðbætur varnargarða. Þetta verður því grjótnáma framtíðarinnar. Gular Búkollur í bakgrunni Seljalandsfoss er kannski bara það sem við eigum eftir að venjast.
Kv. Árni Alf.
11.09.2008 at 09:02 #628862Tel mig vera með skástu lausnina á málinu úr því sem komið er að því tilskildu að ekki hafi verið ruðst lengra en niður í Efra Klifið (Mynd 4). Veit einhver núverandi stöðu? Þar yrði ekki farið gegnum hraunið heldur um svæði sem mun auðveldara er að lagfæra. Leiðin er ekki í baksviði Seljalandsfoss. Leið verktakans niður á Markarfljótsaura lengist ekki.
Kv. Árni Alf.
09.09.2008 at 18:50 #628852Fyrir tæpum fimm árum skrifaði ég grein í Moggann Hraðbraut inn á Þórsmörk. Sú grein vakti athygli og umtal rétt eins og nú á sér stað. Málsatvik voru þau að hafin var gerð uppbyggðs vegar inn á Þórsmörk. Þegar ég frétti af því var verkið löngu hafið og öll tilskilin leyfi fyrir hendi. Þetta fór allt afskaplega leynt eins og Vegagerðinni er vant. Hinn nýi vegur hefur hins vegar ekki farið tommu lengra eftir að greinin var birt. Samt eru til peningar í potti í framkvæmdina.
Ég er nú ekki svo óraunsær að halda að ég stöðvi framkvæmdina Bakkafjöruhöfn enda það alls ekki ætlunin. Það er hins vegar alveg þess virði að vekja athygli á þessu máli öllu. Þarna fer saman hin alræmdi laumupúkaháttur og hraðamet í afgreiðslu hinna ýmsu stofnana.
Mergur málsins er hins vegar hvernig staðið er að veglagningunni á heiðinni. Þar er augljóslega ekki farið að settum reglum. Það er allt til þess vinnandi að fá vinnubrögðum og veglagningunni breytt. Mér finnst það mjög athyglisverðar upplýsingar að vegurinn eigi að verða 13 -15m breiður. Hvernig afmá menn svo ýtusár í hrauni? Með því að bera á?
Svo eiga menn inni skýringar á af hverju svo mikið beri í milli þess sem raunverulega er gerast á heiðinni og því sem fram kemur t.d. í skýrlsu Skipulagsstofununar. Það er eitthvað mikið bogið við þetta mál. Kallar þetta ekki á að stöðva framkvæmdir og málið sé skoðað nánar?
Kv. Árni sem ekki sér skóginn fyrir trjánum og vonast til að hafa rangt fyrir sér.
08.09.2008 at 17:56 #628812Það skal engan undra að þið sjáið ekkert, þeir eru ekki komnir svo langt niður heiðina.
Árni Alf.
07.09.2008 at 20:54 #628806Ef litið er á mynd 1 þá kemur Tröllavegurinn til með að liggja beint niður gróna hraunbrekkuna aðeins til vinstri við fossinn. Það er útilokað annað en að menn taki eftir þessu sári. Þetta hljóta menn að sjá þó myndin sé léleg. Þetta mun verða sérstaklega áberandi seinni part dags. Ég er því ósammála settum sveitarstjóra Rangárþings Eystra að þetta komi ekki til með að sjást.
Það sem af er framkvæmdinni hefur verktakinn nánast hvergi fylgt slóðanum eins og glögglega sést á myndunum t.d. mynd 7. Þetta er einfaldlega beint strik stystu leið niður heiðina. Það er ekkert gert til að milda áhrifin. Á mynd 4 er horft niður Neðra Klifið (þar sem framkvæmdum var frestað af einhverjum ástæðum) sést greinilega að það á að fara beint af augum. Eðlilega sparar verktakinn sér ómældar milljónir á því að hafa þetta svona en er eðlilegt að það sé það sem hafa á að leiðarljósi?
Kv. Árni Alf.
P.S. Er nía ekki nítíu tonn? Það er fullt af ýtum á svæðinu.
