Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.12.2008 at 11:36 #633852
Eru þetta sömu/svipaðir kassar og eru í 89-97 módelinu ?
Ef svo er þá eru Ljónsstaðarbræður að smíða mjög góðan milligír upp úr Patrol millikassanum (smíða milliplötu á milli lowgírs og millikassa) en það er hægt að fá lægri hlutföll í þá frá Ástralíu (1:2.86 eða 1:3.86). Þetta er þó ekki ódýr leið en gírinn er mjög solid.
kveðja
Agnar
29.11.2008 at 16:44 #633394sælir
ég er með gul gler í 2geisla IPF kösturum og mér finnst það virka mjög vel í snjónum. Ég tek það fram að ég hef ekki prófað hvít eða blá gler með þessum ljósum og hef því ekki samanburðinn en mér finnst skuggamyndunin í snjónum mjög góð með gula geislanum.
Reyndar finnst mér 15 þús kall rán, er ekki verið að selja þessi ljós á tilboði núna á rúmlega 30 þús kall með lúmi !
kv
Agnar
24.11.2008 at 22:13 #633308meinti nú reyndar yfirlitskortið sem Simmi var að dreifa á sýningunni. [url=http://www.radioehf.is/:1rp0uham][b:1rp0uham]Þetta [/b:1rp0uham][/url:1rp0uham] kort uppfært.
Hefur einhver reynt að lykla Hlöðufellið inn frá Grímsfjalli ?
kv
AB
24.11.2008 at 14:50 #633302Mig langaði bara að minna fjarskiptanefnd á hvort þeir geti ekki sett inn uppfært endurvarpakort hér inn á síðuna.
Einnig, hvað er að frétta af endurvarpanum á Hlöðufelli, er hann dottinn út ?
kveðja
Agnar
23.11.2008 at 15:30 #633286það er nú bara þannig Tryggvi að það eru sumir í þessum deildum sem telja sig eiga þessar rásir og býsnast yfir því að menn frá öðrum deildum sem eru staddir í fjarlægum landshluta séu að nota þær. Hef lent í því sjálfur
En fróðlegt að fá útskýringun af hverju þetta er svona.
kv
AB
23.11.2008 at 00:51 #633322Varstu búinn að sjá [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/9007:3h0gktle][b:3h0gktle]þetta[/b:3h0gktle][/url:3h0gktle], linkur þarna með info um þetta swap.
kv
AB
22.11.2008 at 23:27 #633280[url=http://www.f4x4.is/new/misc/default.aspx?file=31/25:3gcwbbkf][b:3gcwbbkf]Hér[/b:3gcwbbkf][/url:3gcwbbkf] geta menn svo séð áætlaða dreifni endurvarpanna.
kv
AB
22.11.2008 at 23:17 #633278Maður lærir ekki nema að spyrja. Hér er nýjasta endurvarpakortið sem ég fann á [url=http://www.radioehf.is/:11s3e06s][b:11s3e06s]netinu[/b:11s3e06s][/url:11s3e06s] en það er eldgamalt (jan 2007).
Fjarskiptanefnd dreifði uppfærðu endurvarpakorti á sýningunni um daginn, væri alveg sallafínt að fá það einhvers staðar inn á þessa síðu á pdf formi, td undir ´Fróðleik´.
kv
Agnar
22.11.2008 at 23:05 #633274sælir
Vestfjarðadeild á ekki neina sérstaka rás eins og sumar aðrar deildir (Suður-, Vestur-, Norður- og Austurlandsdeild). Mér finnst reyndar asnalegt að þessar fjórar deildir "eigi" einhverja tiltekna rás, frkar finnst mér að allar deildir sem tilheyra þeim landshluta "eigi" þá rás. Td að rás 51 tilheyri Vesturlandsdeild og öllum öðrum deildum á svæðinu, þmt Vestfjarðadeild. Ég lít td ekki á rásir 47, 48, 49 og 50 sem eign Rvk.deildarinnar og það á að ég held við um flesta aðra. Frelsum okkur nú úr átthagafjötrum VHF rásana og gerum þetta almenningseign allra félaga F4x4 …..
Ekki veit ég hver getur sett inn fyrir þig rásir á Vestfjörðum en allir félagar í F4x4 eiga rétt á fá eftirfarandi stöðvar settar inn í stöðina hjá sér:
.
42 FÍ endurvarp
44 4×4 endurvarp
45 Almenn rás
46 4×4 endurvarp
47 4×4 beint almenn
48 4×4 beint almenn
49 4×4 beint almenn
50 4×4 beint almenn
51 4×4 beint Vesturlandsdeild
52 4×4 beint Norðurlandsdeild
53 4×4 beint Austurlandsdeild
54 4×4 beint Suðurlandsdeild
58 4×4 endurvarp Hlöðufelli
82 FÍ öfugt endurvarp fyrir 42
86 4×4 öfugt endurvarp fyrir 46
88 4×4 öfugt endurvarp fyrir 44
19.11.2008 at 20:28 #630820Ég er alltaf á leiðinni að skoða [url=http://www.arctictrucks.is/?pageId=1559&itemId=VIA90058:2gxuvkt7][b:2gxuvkt7]þennan[/b:2gxuvkt7][/url:2gxuvkt7] loftmæli. Læt ykkur vita ef ég prófa hann.
kveðja
Agnar
17.11.2008 at 23:23 #632946alltaf gaman að góðum vídeóum. Hérna er [url=http://www.youtube.com/watch?v=cCcAI2hs–M:1d53srnd][b:1d53srnd]video[/b:1d53srnd][/url:1d53srnd] af Willys við Þursaborgir sem maður horfir á reglulega til að létta á sálinni.
