Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.01.2005 at 22:03 #514742
Þetta er sama vél og í Masda B2600 , en það þarf að smíða stýringar fyrir gírkassann.
Notaði um tíma vél úr Pajero í Mösduna þurfti að bora fyrir festingum fyrir gírkassann í blokkina . Á bæði þessa gömlu blokk og nothæft hedd, Er nýlega búin að taka Mösduna af skrá vegna ryðvandamála, en þar er nýlega upptekin neðrihluti á vél.Aflið í 2600 vélinni er svona þokkalegt en eyðslan í hærri kantinum 20-24 l í snatti en 12-16 l í lengri akstri. Notaði bílin á 31? og33? .Þetta eru blöndungsbílar hef trú á að yngribílarnir með beinu innspýtinguna séu kraftmeiri og eyðslu grennri.
Óli Hall
26.01.2005 at 09:04 #512758austan ( Austurlandsdeild ) er áhugi á að verða með a.mk. einn hóp. Kemst því miður ekki með sjálfur, verð í ferð á öðrum jökli á sama tíma.
En Þórir Gíslason ?Hrollur? GSM 894-2026 er tengiliður deildarinnar við ferðina þannig að skráið ykkur sem fyrst hjá Þóri, það veitir ekki af tímanum til skrafs og ráðagerða.
Óli Hall
22.01.2005 at 02:19 #514312Ég var með Patrol 1999 2,8l og gerði ég tilraun með Hiclone.
Ég var einungis með túrbó þrýstingsmæli þegar tilraunin fór fram,umfram standard mælana. Þar sem 2,8l vélin er fremur slöpp á lága snúningnum og til bóta fyrir afl vélarinnar að fá túrbínuna inn á lægri snúning vildi ég prufa Hiclon-ið
Var ekinn sama brekkan skipt í 3 gír á 1000snm á nákvæmlega sama stað og olíugjöfin stigin í botn.
Er skemmst frá því að segja að túrbínan byrjaði að blása fyrr með Hiclone eða 300-400snmin fyrr. Mig minnir að það hafi verið nálægt 1300-1400sn min.
Síðar fór ég að nota aðra gerð af loftsíu þá breyttust þessar snúningshraða tölur.
Ég gat aldrei séð olíusparnað með Hiclone með óyggjandi hætti. Einnig er hæpið að tala um aflaukningu nema á þeim snúningshraða sem túrbínan snerist ekki á áður.
Kraftakveðja
Óli Hall.
21.01.2005 at 01:06 #514012Tek undir með síðustu ræðumönnum,Hef séð svona mjóar felgur notaðar á bensínstöðvum til að hringa loftslöngurnar uppá.
En að öllu gríni slepptu það er best að prufa sig áfram sjálfur hvað hentar þér og þínum bíl, ef þú ætlar að kaupa þér felgur byrjaðu frekar í breiðari gerðinni það er alltaf hægt að mjókka. Verra að breikka þegar kantarnir eru sniðnir fyrir mjóu felgurnar.
kv
Óli Hall
20.01.2005 at 18:32 #514034Sælir. Léttari bílar svo sem Hilux geta notað mjórri felgur. En annars eru reymskífur yfirleitt settar framan á vélar og þar virka þær fínt
kvÓli Hall
17.01.2005 at 12:57 #506740Þettað stemmir hjá Óskari, síðan er það rafmagnið ef þú ert með bíl með TDI6(Tölvustýrð).
Óli Hall
16.01.2005 at 13:41 #506730Þeir sem eiga Patrol og hafa í alvöru hugsað um vélarskipti eru væntanlega búnir að kynna sér verð á notuðum vélarhlutum úr Patrol.
4,2 Nissan passar alls EKKI í L200.Góðar kveðjur
Óli Hall.
16.01.2005 at 10:49 #506724Rétt að taka fram að er á lágum hlutföllum og eyðslan fer alveg eftir ferðahraða 16-20 í vegaakstri, reyndar eru nokkrir fjallvegir inn í því. Er með 3? púst. Það er rétt við erum ekki byrjaðir að fikta við stillingar, um fram það sem framleiðandi túrbósettsins gefur upp.
Verðið er ca. fjórfalt það sem fæst fyrir dótið sem var tekið úr, ef það selst.
Kv
Óli Hall
16.01.2005 at 00:42 #506720Þá er hún komin í 4,2 Nissan.
Eiðsala svipuð í vega akstri en tog langtum meira á lágum snúningi. Afl svipað sérstaklega í vega akstri, á háum snúning, viðbragð minna. 4,2 Nissan stórlega ofmetin 2,8 stórlega vanmetin, prýðis vél sem gerir heilan helling miðað við lítrafjölda.
Nú vantar mig bara Patrol, eldra boddý, með ónýtri vél og gírkassa til að búa til alvöru bíl.