07.09.2008 at 20:54 #628804Ef litið er á mynd 1 þá kemur Tröllavegurinn til með að liggja beint niður gróna hraunbrekkuna aðeins til vinstri við fossinn. Það er útilokað annað en að menn taki eftir þessu sári. Þetta hljóta menn að sjá þó myndin sé léleg. Þetta mun verða sérstaklega áberandi seinni part dags. Ég er því ósammála settum sveitarstjóra Rangárþings Eystra að þetta komi ekki til með að sjást.
Það sem af er framkvæmdinni hefur verktakinn nánast hvergi fylgt slóðanum eins og glögglega sést á myndunum t.d. mynd 7. Þetta er einfaldlega beint strik stystu leið niður heiðina. Það er ekkert gert til að milda áhrifin. Á mynd 4 er horft niður Neðra Klifið (þar sem framkvæmdum var frestað af einhverjum ástæðum) sést greinilega að það á að fara beint af augum. Eðlilega sparar verktakinn sér ómældar milljónir á því að hafa þetta svona en er eðlilegt að það sé það sem hafa á að leiðarljósi?
Kv. Árni Alf.
P.S. Er nía ekki nítíu tonn? Það er fullt af ýtum á svæðinu.
05.09.2008 at 16:24 #628794Var að koma í bæinn af Hamragarðaheiðinni. Verktakinn hefur hafa haft fyrir því að keyra 90 tonna ýtuna alla leið niður af heiðinni í gærkveldi eða nótt og stendur hún nú á varnargarði við Kattarnefið. Það hlýtur eitthvað að vera að. Hver hættir í miðju verki á 90 tonna ýtu? Ég hélt að menn hefðu þessu tæki gangandi dag og nótt. Mig grunar að það sé komið eitthvað bakslag í þetta því leyfi séu ekki fyrir hendi. Eða menn vilja ekki hafa hana að störfum um helgina vegna umtalsins.
Það breytir því ekki að skemmdirnar sem hún skilur við sig eru miklar. Nú þarf að vinna hörðum höndum í að fá þessari veglagningu breytt allverulega þannig að fossinn beri sem minnstan skaða.
Kv. Árni Alf.
05.09.2008 at 00:53 #628786Ég er á því að eðlilegast sé að stöðva framkvæmdir meðan botn fæst í það hvort það sé leyfi fyrir þessu eins og þetta lítur út. Það hlýtur að vera eðlileg og sanngjörn krafa.
Ég heyrði þá kjaftasögu að Suðurverk væri bæði hönnunaraðilinn og eftirlitsaðilinn í verkinu þarna á heiðinni. Það er bara kjaftasaga en mér finnst eðlilegt að ráðamenn stöðvi framkvæmdir og menn setjist í rólegheitum niður og finni skástu leiðina út úr þessu. Ef verkið heldur áfram þá erum við að tala um verulega breytta ásýnd Seljalandsfoss eftir nokkra daga, jafnvel fyrr.Kv. Árni Alf.
05.09.2008 at 00:37 #628782Þessi álit Skipulagsstofnunar er gefið út þann 26 júní s.l. Skýrslan virðist unnin með miklum hraði enda að finna villur og misræmi í henni. Í niðurstöðu skýrslunnar má lesa að helstu neikvæðu áhrif framkvæmdarinnar séu neikvæð áhrif á fuglalíf í Landeyjum. Ég er svo sem ekki að gera lítið úr því.
Í skýrslunni kemur reyndar fram að " vegslóði að námusvæðinu verði meira áberandi í landslaginu þegar búið verði að breikka hann og laga hann til".
Svo mörg voru þau orð.
Hvergi er minnst á Seljalandsfoss.
Ég get hvergi fundið neitt beint frá umhversfisstofnun en þeir eru eingöngu umsagnaraðili.
Hér er því ekki um eiginlegt umhverfismat að ræða skv. mínum skilningi. En það er reyndar ekkert að marka, ég skil ekkert í þessu skriffinnskubákni öllu.
Kv. Árni Alf.
