Ákveðið hefur verið að efna til ferðar í Nýjadal um páskana. Brottför er á skírdag kl 11.00 frá Stöðinni við Vesturlandsveg. Komið til baka seint á páskadag. Sjá nánar á spjallþræði hér á síðunni. Skráning fer fram hér á síðunni. Gert er ráð fyrir að bílar séu að lágmarki á 38 tommu dekkjum og að hver bíll hafi VHF talstöð og GPS tæki. Ferðast verður út frá Nýjadal og komið þangað í náttstað á hverju kvöldi. Fjölskyldur sérstaklega velkomnar. Skálagjald er 1500 kr/mann/nótt og verður innheimt á staðnum. frítt fyrir börn yngri en 13 ára.
Fararstjóri Arnþór Þórðarson s. 8201680