Á döfinni er að Arctic Trucks í samstarfi við Litlunefndina haldi námskeið í rötun og notkun GPS tækja. Námskeið er tvískipt, fyrri hlutinn, grunnnámskeið er 2 kvöld og verður það 22. og 23. mars n.k. Síðari hlutinn er framhaldsnámskeið og verður það 30. mars n.k.
Við hvetjum félaga okkar til að sækja þetta námskeið. Næsta Litlunefndarferð, sem verður 27.mars n.k. verður í formi ratleiks og þá er nauðsynlegt að geta notað gps tækið sitt fljótt og örugglega. Dagsetningar námskeiðanna miða einmitt við þessa ferð.