Jæja stelpur, þá er komið að hinni árlegu ferð okkar og verður hún farin 24.-26. febrúar 2012.
Eins og flestar muna, þá gisti stór hópur eina nótt á Bláfellshálsi síðast, sælla minninga. En núna munum við að gera aðra tilraun, og ÆTLUM að fara alla leið í Gíslaskála og hafa gaman saman þar. Stefnt er að því að halda kynningarfund 13.-16. febrúar. Það er ekki komin nákvæm dagsetning enn, en við látum vita fljótlega með hana ásamt staðsetningu fundarins.
Það verða sömu hópar/litir og í fyrra.