Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.02.2011 at 12:51 #700628
[quote="Þorsteinn V":3egxbte0]Það er hægt að hlaða niður kortum núna.
Beinn linkur á síðuna er:
http://www.safetravel.is/is/Vetur/Utivist/Joklaferdir/
velja þar jöklakort.Gangi ykkur vel og sendið endilega inn athugsemdir sem skipta máli til batnaðar á Snæavarr og Jónas.
kveðja
Águst og Þorsteinn[/quote:3egxbte0]sælir
Ertu með email hjá Snævarri og Jónasi, vantar upplýsingar um Datum kortanna ?
kveðja
Agnar
agb@applicon.is
18.02.2011 at 00:40 #700624Þetta er afskaplega áhugavert verkefni og ég er mjög ánægður með hvernig kortin hafa verið unnin í "handbókinni", mjög skýr og litanotkunin góð útfærsla. Frábært framtak !
Ég nota að vísu ekki gps bíltæki, bara göngutæki með tölvu, þannig að ég get ekki nýtt mér kortagrunninn en ég hlóð niður handbókinni á PDF í fínni upplausn og gat ég vistað skjámyndaklippur af kortunum þaðan niður sem .jpeg myndir í góðir upplausn. Er búinn að calibrera þetta inn í Ozi og þetta kemur vel út.
Er þetta ekki örugglega WGS84 Datum sem þið notið ?
Hér er td gamalt track frá Skálpanesi sem ég lagði ofan á sprungukortið af langjökli. Mjög áhugavert að skoða þetta og fín viðbót við þá vitneskju sem maður hefur af jöklinum nú þegar.
[attachment=0:sotu8z5o]track á Langjökli.jpg[/attachment:sotu8z5o]
kv / Agnar
17.02.2011 at 09:15 #717292Upp á topp …. ég mun bara hafa opið fyrir download í ca viku.
16.02.2011 at 15:55 #717290Jæja, þá er vinnunni að ljúka við þetta "litla" verkefni, 297 AMS kort af [u:t65gdapj]öllu landinu[/u:t65gdapj] í kvarðanum 1:50.000 hefur verið hlaðið niður af vef LMÍ og þau calibreruð inn í OziExplorer með fjórum hnitapunktum ásamt því að stilla inn afmörkun kortanna.
Þetta er í einu orði sagt algjör snilld fyrir okkur sem erum gamaldags og notum ennþá Ozi forritið með þessum gömlu fallegu Íslandskortum undir. Dæmi um þessi landsvæði sem við erum nú að fá inn eru austasti hluti Vatnajökuls og hálendið austan jökulsins, Vestifirðir, norðausturland o.fl.
Þrír sprækir félagsmenn og spjallverjar unnu að þessu verkefni með mér, Hafsteinn Sigmarsson (hafsteinn), Grétar G. Ingvarsson (GGI) og Bergur Arnarson (bergura) og kann ég þeim bestu þakkir fyrir að taka þátt í verkefninu og þá miklu vinnu sem þeir lögðu í þetta.
"Útgáfan" verður brátt tilbúin til afhendingar, allar kortaskrár verða merktar með tilvísunarnúmeri í yfirlitskort fyrir kortaútgáfuna og nafni viðkomandi korts. [b:t65gdapj]Þeir sem hafa áhuga á því að fá "kortaseríuna" vinsamlegast sendið mér email á agb@applicon.is[/b:t65gdapj].
Ath að kortaserían er um 3GB að stærð þannig að þetta er ekki eitthvað sem hægt er að senda með tölvupósti, ég mun þó dreifa þessu rafrænt með öðrum hætti. Ath einnig að þessa kortaseríu er aðeins hægt að nota með OziExplorer !
Þeir sem eru með NavTrek geta þó nýtt sér þau 297 kort sem við hlóðum frá LMÍ en þeir verða sjálfir að calibrera þau inn í NavTrek.