04.09.2008 at 18:41 #202871Var að koma ofan af Hamragarðaheiði. Hvet fólk til að fara þangað um helgina og virða fyrir sér óhæfuverkin sem þar er nýbyrjað að vinna. Staldra fyrst við Markarfljótsbrúna og virða fyrir sér hvernig Seljalandsfoss kemur til með að líta út eftir að tröllvaxin vegur niður miðja hraunbrekkuna (Neðra Klifið) kemur til með að bera beint í Fossinn. Svo geta menn farið nokkra kílómetra inn heiðina að Efra Klifinu en svo nefnist þrengsti og einn fallegasti hluti hrauntungunnar. Þar stendur 90 tonna ýta frá Suðurverki sem hefur nýlokið við að svo til gereyðileggja Klifið. Vegurinn kemur augljóslega til með að verða dálítið breiður. Til hliðar við hann má sjá gamla slóðann eins og maur við hliðina á fíl.
Skv. þeim litlu gögnum sem ég hef komist yfir þá heitir þetta uppbygging á vegslóða og hefur þar með ekki þurft að fara í umhverfismat. Þetta er hins vegar ekki uppbygging vegslóða. Það er búið að stika fyrir hinum nýja vegi og hann liggur þráðbeint frá Efra Klifinu niður Neðra Klifið. Gamli vegslóðinn er ekkert þráðbeinn. Alvarlegast er þetta í Neðra Klifinu þar sem nýi vegurinn liggur ca. 100 m frá gamla slóðanum í miðju Klifinu. Vegna þess hve fara á beint niður Klifið þá verður skaðinn sem Seljalandsfoss ber miklu meiri. Hugsanlega er ekki einu sinni leyfi fyrir þessu. Ég hef reynt að ná tali af hinum ýmsum aðilum sem hafa með þetta að gera í allan dag en ég næ ekki í neinn og enginn svarar skilaboðum. Gerir málið tortryggilegt.
Best væri að hægja á framkvæmdum (þvælast fyrir ýtunni), helst stöðva þær, þangað til komið er á hreint að það sé leyfi fyrir því að eyðileggja ásýnd frægasta foss landsmanna. Það er nefnilega hægt að bjarga miklu með því að færa fyrirhugað vegstæði til.
Kv. Árni Alf.
P.S. Annars vitna ég í grein mína úr Moggannum frá í gær. Kannski einhver betri tölvumaður en ég geti komið henni hér inn á spjallið.
13.07.2008 at 17:09 #625530Fór úr Laugum niður Krakatindaleið og inn á Þórsmörk í gær. Einn skafl var á Krakatindaleið en annars fín færð. Við Þórólfsfell er verið að vinna að vegbótum. Fór þarna s.l. fimmtudag og þá höfðu tvær risagröfur nýlokið við að hemja streng úr Markarfljótinu sem annars leggst að Fellstánni (rani úr Þórólfsfelli). Annars væri ófært þarna.
Lítið í vötnum eins og áður sagði en auðvitað er hægt að fara sér að voða ef vitinu er ekki fyrir að fara.Kv. Árni Alf.
P.S. Einn rosalega vitur
10.07.2008 at 00:41 #625526Var að koma innan af Þórsmörk rétt áðan. Mjög lítið í öllum ám þrátt fyrir hlýindi í dag. Þó er komin litur á Krossána. Rétt hjá Brjóti að Fljótið sjálft er sæmilega vatnsmikið. Það er til lítils að vera að þvælast þessa leið ef ófært er fyrir Þórólfsfellið. Hefur einhver betri upplýsingar hvort það er alveg ófært fyrir Fellið? Upplýsingar væru vel þegnar.
Kv. Árni Alf.
07.07.2008 at 20:47 #625520Í sjálfu sér góðar fréttir að þarna sé talsverður snjór ennþá. Hef nú verið að fara aðra hvora leiðina á sama tíma á óbreyttum bíl undanfarin ár á sama tíma. Leiðinlegt að þurfa að fara aftur niður á malbikið til að komast inn á Mörk á laugardaginn. Kannski rétt að huga að öflugri fararskjóta. Það verður ekki bæði sleppt og haldið.
Kv. Árni Alf.
06.07.2008 at 22:37 #202640Veit einhver um færð á þessum leiðum? Er einhver snjór þarna? Erum á óbreyttum bílum og þurfum að komast á sem skemmstum tíma úr Laugum niður að Álftavatni á laugardaginn.
