Litlanefnd minnir á að í kvöld fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20:30 verður kynningarfundur vegna ferðar Litlunefndar 20. febrúar í Kerlingarfjöll. Fundurinn er í félagshúsnæði Ferðafélagsins 4×4 að Eirhöfða 11, Skemmu 3. Á fundinum er farið yfir ferðaplan, grunnbúnað í jeppaferðum, akstur jeppa á hálendinu og fleira sem tengist ferðinni.
Búið er að skipta þátttakendum í tvo hópa og bílar með 38” og stærri dekk munu fara Leppistunguleið upp í Kerlingarfjöll, en almennir þátttakendur Kjalveg. Nánar verður farið í þessa ferðatilhögun á fundinum. Fararstjórar sem komast á fundinn, verða kynntir.