Sjáumst svo bara á fjöllum með nýju "gömlu" AMS kortin 😉
kveðja
Agnar
28.01.2011 at 17:00 #717288Hérna kemur textaskráin sem bætir við tveimur nýjum user datum í Ozi
– Reykjavik 1900 fyrir elipsoid Danish 1876
– Reykjavik 1900 fyrir elipsoid International 1924Fyrir voru í skránni nokkur User Datum sem ég þekki ekki og hægt er að fjarlægja úr henni ef þið viljið ekki hafa þau. Þetta er mjög einföld textaskrá, ein lína per Datum.
Hlaðið skánni niður og vistið hana í rótinni á OziExplorer möppunni á tölvunni ykkar. Næst þegar þið opnið Ozi þá ættu þessi tvö Datum að vera komin inn. Til að skoða hvort Datum er komið inn opnið þá viðkomandi kort og smellið á File -> Check Calibration. Þá opnast gluggi hægra megin með nokkrum svæðum, í flettiglugga þar er hægt að skoða Map Datum, Reykjavik 1900 Datum-in tvö ættu að birtast neðst í listanum.
Nú ættuð þið að geta Calibrerað rétt inn Atlas kortin og AMS kortin inn í Ozi. Þeir sem vilja leggja hönd á plógin við að Calibrera inn AMS kortin inn í Ozi sendið email á agb@applicon.is, öll hjálp vel þegin enda er um 220 kort að ræða.
kv/Agnar
28.01.2011 at 15:30 #717286[quote="dagaffi":3bm2mwg2]Sæll Agnar, flott framtak. Mættir kannski smella skránni inn hér sem viðhengi þegar hún er tilbúin.
-haffi[/quote:3bm2mwg2]
Já, auðvitað, mun einfaldara þannig.
Græja það.
28.01.2011 at 12:34 #717282[quote="AgnarBen":2od5veyp]Hér koma nytsamlegar upplýsingar sem ég fékk frá LMÍ varðandi Kortaviðmiðanir (datum) og sporvölur (elipsoid):
.
[attachment=0:2od5veyp]Datum.jpg[/attachment:2od5veyp]
.
T.a.m þá voru Atlas kortin ekki rétt calibreruð hjá mér, voru í stillt inn miðað við Hjörsey 1955 sem er ekki rétt. Væntanlega gæti það átt við um fleiri því þessi kort ganga manna á milli á diskum.kv/Agnar[/quote:2od5veyp]
Eins og þið sjáið í töflunni þá er notast við tvær mismunandi sporvölur (elipsoid) fyrir Datum Reykjavik 1900 og því þarf ég að búa til tvö Reykjavik 1900 user datum með mismunandi sporvölum. Ætla að græja það um helgina, læt vita hér þegar það er tilbúið og þá get ég sent ykkur textaskrána. Sendið mér bara email á agb@applicon.is.
28.01.2011 at 11:54 #717280[quote="GGI":2475t2gj]Sæll,
vildi gjarnan fá þessa skrá hjá þér.Kv, Grétar[/quote:2475t2gj]
Ég skal senda þér textaskrána þegar ég er búinn að bæta við inn í hana Datum Reykjavik 1900 fyrir sporvölu International 1924.
kv/Agnar
28.01.2011 at 11:51 #717278Jú það væri ráð að dreifa aðeins vinnunni ef menn hafa áhuga á því. Þá gætum við kannski tekið allt landið complet Það er tiltölulega einfalt að framkvæma þetta, þetta er aðallega bara handavinna.
Sendið mér email á agb@applicon.is ef þið hafið áhuga á að taka þátt í að koma þessu inn í Ozi Explorer. Ég skal græja leiðbeiningar, skipuleggja vinnuna og græja þær skrár sem þarf til.
kv/Agnar
27.01.2011 at 14:01 #717268Hér koma nytsamlegar upplýsingar sem ég fékk frá LMÍ varðandi Kortaviðmiðanir (datum) og sporvölur (elipsoid):
.
