Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.01.2004 at 00:54 #483862
sælir
Ég hef nú ekki komið í Setrið ennþá og þið verðið því kannski að umbera fáfræði mína um staðhætti en hvað með að sleppa því algjörlega að stjórna aðgengi að öllu húsinu og stýra þess í stað aðgengi að einhverju afmarkaðra, t.d. hitakerfi hússins? Er stýring kerfisins í sér rými?
Er ekki hægt að breyta númeraröð á talnalás að slíku rými vikulega og pína menn þannig til að hringja í skálanefnd til að fá uppgefna fyrirfram ákveðna kóta (finna þarf lausn á því hvernig hægt er að breyta kóðanum vikulega án þess að skálanefnd þurfi að mæta á staðinn í eigin persónu)? Þannig er hægt að persónugera notandann og gera hann ábyrgan fyrir innheimtu ef hann hyggst dvelja á staðnum. Hann yrði þá að koma þessari ábyrgð á annan mann og láta vita hver það var ef hann fer af staðnum en að öðrum kosti að læsa talnalás aftur ef enginn verður eftir í skálanum. Með þessu móti er hægt að hafa skálann opinn áfram.
Ef menn vilja svíkja undan skálagjöldum þá geta þeir gert það skjálfandi á beinunum af kulda (og hræðslu)……
kv
Agnar
R-3104
06.01.2004 at 13:43 #483404Þetta er París – Dakar rallýið margfræga en eins og nafnið gefur til kynna þá er það á milli París og borgarinnar Dakar í Afríku…..
kv
AB
04.01.2004 at 23:05 #483322L200 sögðuð þið, svona gerist þegar maður er að flýta sér of mikið!!!!! Annars er þessi King Cab nú nokkuð fallegur
kv
AB
04.01.2004 at 18:53 #483264Nohh, er ekki eigandi fagurbláu skjaldbökunnar vaknaður eftir flugeldafylleríið síðustu daga.
Ég verð að viðurkenna að þessir tvær mætu Pæjur eru fallegar á að líta og er ekki laust við að ég hafi gónt heldur of áberandi á eftir þeim þarna á hringtorginu. Fékk skömm í hattinn hjá konunni…..
Hvort þeir slái brúnleita skriðjöklinum mínum út? Ég hugsa það en þó aðeins naumlega skal ég segja þér
kv
AB
04.01.2004 at 18:43 #483314[url=http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.php?action=collection&albumid=743&collectionid=995:2ltkgeoz]Þessi[/url:2ltkgeoz] var nú til sölu ekki alls fyrir löngu hér á síðunni (10.12.2003).
04.01.2004 at 18:09 #483260Sá þá tvo 44" Pajero félaga bruna út úr bænum upp úr hádegin í dag í átt að Hellisheiði, væntanlega til að prufukeyra græjurnar! Báðir bílar litu verulega vel út. Vonandi fær maður að sjá einhverjar myndir af bílunum í snjó í framhaldinu!
kv
AB
03.01.2004 at 02:40 #483210Þá er ég að tala um laugardag!
Endilega hafið samband við mig, jafnvel þó snemma sé!
kv
AB
03.01.2004 at 02:34 #193381Sælir félagar
Á einhver leið um Langjökul eða nágrenni á morgun, ég og frúnni langar að kíkja á smá rúnt yfir/kringum jökulinn á leið okkar upp í Skorradal? Erum á 38″ Patrol (2.8 l).
Bestu kveðjur
Agnar (660 9929)
11.12.2003 at 14:33 #482534sælir
Þessi electronisku hraðamælabreytar eru mjög sniðugir, ég var með svoleiðis í gamla Patrolnum mínum enda með tvo ganga í gangi
Ef við snúum okkur aftur að hlutföllum, getur einhver sagt mér hvort það séu margir framleiðendur sem eru að framleiða 5.42 í patrol eða er kannski bara einn framleiðandi sem framleiðir þessi hlutföll í Patrol?
kv
Agnar
11.12.2003 at 09:59 #482528Sæll Gregor
Velkomið. Svona fyrir forvitnissakir, hvað kosta 5.42 hjá Benna?
kv
Agnar
10.12.2003 at 23:03 #482522Sælir
Að mínu viti eru bara til tvenns konar hlutföll í gamla Patrolinn, 1:5.42 og 1:5.13. Flestir virðast vera með 5.42 hlutföllin en eitthvað hef ég heyrt utan af mér að 5.13 séu leiðinleg. Sel það ekki dýrara en ég keypti það Annars held ég að þú verðir ekki svikinn af 5.42.
kv
Agnar
01.12.2003 at 17:08 #481752Sæll Haffi
Ég er með ´90 Patta og það heyrist vel í túrbínunni hjá mér. Hún virkar ágætlega og er í góðu lagi að mínu viti. Áður en ég eignaðist núverandi bíl þá átti ég ´91 módel af Patrol og þar heyrðist mjög lítið í túrbínunni en hún var þá nýupptekin. Hvort einhverjar ályktanir sé hægt að draga af þessu veit ég ekki. 3" pústkerfi er í báðum bílunum.
