Félagsgjöld 2014
Það er búið að stofna kröfur í heimabönkum félagsmanna vegna félagsgjalda fyrir árið 2014.
Félagsgjöldin eru óbreytt frá fyrra ári eða 6.000 krónur.
Hugmyndin er að reyna að innheimta árgjöldin svona í stað þess að senda greiðsluseðla í pósti. Ef félagsmaður er ekki með heimabanka þá er hægt að senda okkur póst á netfangið f4x4@f4x4.is eða hringja í síma félagsins 568 4444 og við munum senda greiðsluseðil í pósti.
Þegar greiðsluseðill hefur verið greiddur verður límmiði (límmiðar) merktir 2014 sendir í pósti til félagsmanns. Það er best að líma miðann strax á Skeljungskortið, sem staðfestingu að viðkomandi hefur greitt félagsgjald ársins og nýtur þeirra afsláttarkjara sem við höfum hjá mörgum fyrirtækjum.
Kveðja
Friðrik S. Halldórsson, gjaldkeri