[attachment=0:s9hrukt8]Datum.jpg[/attachment:s9hrukt8]
.
T.a.m þá voru Atlas kortin ekki rétt calibreruð hjá mér, voru í stillt inn miðað við Hjörsey 1955 sem er ekki rétt. Væntanlega gæti það átt við um fleiri því þessi kort ganga manna á milli á diskum.kv/Agnar
27.01.2011 at 01:04 #717266Jæja, það stóð ekki á svari frá Herra Des Newman, hann sendi mér textaskrá sem ég gat bætt inn hjá mér í OziExplorer directory-ið (beint undir OziExplorer folderinn) en það sem hún gerir er að bæta við Reykjavik 1900 Datum inn á listann yfir available Map Datums í Ozi. Ég nota síðan UTM sem Map Projection. Málið leyst
Það sem þessi textaskrá gerir er einfaldlega að bæta við því sem hann kallar user Datum en hann benti mér á leiðbeiningar í hjálpinni um hvernig ég get útbúið svona textaskrá sjálfur fyrir hvaða Datum sem er. Einnig fékk ég link frá honum sem gefur allar nauðsynlegar upplýsingar um viðkomandi Datum svo hægt sé að setja það upp í textaskránni. Linkurinn fyrir Reykjavik 1900 er [url:1a25fgns]http://www.spatialreferences.org/ref/epsg/4657/[/url:1a25fgns]
Reyndar hefði ég aldrei getað gert þetta sjálfur þar sem Danish 1876 sporvalan vantaði inn á listann hjá honum (nr.30) í hjálpinni þótt hún sé til í hugbúnaðinum.
Ég er búinn að setja inn hluta vestfjarða og calibrera og þetta lítur bara vel út, ætla að klára restina af vestfjörðum á næstu dögum. Mun síðan örugglega setja inn austurland líka og já bara öll þau svæði sem vantar inn á DMA 1:50.000 kortin.
Ég veit ekki hvort ég er á eintali hérna en ef einhver hefur áhuga á að fá þetta þegar ég er búinn þá póstið hér inn contact upplýsingar og ég reyni að koma þessu til ykkar einhvern vegin.
kv/Agnar
26.01.2011 at 17:04 #717264Já ég sendi á hann í gær og bað hann að skoða að bæta þessu við. Ég sendi honum viðmiðunarpunktinn sem er á kortunum, Map Projection sem er Transverse mercator og svo fann ég líka á netinu hver skekkjan er á Reykjavik 1900 miðað við WGS84. Sendi honum þann link líka. Annars veit ég ekki hvort hann þarf eitthvað meira.
Ég sé ekki betur en að sporvalan fyrir Reykjavik 1900 sé Danish 1876 Ellipsoid þannig að ég veit ekki alveg hvað hann hjá LMÍ var að fara með að vísa í International 1924 sem sporvölu.
Ætla að bíða eftir einhverjum svörum frá LMÍ og Ozi áður en lengra er haldið. Ég er búinn að hlaða niður kortin fyrir Vestfirði og prófa að calibrera þau inn með Hjörsey 1955 og UTM og það er greinilega skekkja í kortunum þannig.
25.01.2011 at 23:58 #717260Sendi fyrirspurn á LMÍ varðandi AMS kortin og svarið sem ég fékk var að AMS kort eldri en 1955 væru í Datum ´Reykjavík 1900´ með ´International 1924´ sporvölu. Ozi býður ekki upp á Reykjavik 1900 og ekki upp á International 1924 þannig að ég er eiginlega fastur núna.
Eftir smá Gúggl á netinu sýnist mér að skekkjan frá Reykjavík 1900 miðað við WGS84 sé um 200m á Y-ás og 20m á X-ás þannig að ekki gengur að nota það. Veit einhver hvort hægt sé að velja td WGS84 en setja inn þekkt skekkjumörk ?
23.01.2011 at 22:25 #716846Hér eru nokkrir sem gera þetta.
