Almennur fundur verður haldinn þriðjudagskvöldið 2. nóvember kl. 20:00 í húsnæði Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri. Á dagskrá er meðal annars umfjöllun um landsfund F4x4, ferðir framundan, fyrirlestur um þróun og úrval GPS tækja, jeppamyndir frá Rússlandi og fleira.
Kaffiveitingar í boði að venju.
Kveðja
Stjórn Eyjafjarðardeildar F4x4.