Þeir sem hafa áhuga á krafmiklum Patrollum frá Persaflóahreppi ættu að kíkja á [url=http://www.youtube.com/watch?v=3xuGFuWithI:1d53srnd][b:1d53srnd]þetta[/b:1d53srnd][/url:1d53srnd]
kv
Agnar
17.11.2008 at 23:06 #632236Eruð þið að tala um SS TSL Bias ?
16.11.2008 at 23:58 #632934þessi slóði er ekki heldur í 250.000 eða 500.000 kortunum frá LMÍ frekar en 50.000 kortunum og er því ekki í Nobeltec eða Ozi.
Þessi leið er nú þannig að vetri til (sérstaklega ef það er lítill snjór) að það þýðir lítið að keyra eftir ferli, hengjurnar á leiðinni gera það að verkum að maður þarf að vera uppfinningasamur og ólíklegt að sami ferillinn virki á milli vetra eða jafnvel mánaða.
kveðja
A
16.11.2008 at 22:25 #632866Það er vel skiljanlegt að höfundarnir selji kortin, það er búið að leggja mikla vinnu í að útbúa þessi kort hér heima og einhvern vegin þarf að ná þeim kostnaði til baka.
Svo er líka hægt að hætta að láta taka sig í ra*****ið og nota bara OziExplorer, skönnuð LMI kort, gamla fartölvu og snertiskjá, mun betra setup en þessi bíl gps tæki …… en það er bara mín skoðun.
16.11.2008 at 18:56 #631300Kvöldið
Í gær prófaði ég að kalla í nýja endurvarpann á rás 58 úr Grímsnesinu (Hraunborgum) og gekk það vel, ég spjallaði meðal annars við einn úr ungliðahópnum úr F4x4 sem var inn á Klakksleið á leið inn í Setur en þeir heyrðu þó slitrótt í mér. Ég gat þó talað við þá í gemsanum langt frameftir degiÍ gærkvöldi ætlaði ég aftur að heyra í þeim hljóðið í gegnum rás 58 en þá náði ég ekki sambandi við endurvarpann og ekkert gekk að ná sambandi við hann á leiðinni heim í dag. Hann virðist því vera óvirkur eða kannski loftnetið hafi farið eitthvað úr skorðum. Kannski verður Simmi því að reima aftur á sig skóna ……
kveðja
Agnar
15.11.2008 at 16:23 #632784Voru komnir a N64.22 og W19.34, taladi vid tha i gegnum ras 58. Gengur rolega, litid skyggni. Kv AB
14.11.2008 at 12:42 #632738Minn gamli var að blása mest 13-14, það var greinilega búið að eiga eitthvað við þetta og auka við olíuna af fyrri eiganda. Þetta virkaði fínt og ég var bara nokkuð sáttur.
kveðja
Agnar
12.11.2008 at 17:02 #632638til hvers að vera setja þunga 3.3 dísel með tilheyrandi veseni, frekar að setja léttan bensínrokk en það er væntanlega svipuð vinna !
Ég myndi byrja á því að leita að 2.8 og ath hvort þú finnur ekki eitthvað gott eintak ef þú ert að horfa í aurinn.
Ég er búinn að keyra ófáa km á 38" Patrol ´89-´97 og þeir voru að eyða ca 14 ef þeir voru á org hlutföllum og 16 á 1:5.42, virtist skipta litlu máli hvort þetta var utan eða innanbæjar. Annar samanburður verður náttúrlega bara óraunhæfur svo ég tali nú ekki um að hengja hjólhýsi aftan í 2.8 lítra Patrol ….. það er nú bara fyndið !
11.11.2008 at 22:13 #632626sælir
4.2 á ekki eftir að vera kostnaðarminna dæmi en uppgerð á kjallara og topp á gamalli 2.8.
Ef þú ert að hugsa um skemmtanagildið þá er bensín vél örugglega skemmtilegasti kosturinn en kostar líklega mestu vinnuna, ef þú ert að hugsa um dísel vél með meira tog og ert skítsama um peningana þá er 4.2 ágæt leið en ef þú ert að horfa í aurinn þá finnur þú þér bara notaða 2.8 og skiptir þeirri gömlu út, það er örugglega hægt að finna gamla svona vél á lítinn pening einhvers staðar.
kveðja
Agnar
10.11.2008 at 14:30 #632536Og 21 mínútu seinna ertu greinilega búinn að [url=http://www.f4x4.is/new/ads/default.aspx?file=jeppar/33299:1wy4pclf][b:1wy4pclf]komast að því[/b:1wy4pclf][/url:1wy4pclf] að þetta sé of lítið
Ef þú vilt prófa hann í snjó er oft ágætt að skella sér inn á dómadal eins og Benni bendir á eða bara inn á Kaldadal eða veginn norðan við Skjaldbreið.
kv
Agnar
-
AuthorReplies