[url:3lf9ul9d]http://www.gagnvirkni.is/index.php[/url:3lf9ul9d]
[url:3lf9ul9d]http://www.mbv.is/[/url:3lf9ul9d]
[url:3lf9ul9d]http://www.bergvik.is[/url:3lf9ul9d]
[url:3lf9ul9d]http://www.grensasvideo.is[/url:3lf9ul9d]
[url:3lf9ul9d]http://www.myndform.is[/url:3lf9ul9d]Svo er víst líka hægt að gera þetta með því að tengja VHS tæki (line out) við DVD upptökutæki eða með því að tengja VHS tæki við tölvu sem er með skjákorti.
kv/AB
23.01.2011 at 18:58 #717258Atlas kortin 1:100.000 eru stillt inn hjá mér í Hjörsey 1955 og með "Lambert Conformal Conic" Map Projection en það krefst Lambert Projection CC setup (Latitude 1/2 = efsta/neðsta breiddargráða á viðkomandi korti og Central Meridian = lengdargráða í miðju kortinu). Það er meiri vinna að koma þessu inn svona en væntanlega réttara en að nota WGS og TM eða hvað ?
Ég er bara ekki nógu vel að mér í þessum fræðum til að segja til um hvað er réttast í þessu.
23.01.2011 at 17:07 #717254Veit einhver hvaða Datum maður á að nota fyrir þessi kort, þau eru gerð fyrir tíma Hjörsey 1955 (á árunum 1940-1950) en það er vísað í einhvern punkt í Rvk sem viðmið. Veit einhver hvaða Datum ég á að velja á þetta ?
Einnig, þessi kort eru Transverse Mercator Projection en það krefst þess að ég setji inn staðsetningu þegar ég er að Calibrera. Á ég þá að setja inn staðsetninguna sem fylgir með (í Reykjavík) eða á ég kannski bara að velja UTM ?
kveðja
Agnar
23.01.2011 at 17:01 #717222300W er mikið meira en nóg. Ég notaði 150W inverter fyrir fartölvu í mörg ár og virkaði fínt … þe þangað til hann dó. Er með 300W núna.
23.01.2011 at 10:36 #717252Þetta er ákkúrat það sem mig vantaði. Fría upplausnin er fín til að keyra eftir í Ozi Explorer eða Nobeltec (3750×3340). Í kortaflokknum AMS C762 eru kortahlutar í 1:50.000 sem aldrei hafa verið til í DMA kortunum eins og fyrir vesturland og austanverðan Vatnajökul, alla vega ekki að mínu viti.
Nú er bara að hlaða niður þeim svæðum sem mann vantar og calibrera fyrir Ozi ….. Það væri auðvitað flottast að vera með allt landið en ég held ég nenni ekki að hlaða niður og calibrera 220 kort :-S
takk fyrir þetta.
kveðja
Agnar
23.01.2011 at 00:40 #716840Róbert, nú mátt þú gera doldið alveg stórsnjallt, drífðu þig með VHS spólurnar af þessum ferðum og láttu skella þessu á stafrænt form. Síðan getur þú hlaðið þessu inn á YouTube eða leyft okkur að afrita þannig að við getum allir notið þess.
Ef þarft einhverja aðstoð við þetta láttu þá vita og ég er meira að segja til í að leggja smá pening í púkk ef það er einhver kostnaður
kveðja
Agnar
23.01.2011 at 00:21 #216994Góða kvöldið
Hefur einhver séð skönnuð AMS kort (1:50.000) í notkun í Ozi eða Nobeltec ? Þessi vanalegu DMA kort (1:50.000) ná bara yfir hluta miðhálendisins, eru ekki til fyrir Austurland, Vestfirði, norð-austurland osfrv.
Skv því sem ég finn þá voru öll AMS kortin gefin út og ættu því að vera til einhvers staðar, amk á pappír ?
kv/Agnar
.
[attachment=0:2j770klt]AMS (600 x 409).jpg[/attachment:2j770klt]
-
AuthorReplies