Framhjólalegur kosta 10-15 þús minnir mig (báðum megin). Ef það þarf að renna nafið líka þá kostar það heldur meira, ca 10-15 þús hvoru megin í útseldri vinnu (20-30 þús báðum megin). Ég mæli því með því að menn skoði vel hvort legur séu í góðu standi því það er dýrt að láta renna nafið. Einhver benti mér á að gott væri að kíkja á legurnar á hverju hausti eftir vatnssull sumarsins
Patrol kveðja
Agnar
28.11.2003 at 12:13 #193238Sælir félagar
Rakst á [HTML_END_DOCUMENT]þessa lása fyrir IPF kastara á netinu. Hefur einhver prufað svona? Ætti ekki að kosta meira en 3000 kr. komið hingað heim.
kveðja
Agnar
25.11.2003 at 14:48 #481382Skemmtileg snjóalög í Setrinu síðustu daga og vikur!!!! Þarf ekki að fara að kíkja eitthvað á þennan mæli??? Skratti súrt að geta ekki fengið upplýsingar frá honum.
kv
Agnar
24.11.2003 at 15:38 #481318Sælir
Það var víst ekki rétt hjá mér að Artic Trucks menn hafi farið niður hjá Skálpanesi. Það er allsendis óvíst að þessi leið sé orðin vel fær!
kv
AB
24.11.2003 at 14:32 #481322Sæll
Myndir frá því um helgina er að finna [HTML_END_DOCUMENT][url=http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.php?action=collection&albumid=496&collectionid=1134]hér og [url=http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.php?action=collection&albumid=200&collectionid=1127]hér.
Nógur snjór kominn á Langjökul en myndi nú samt ekki afskrifa sprungur alveg, sérstaklega í jöðrunum og á Geitlandsjökli.
Heyrði einnig af mönnum á ferðinni á Snæfellsjökli um helgina, veit ekki hvernig aðstæður voru!
kv
Agnar[/url][/url]
24.11.2003 at 13:15 #481316Eitthvað heyrði ég utan af mér að Fryr og félagar hjá Toyota hafi farið þá leið niður af jöklinum en að öðrum kosti er náttúrulega hægt að fara Kaldadalinn og upp hjá Jaka.
kv
AB
24.11.2003 at 11:16 #481278Sælir
Ástæðan fyrir því að ég er að pæla í þessu er að mig minnti að ég hefði getað notað moving map og hlaðið niður upplýsingum frá Garmin tækinu á sömu stillingu GSP tæksins (GARMIN) þegar ég var að byrja að fikta mig áfram með þetta síðasta vetur. Þegar ég fór að nota þetta aftur núna í vetur þá komst ég að því að maður þarf nota NMEA (líklega misminnir mig bara) fyrir moving map.
Ég hef ekki prufað PVT stillinguna, vissi þó af þeim möguleika, en ég held að eTrex tækið mitt styðji hann ekki. Spurningin hvað hann hefur fram yfir NMEA??
kv
Agnar
23.11.2003 at 22:50 #481272Sælir piltar
Athyglisverðar hugleiðingar og sérstaklega þakka ég þér Hafsteinn fyrir að upplýsa hvernig losna megi við þessi #&%$&$#&$%$#%$# fet í moving map.
Ein spurning, er hægt að nota moving map án þess að vera með stillt á NMEA á GPS tækinu (í stað Garmin)?
kv
Agnar
23.11.2003 at 15:44 #481194Já Sigurþór fer ekki með fleipur, fallega hvíta duftið er komið. Nóg af snjó eins sést á myndunum og temmilega þungt færi. Nú hafa jeppamenn á suðvesturhorninu ekki yfir neinu að kvarta lengur. Ef menn vilja komast í snjó þá er hægt að fara á Langjökul
snjókveðjur
Agnar
-
AuthorReplies