Kv. Árni Alf.
27.06.2008 at 18:28 #202602Lyst monnum ekki bara vel a ad keyra af malbiki beint i snjo thegar fardid er a Eyjafjallajokul?
Thegar efnistakan fyrir Bakkafjoruhofn hefst a Seljalandsheidinni, tharf ad fara um Hamragardaheidina. Vondandi tharf ekki ad breyta vegstaedinu en mig grunar ad menn neydist til thess. A.m.k. tharf einhverjar vegbeatur enda gridarlegir efnisflutningar tharna. Hugsanlega ad thad thurfi uppbyggdan veg og thad malbikadan. Vondandi fara menn varlega og viti svo skemmdirnar verdi sem minnstar. En jafn osnortid og adur verdur Hamragardaheidin ekki.
Kv. Arni Alf.
25.04.2008 at 16:41 #621464Keypti Terrible Green af Kristjáni síðsumars 1987. Var þó oftar kallaður Ugly green eða bara Ljóti Grænn í mín eyru. Bíllinn stóð á bílasölu inn í Skeifu þegar ég prófaði hann. Eitthvað vafðist fyrir mér þetta lóló dæmi enda stöngin sem lá niður í aukamillikassann dálítið spes. Þegar komið var út á Miklubraut fór tækið frekar hægt yfir og löng röð byrjuð að myndast aftan við mig. Til að ráða bót á þessu ætlaði ég að kúpla og skipta um drif. Bíllinn var sjálfskiptur en ég vanur beinskiptu og því með vinstri fót á bremsunni. Fór ekki betur en svo að ég klossnegldi niður og bíllinn (sem bremsaði eitthvað skakkt) lenti þvert fyrir báðar akreinar. Frekar sneipuleg byrjun. Seldi hann 1989 og var hann fljótlega sprautaður rauður. Veit nokkur hvað varð af þessu apparati, hvort hann sé til ennþá? Bíllinn, breytingarnar og saga hans ættu í raun heima á safni.
Kv. Árni Alf.
16.01.2008 at 15:14 #201632en þegar menn komu til vinnu í Bláfjöllum kl. 6 í morgun voru þrír jeppar á svæðinu. Hurfu þeir fljótlega (líklega allt toyotur). Stuttu síðar kom í ljós að troðnar skíðaleiðir á svæðinu voru útspólaðar. Nógu erfitt var að fara á vélsleða um svæðið með þessi djúpu för hvað þá skíðum eins og ég þurfti að gera.
Þessir aðilar hafa haft fyrir því að hleypa úr og keyrt svo langt upp í fjall eftir troðnum brautum. Utan brauta er ekki fært vélsleðum svo þetta er kannsi skiljanlegt.
Frekar dapurt því þetta skapar hættu auk þess að vinna þarf svæðið aftur.
Kv. Árni Alf.
07.01.2008 at 01:30 #609276Væri séns að fá upp mynd af jöklinum og leiðirnar sem menn hafa verið að fara? Örnefni er dálítið á reiki og ég er ekki alveg viss um að við séum að tala um sama svæði. Allavega þá væri fróðlegt að fá að sjá hvar menn hafa verið að dóla sér.
Kv. Árni Alf.
07.01.2008 at 01:14 #609260Veit nú ekkert nákvæmlega hvar verið er að huga að námu eða námum. Það var a.m.k. boruð tilraunahola fyrir neðan Tröllagilið (rétt hjá löngu brekkunni þar sem ruddi slóðinn endar). Á heiðinni eru nokkrir þekktir staðir með hörðu bergi. Þetta mál er væntanlega komið mjög langt. Gaman væri að fá meiri upplýsingar því það hljóta nú einhverjir að vita meira um þetta.
Líklega verður þetta svipað og á Þórsmerkursvæðinu þar sem ruðst er í gerð uppbyggðra vega og varnargarða og það virðist ekkert af þessu þurfa að fara í nokkurt umhverfismat eða fá umsögn svo hátt fari. Það er bara farið með þetta eins og mannsmorð.
Kv. Árni Alf.
-
AuthorReplies