Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.03.2005 at 21:40 #518318
Þetta fannst mér vasklega mælt, gamalt drasl er nefnilega ekki bara gamalt drasl, það er oft á tíðum gott gamalt drasl sem búið er að leggja mikla vinnu í og dugar vel!
Kveðja, Hjölli.
07.03.2005 at 21:33 #518354Stjörnublikk redduðu mér, tóku gamla uppí og ég var sáttur við verð og þjónustu.
Kveðja, Hjölli.
07.03.2005 at 21:32 #518328Og fylgir orðabók með þessum þræði fyrir aðra að skilja?
Kveðja, Hjölli.
05.03.2005 at 22:02 #195603Sæl öll.
Hvar fást tjörumotturnar eða dúkurinn sem settur er í botnin á bílum til að losna við vegahljóð? Er að gæla við að setja þannig í botninn á Bronco og láta svo spraura Rhino þar yfir.
Kveðja, Hjölli.
05.03.2005 at 19:15 #518168Semsagt ekki inn við Gæsavötn. Það er nú ágætt, ég held að gamla gefði ekki litist vel á að komast alveg svo langt.. Kveðja, Hölli.
05.03.2005 at 19:03 #518162Hvar leyndist þá villan? Er ekki um Búðarháls að ræða? Strákar, hvar eru Árbúðir?
Hjölli
05.03.2005 at 18:30 #518156Þá kveiki ég, bestu þakkir. Held það væri málið að plotta rúnt þarna inneftir.
Kveðja, Hjölli.
05.03.2005 at 18:10 #518150Sæl öll.
Fræðið nú fáfróðan, ég finn ekki Árbúðir á korti? Dauðlangar að stefna inn á hálendi um páskana..
Kveðja, Hjölli.
05.03.2005 at 11:24 #518212Sæll.
Hér um slóðir var eitt sinn Súkka með 302 Ford mótor við Hilux gírkassa. Þessi mótor mígvirkaði ofan í þessum bíl, annars er þetta bara spurning um hugmyndaflug. Mér dettur líka í hug einhver dísilrella, til dæmis 300 Bens eða 4 lítra Toyota? Þær eru fremur þungar svo að kannski er minni vél og túrbína kostur? Bara að láta sér detta eitthvað nógu geggjað í hug..
Kveðja, Hjölli.
03.03.2005 at 12:34 #518040Sæll, ég var nú búinn að skoða gróflega hvort hann drægi loft en fann ekkert að. Kannski er hann þó að draga einhversstaðar, þarf að prófa þetta með bensínið, var búinn að prófa með wd 40… Annars er allt nýtt sem heita kveikjuhlutir svo ég er frekar hissa á þessu, hann hefur alltaf mengað í algeru lágmarki þar til nú.
Kveðja, Hjölli.
01.03.2005 at 23:12 #518036Takk fyrir svörin, er byrjaður að rífa og tæta.. Ég læt þetta ráðast, sem vísuna jafnóðum og smíðin fer fram. Á annars við mengunarvandamál að stríða. Nei, ekki sjónmengun af gamla, mældist alilla í skoðuninni og loftskrúfurnar á blöndungnum breyta engu. Þetta er 2ja hólfa Holley á 200 línusexu, einhverjar hugmyndir?
Kveðja, Hjölli.
27.02.2005 at 21:15 #517996Já, þetta er spurning, ég er nokkuð heitur fyrir þessu. Er intercooler algert must, og hvaðan gæti hann komið?
Kveðja, Hjölli.
27.02.2005 at 21:12 #518028Já, það er einmitt eitthvað svoleiðis sem ég er að fara útí, ég er steinhættur við að skipta út hásingunum til að komast í dana 44. Ætla að nota Suzuki diska og einhverjar hentugar dælur með þeim, ég smíða þá bara brakett til að halda dælunni.
Kveðja, Hjölli.
26.02.2005 at 22:31 #518010Mikið rétt, þetta er óóóskaplega gaman.. Amerískir jeppar af gamla skólanum eru æðisleg leiktæki en vita skaltu að þeir bila og krefjast athygli og viðhalds. Sem er náttúrulega helmingurinn af öllu fjörinu. Geturðu sagt okkur aðeins betur frá Willysnum og jafnvel sett inn myndir af honum?
Kveðja, Hjölli.
26.02.2005 at 21:51 #518024Myndir væru vel þegnar af svona smíðum eigi einhver.
Hjölli.
26.02.2005 at 21:50 #195586Sæl öll.
Ef notaðir eru Suzuki bremsudiskar til að smíða diskabremsur á dana hásingar, hvernig er þá dælunni fest, er til passandi brakett eða þarf að sérsmíða?
Kveðja, Hjölli.
26.02.2005 at 21:39 #517990Takk fyrir upplýsingarnar, þetta er einmitt það sem mig langar að gera við Grána gamla til að gera hann notendavænni. Ef einhver lumar á svona túrbínu, nú eða Range Rover gormum og stífum er síminn hjá mér 8987504.
Kveðja, Hjölli.
26.02.2005 at 21:07 #517986Það er víst ekki Ý í stífa… Klaufi..
Hjölli.
26.02.2005 at 21:05 #517984Sæll Glanni.
Þetta virðist hafa verið afar snyrtilegt í húddinu og ef ég má forvitnast, hvernig gekkstu frá pústinu og fyrst og fremst, virkaði þetta skemmtilega? Þetta hefur verið glæsilegur bíll, var hann ljúfur á þessum gormum? Varstu með Range Rover stýfulagerinn líka þarna undir?
Kveðja, Hjölli.
26.02.2005 at 20:17 #517980Og úr því að ég er að pumpa fólk, hvaða gormar gefa góða raun undir Hilux, er mesta vitið kannski að setja komplett fjöðrunarbúnaðinn undan Range Rover?
-
AuthorReplies