Hluti skálanefndar er staddur í Setrinu þessa helgina og fórum við í könnunarleiðangur inn á Illahraun í dag. Mikinn snjó hefur tekið upp af leiðinni inn í Kerlingarfjöll og má nú segja að þokkalega sé fært á milli Seturs og Kerlingafjalla. Þó eru nokkrir skaflar á leiðinni sem ekki eru færir litlum bílum og er það því ósk okkar að ekki sé farið á óbreyttum bílum þessa leið, enn sem komið er, þar sem þeir komast ekki yfir skaflana. Mikilvægt er að ekki sé ekið með fram þeim og ný för búin til. Annars er það að frétta að skálavörður verður í Setrinu þessa vikuna eða fram á föstudag og við skálanefndarmenn verðum svo á staðnum um næstu helgi.
fh. Skálanefndar,
Logi Már