Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.05.2003 at 22:54 #472884
Nú kem ég ekki myndum inn og get ekki breytt albúminu mínu á neinn hátt. Skilaboðin sem ég fæ eru eftirfarandi:
Fatal error: No such file “ in /webs/kjolur.f4x4.is/photoalbum/photoalbum.class.php on line 22
Umsjónamenn síðu, getið þið kippt þessu í liðinn takk
kveðja
Agnar R-3104
04.05.2003 at 23:11 #473086Sælir
Þessi leið er vel greið (fór hana í dag 4. maí), ísinn er glerharður og ósléttur. Það væri ábyggilega hægt að komast upp á hábungu þarna megin frá á fólksbíl
Ég veit ekki hvort þig vantar ennþá punktana Benni, sendu mér meil ef svo er!
kveðja
Agnar
29.04.2003 at 17:09 #472982Kæru félagar
Ég þakka fyrir skjót og greinagóð svör.
p.s. skemmtilegar myndir hjá þér HelgiBestu kveðjur
Agnar
R-3104
29.04.2003 at 14:09 #192543Sælir félagar
Hefur einhver rennt upp eftir að Eyjafjallajökli hjá Seljalandsfossi nýlega?? Hvernig eru aðstæður??
Veit einhver hvernig vegurinn inn í Mörkina er, einhverjir vatnavextir??
m.b.k.
Agnar
R-3104
27.04.2003 at 21:42 #472850Sælir allir
Er að spá í að fá mér breiðara púst í Pattann minn og hef áhuga á að vita hvaða álit hafa menn á því að 2,5" púst skili sömu aflaukningu og 3", bara með minni óhljóðum?
Baddi, eru mikil læti í bílnum hjá þér frá 3"?
kveðja
Agnar
R-3104
17.04.2003 at 19:08 #472568Sælir
Leiðrétting, þetta átti að vera 3.2 til 4.3 kg við 2.300 snún
Ég athugaði þrýstinginn hjá mér í morgun og fékk:
a)4-5 kg kaldur
0-1 kg heiturb)6-7 kg kaldur
2-3 kg heiturkveðja
Agnar
16.04.2003 at 21:43 #472566Sæll Jói
Minn (´91 módel) er að sýna 0 eða lítið eitt fyrir ofan í hægagangi en vel yfir 4 kg í 3.500 snún.
Ég var í miklum pælingum ekki alls fyrir löngu varðandi þrýsting þegar ég var að versla mér minn Patta (´91 módel) og eftir miklar vangaveltur og fyrirspurnir hér og þar þá varð niðurstaðan sú að þrýstingurinn í hægagangi væri ekki það sem skipti endilega mestu máli heldur á snúning (skoðanir varðandi þetta atriði eru mjög mismunandi). Viðmiðunin sem ég fékk var að í 3.200 snún. ætti hann að vera á bilinu 3.3 til 4.1 kg. Ég er búinn að skipta um olíuþrýstingspung og við það varð mælirinn mun nákvæmari. Best er auðvitað mæla þrýstinginn beint en það er lítið mál.
kveðja
Agnar
15.04.2003 at 11:24 #472482Það er til fyrirtæki á Íslandi sem heitir Trackwell en þeir hafa boðið að undanförnu upp á forrit sem getur rakið gsm síma í Bretlandi (ætlað fyrir foreldra til að finna börnin). Þeir gætu e.t.v. haft einhverjar lausnir fyrir íslenska markaðinn……
Spurning um að það sé nóg að hafa sendi af einhverju tagi í bílnum!
AB
18.03.2003 at 13:16 #471028Sælir
Nú veit ég að góður maður hér í bæ á grænan Pajero Sport og er nýbúinn að breyta honum fyrir 36". Hvort þetta er einn og sami bíllinn veit ég ekki en hann er skratti reffilegur….
kv
AB
13.03.2003 at 23:18 #470698Sælir allir
Þar sem ég er nú nýr félagsmaður í klúbbnum (alveg grænn) þá veit ég ekki alveg hvað 4ferða helgin er! Er þetta einhver skipulögð ferð/ir sem allir félagsmenn geta tekið þátt í?
P.s. Ef einhverjar upplýsingar eru um hana hér á síðunni þá endilega segið mér hvar þær eru að finna.
kveðja
Agnar
07.03.2003 at 16:16 #470112Toyotu eigendur ætla að hittast í Kringlunni held ég. Benni hefur einnig boðið Toyotu eigendur sérstaklega velkomna en þér er að sjálfsögðu frjálst að mæta þar sem þig lystir
kv
AB
25.02.2003 at 22:49 #469462Sammála Muffin. Ég gekk í félagið í síðustu viku og fékk númer um leið en seðillinn hefur ekki enn skilað sér, enda varla kominn tími til að örvænta ennþá. Vonandi er ekki farið með okkur hina Patrol nýliðana eins og EHV
24.02.2003 at 08:29 #469100Ég var að forvitnast um smurþrýsting í Patrol á dögunum og þeir í Vélalandi gáfu þær upplýsingar að í 3.200 snún þá ætti þrýstingurinn að vera á milli 3.2 og 4.3. Ef að það er í lagi þá þyrfti maður ekki að hafa miklar áhyggjur af lausaganginum. Það borgar sig þó fyrir þig að láta þrýstingmæla gripinn bara til að vera alveg viss, þessi rafmagnspungar eiga það víst til að vera mjög ónákvæmir!
kveðja
AB
16.02.2003 at 12:36 #468364er það bara RD09 sem passar í ´91 Patrol?
kv
AB
16.02.2003 at 11:40 #468360Muffin,
hvar á netinu fannstu læsingu og dælu með þessum verðum?
kveðja
Agnar
-
AuthorReplies