Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.01.2016 at 00:36 #93624423.01.2016 at 11:53 #936229
Nákvæmlega, kemur lægð yfir landið um miðja næstu viku og rólyndisveður …. vonandi heldur það framyfir helgi
23.01.2016 at 00:25 #93622122.01.2016 at 16:21 #936214Djöfull er manni farið að hlakka til að borða skemmdan mat með ykkur Er ekki hefðbundin dagskrá, baðferð fyrir Þorrablót, bæði fyrir bíla og menn ?
07.01.2016 at 22:47 #935738Það er laust pláss í Cherokee Andri minn ef þú nærð ekki að lappa upp á þessa Toyotu 😉
07.01.2016 at 11:31 #93572814.12.2014 at 23:30 #774744Frítt bump smá prufa.
09.03.2014 at 19:25 #453821Það verður svo gaman að heyra þyngdartölur af viktinni
14.02.2014 at 13:56 #452033Ég fjarlægði mín hliðarstefnuljós þegar ég breytti mínum XJ og hef ekki fengið neinar aths við það. Stefnuljósin að framan vísa reyndar vel til hliðanna.
02.02.2014 at 23:20 #445554Flott blót eins og alltaf hjá Fasti og félögum. Við þökkum fyrir okkur !
25.01.2014 at 02:01 #44491242″ GY eru að koma mjög vel út undir Pajero sem ég hef ferðast mikið með. Þetta eru dekk sem standa vel 42″, virka mjög vel í snjó (betur en ég bjóst við) og eru frábær keyrsludekk. Ég held þessi dekk séu komin til að vera en það eru líklega fáir sem eru á þessu !
20.01.2014 at 21:48 #444522Er þetta ekki bara ofan á Vífilfelli hérna rétt fyrir utan borgarmörkin !
18.01.2014 at 21:29 #444350Það gekk vel innúr hjá þeim í gærkvöldi, fóru Sóleyjarhöfðavaðið. Það jókst á snjóinn þegar nær dró Setrinu.
Hef ekkert heyrt í dag.
17.01.2014 at 21:16 #444318Jæja, eru engar fréttir af nýliðaferð !
09.01.2014 at 17:35 #443947Ég hef skoðað síðuna talsvert í gegnum símann en hún er greinilega hönnuð fyrir Mobile sem er flott og virkar mjög vel finnst mér. Reyndar pínu hæg en ekkert hrikalega. Er með Sony Xperia Z með Android 4.2.2
08.01.2014 at 15:29 #443872Skráður !
Það skal tekið fram að það verður ekki boðið upp á skemmtiatriði í formi blaðfjaðrabrota og/eða fjaðrablaðaútskiptingar þetta árið þar sem unnið er að því hörðum höndum í þessum töluðu að fjarlægja blaðfjaðrirnar undan bílnum og setja gormafjöðrun í staðin. Aftur á móti verður hugsanlega boðið upp á ratleik í staðinn sem snýst um að finna týnda gorma eða aðra íhluti sem kunna að týnast úr nýsmíðinni á leiðinni í Setrið ……
06.01.2014 at 21:47 #443790Áhugavert, hér eru lengri púðar ætlaðir í Wrangler
http://m.ebay.com/itm/400619841930?cmd=VIDESC&gxo=true
06.01.2014 at 21:31 #443787Hvað áttu við Bjarni, ertu að segja að það sé óeðlilegt að afklæða sig í brunagaddi til að stinga sér í hlandvolgt fiskikar á miðhálendinu (ekki að það hafi nokkurn tíman verið gert í Þorrablótsferðum að sjálfsögðu) !
26.12.2013 at 18:05 #442455Það hefur ekki verið neitt vandamál að fá heitt loft á framrúðuna við allar „eðlilegar“ aðstæður. Hugsanlega gæti maður lent í því að hitinn gerði það að verkum að snjófjúk festist frekar á rúðunni en ég held að miðstöðin spili mun stærra hlutverk í því.
Í stórferðinni var ég með slökkt á miðstöðinni í dágóðan tíma og lét reyndar blása köldu á framrúðuna og virkaði það mjög vel og var snjósöfnun á rúðuna í lágmarki. Þá kom reyndar fyrir að heita loftið frá húddinu gerði það að verkum að snjófjúkið festist aðeins en ekkert til stórra vandræða en þetta voru auðvitað afar sérstakar aðstæður sem maður lendir ekkert mjög oft í.
26.12.2013 at 11:46 #442451Ég held þú ættir að prófa að lyfta húddinu að aftan eins og Freyr stingur upp á. Ég er með þetta svona hjá mér og það eykur loftflæðið umtalsvert í gegnum vélarsalinn og minnkar hitamyndun talsvert.
-
AuthorReplies