Breytinga kveðja
Óli Hall
18.12.2004 at 11:33 #511292Sæll
Legurnar í gírkassanum eru farnar að slappast, hugsanlega komið endaslag í kassann.
Þegar olían er orðin heit, þynnri, heyrist í kassanum. Ef þér leiðist hljóðið getur þú sett 1-2 túpur af Moly Pasta á kassann, það dregur úr leguhljóði, fæst í Olís.
En það er mun hagkvæmara að taka kassann áður en allt er hrunið.
Góðar stundir
Óli Hall
04.11.2004 at 11:57 #507790Þessi er til sölu, er með öllu. Hugsanlega ódýrasti kosturinn.
https://old.f4x4.is/auglysingar/lesa.asp?a=17337Gangi þér vel
kv
Óli Hall.
31.10.2004 at 14:12 #194760Ágætu félagar við viljum vekja athygli ykkar á að Húsavíkurdeild hefur boðið okkur á félagsfund, á Húsavík næstkomandi laugardag. Upplýsingar gefur Þórir Gíslason í síma 894 2026 eftir kl. 17.00
Hafið samband við Þóri vegna ferðatilhögunar.
Kíkið á..http://www.simnet.is/f4x4aust/
Stjórn Austurlandsdeildar.
29.10.2004 at 17:17 #507300Túrbína fyrir 4,2 Nissan heitir Garret T3.
Talaðu við Ísleif í Túrbó hann hefur alla vitneskju um hvað þarf.
kv
Óli Hall.
22.10.2004 at 19:00 #506680Í þessari stöðu er allt dýrt umþb. 1miljón +. Síðan er spurning hvað hægt er að selja af gamladótinu. 6,5 er nær ófáanleg nema eknar 150-200 þkm síðan er 4,2 Nissan sem er frekar dýr kostur yfir 800 kallinum m. túrbó & intercooler. Það hefur verið sett 4,2 Toyota í svona bíla með góðum árangri.
PBG nei ég veit ekki hver munurinn er í kílóum.
22.10.2004 at 00:41 #506750Brettakantar.is
Gunnar Ingvi var að laga kanta fyrir 38" L 200 á dögunum.
Óli Hall.
22.10.2004 at 00:36 #506668Þakka PBG fyrir svarið.
4,2 er nokkru þyngrien 2,8 en aðal munurinn er í gírkassanum. Það verður að skipta um gírkassa. Veit um einn sem notaði Nissan kassan við 6,5 disel, það voru nýar legur á 1þ km fresti.
Óli Hall
21.10.2004 at 20:52 #506650Kunningi minn hringdi í mig og sagðist hafa heyrt að 4,2 Nissan væru alveg steindauðar í samanburði við 4,2 Landcruser.
Hann sagðist ekki hafa reynslu sjálfur getur þetta staðist??Endilega segið frá ykkar reynslu.
kv
Óli Hall
21.10.2004 at 20:03 #194707Sælir.
Í mars 2003 var hér þráður sem fjallaði um 4,2 Nissan Patrol vélar. Þá voru einhverjir nýlega búnir að setja túrbó og intercooler við vélarnar.
Nú væri gaman að frétta af því hvort vélarnar hafi ekki reynst vel og eins um eyðslutölur?
Hefur afl vélana staðið undir væntingum?
Hafa verið erfiðleika í bifreiðaskoðun vegna mengunarmælingar??Er sjálfur að hugsa um að fara þessa leið, 4,2 í stað 2,8.
Kv
Óli Hall.
10.07.2004 at 11:18 #504138Sælir félagar.
Ég hvet þá sem ætla á Sumarhátíðina til að skrá sig sem fyrst, það auðveldar okkur mikið að hafa fjölda gesta nokkuð á hreinu.
Samkvæmt nýjustu framtíðarspám má búast við sunnan og suðaustanátt, sem er bara gott.
Kveðja
Austurlandsdeild.
24.06.2004 at 23:37 #504134Sælir góðir félagar.
Aðeis til upplýsingar!!!
Þar sem borið hefur á að félögum finnist langt austur á land skal á það bent að það er jafn langt frá Rvk og austur og að austan til Rvk.
Það var ákvörðun síðasta Landsfundar sem var haldinn í Setrinu í haust sem leið að halda Sumarhátíðina 2004 fyrir austan.
Varðandi dagsetningu hátíðarinnar þá voru tilmæli til okkar í Austurlandsdeild að halda hana hálfum mánuði fyrir Verslunarmannahelgi, samkvæmt venju.
Nú þegar er fólk farið að bóka sig á hátíðina víða af landinu.
Gott væri ef fólk tiltæki hversu mörg börn eru í skráðum fjölda.Hátíðar kveðja
Óli Hall.
-
AuthorReplies