Nú ætlum við að byrja jólamánuðinn með jólaglöggi á Höfðanum þann 2. desember næstkomandi.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði, piparkökur, saltstangir o.fl. Einnig verður bjór seldur gegn vægu gjaldi.
Nú mæta allir með gömlu jeppasögurnar og taka góða sögustund í góðra vina hópi. Húsið opnað kl. 20:00.
Skemmtinefndin.