Í gær þann 1. desember 2010 voru stofnuð ný landssamtök um almannarétt, útivist og verndun náttúru Íslands undir nafninu Ferðafrelsi. Þessi dagsetning var valin sérstaklega vegna þess að hún tengist frelsisbaráttu þjóðarinnar um sjálfstæði og er því táknræn um þá baráttu fyrir ferðafrelsi á Íslandi sem stofnaðilar samtakanna standa í þessa dagana. Stofnun þessara nýju landssamtaka byggir í grunninn á samstarfi margra útivistaraðila, ferðþjónustufyrirtækja og ferðtengdra aðila um baráttu fyrir almannrétti til ferðafrelsis í Vatnajökulsþjóðgarði sem staðið hefur yfir síðustu mánuði. Stofnaðilar samtakanna töldu mikla þörf á að setja samstarf þeirra sem ferðast á vélknúnum farartækjum, fara um á hestum og þeirra sem reka ferðaþjónustutengd fyrirtæki í hálendisferðum í formlegan farveg. Þeir aðilar sem standa að þessum nýju samtökum hafa þegar hrundið af stað nokkrum verkefnum og má þar nefna: