Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.08.2007 at 18:01 #595436
Sæll Axel.
Ég fékk þó nokkur símtöl til mín á skrifstofu 4×4 þegar Bílanaust varð N1 um það hvort við fengjum áfram afslátt.
Ég hafði samband við þá og staðið verður áfram við þá samninga sem 4×4 hafði.
Þetta var einnig rætt hér á pjallþræði.
Gott að menn séu vakandi yfir ef við erum ekki að fá eitthvað sem á að vera.
Þannig að þó þú hafir haft samand er það bara gott mál.
Oft betra að ganga í hlutina og fá svör heldur enn að sitja út í horni og tuða og jafnvel búa til eitthver svör…..
Vonum að tölvukerfið hjá þeim lagist svo við fáum þann afslátt sem á að vera.
kv
Agnes Karen Sig
Formaður f4x4
23.08.2007 at 17:08 #595248Hvað er þetta með ykkur feðgin.
Lítill fugl tjáði mér að þú hefðir líka sokkið í drullu.
Er þetta í genunum.
kv
Grimmhildur.
16.08.2007 at 10:14 #200652Góðan dag fékk þetta á maili og fannst þetta eiga heima hér á spjallinu.
kv
AgnesNúna næstu helgi 18 – 19 verður svoköllluð vitahelgi Íslenskra Radíóamatöra. Þá safnast amatörar víða um heim við hina ýmsu vita og hafa samband sín í milli. Íslenskir amatörar verða við Knarrarósvita sem er staðsettur rétt fyrir austan Stokkseyri. Nokkrir 4×4 félagar hafa nú þegar orðið sér úti um amatör réttindi og því alveg tilvalið tækifæri fyrir þá og að sjálfsögðu alla sem áhuga hafa á að líta við.
kv
73 de TF3LL Georg Magnússon
15.08.2007 at 21:55 #594698Hvað er í kaffinu þínu.
Harðjaxl við fæðingu….
kv
Grimmhildur….
15.08.2007 at 21:44 #594694þetta minnir á ræðu sem ég heyrði á einni gleði 4×4.
Sá sem hélt hana var búin að drekka eitthvað sem ruglaði hann í ríminu.
Jón hvað eru búin að drekka marga kaffibolla í dag.
kv
Grimmhildur
15.08.2007 at 17:53 #594690Sæll.
Þetta hefur alltaf verið vandamál að hafa opið hús yfir sumarið.
Félagsmenn eru í sínu sumarleyfi.
Ekkert mál er ef einstaka félagsmenn hafa áhuga á að taka að sér að hafa opið hús.
kv
Agnes
08.08.2007 at 15:41 #594444gjaldið færðu endurgreitt, þegar lykkli er skilað.
kv
Agnes
06.08.2007 at 13:13 #594440Já lykklarnir kosta kr 5000 stk.
Þar sem þetta eru masterlykklar, ganga að setrinu og árbúðum
kostar kerfið töluverðan pening. (ekki 500 kr stk)
Þetta er einnig gert til að fá menn og konur til að passa lykilinn sinn.
Hver og einn er ábyrgur fyrir sínum lykkli og eru allir lykklar skráðir hjá okkur.
Týndur lykill glatað fé.
kv
Agnes
31.07.2007 at 13:07 #594166Samkvæmt áræðanlegum heimildum er búið að blása málið af.
Ekki verður kært í þessu máli.
Kv
Agnes Karen Sig
Formaður 4×4
31.07.2007 at 11:53 #200598Opið hús fellur niður á fimmtudaginn 2 ágúst.
Stjórn 4×4
27.07.2007 at 16:33 #200584Er eitthver á leið í setrið.
Barbara þarf að fá aftari hjöruliðskross í bílinn (musso) fæst í stál og stönsum.
Getur eitthver verið í bandi við Barböru sími
Og bílabúð Benna 6412018.
kv
Agnes
27.07.2007 at 13:20 #594064Já þetta virðist alltaf vera smá vandamál yfir sumarið.
Því miður.
Kv
Agnes
25.07.2007 at 17:47 #593892Já sumir sætta sig einfaldlega ekki við staðreindir.
Og þá er best að halda því fram að lögin standist ekki.
Mæli með því að sýsli fari í kennslu hjá Jóni í undirbúning.
Þú hankar Jón ekki í bælinu þegar eitthver mál eru, hann vinnur heimavinnu og það vel og einnig Dagur Braga.
Sýsli lenti bara hreinlega á mönnum sem voru með allt á hreinu og að aka á slóða er ekki utanvega akstur.
Það er kanski eitthvað sem hann sýsli æti að skoða áður en hann dæmir lögin. Það er sjálfsagt rólegt hjá honum þessa dagana.
kv
Agnes Karen
22.07.2007 at 23:26 #593362Ég vil þakka 4×3 á flugi fyrir frábæra sumarhátíð.
Og öðrum sem komu að helgini.
Skipulagningin var alveg 100%
Þakka einnig öllum félögum sem mættu fyrir góða helgi.
Agnes Karen Formaður
Benni og Andrea Lind
20.07.2007 at 13:54 #593348Vorum að tala við Írisi , bara geðveikt gott veður 20 stiga hiti , það er ekkert annað en að hunskast af stað og ´mæta á svæðið. sjáumst hress og kát kv. Grimhildur
19.07.2007 at 14:58 #593334Íris og co eru mætt í Víkina og eru bringu hárin hennar Írisar að bráðana undan sólini að mér skilst.Maggi hefur ekki undan að smirja sólavörnini á gelluna….
Allavega það er ekki rigning í Vík og samkvæmt nýjustu spám er Vík einn af fáu rigningalausu stöðum um helgina.
Ekkert annað að gera enn að henda draslinu í drusluna og renna af stað.
Ef það vill svo ótrúlega til að það komi skúrir er búið að fá inni í félagsheimili þeirra Víkverja.
Sjáumst í bana stuði Agnes, Benni og Andrea Lind.
sjúddirariró sjuddirariró allir í stuði…………………..
p.s er ekki búin að opna (hvað),,,,,,, 😉
17.07.2007 at 13:33 #593310Okkur vantar aðstoð við að ferja mat og dót á sumarhátíðina.
Það sem þarf að sækja er Pylsubrauð hjá Mylluni
það þarf að sækja fyrir kl 14.00 á föstudag.Grillkol og dót á Shell Smáralind (tengiliður Jóna)
á fimmtudag eða föstudag.Vinsamlegast verið í sambandi
Agnes 8974427.
14.07.2007 at 23:26 #593268Vorum að koma aftur á klakann (sólina) Frá Tyrklandi og að sjálfsögðu mætum við.
Agnes, Benni og Andrea LInd.Hvar eru allir deildirnar.
Eyjafjarðar
Húsavík
Vesturlands
Suðurnesjadeild og flr…….
það ætluðu allir að mæta þegar ég fór í heimsókn.Benni Akureyringur hummm á ekki að mæta.
Heimsgir, gáfaðir, rottur, trúðar……
kv
Agnes karen
20.06.2007 at 18:00 #592660Þar sem klúbburinn verður 25 ára á næsta ári væri gaman að fá ljósrit af greinum sem hafa komið í blöðum ef menn og konur hafa slíkt undir höndum.
kv
Agnes Karen
14.06.2007 at 13:59 #592072Sæl Agnes
Við Olga mætum í Mörkina eins og vant er, viltu skrá okkur.Kveðja
ÁsgeirSet þau á listan.
kv
Agnes karen
-
AuthorReplies