Félagar athugið
Búið er að hafa samband frá vettvangsstjórninni undir Eyjafjöllum og vegna mikils öskufalls á svæðinu hefur öllu hreinsunarstarfi um helgina verið frestað um óákveðinn tíma. Talið er að þau séu nú komin á byrjunarreit varðandi öskumagn og hreinsunarstarf.
Heimamenn undir Eyjafjöllum vilja geta átt hauk í horni í klúbbnum okkar og vilja geta leitað til okkar með aðstoð þegar það verður mögulegt aftur. Þessvegna hafa verið sett upp ný skráningarform vegna hreinsunarvinnu um næstu helgi.
Íbúar undir Eyjafjöllum eru þakklátir að vita til þess að þeir standa ekki alveg einir í þeim miklu hremmingum sem þeir eru að lenda í og að eiga að góða aðila eins og Ferðaklúbbinn 4×4 er ómetanlegt.
Ég hvet fólk að leggja aðrar áætlanir til hliðar með það í huga að aðstoða við hreinsunarstarf um næstu helgi.