Næsti félagsfundur verður haldinn mánudaginn 5. október kl. 20:00 í sal Ferðafélags Íslands að Mörkinni 6 (kjallaranum) og eru núverandi sem og nýir félagsmenn hvattir til að mæta.
Dagskrá:
Innanfélagsmál.
Kynning frá Skeljungi – varðar ýmislegt sem framundan er í þeirra starfsemi.
Ofurjeppar – Bjarni „blikk“ Einarsson.
Kaffi.
Tæknihornið – Benedikt Magnússon formaður Tækninefndar F4x4.
Kynning á svæðinu í kringum Strút – Jón Viðar Guðmundsson (Nóni).
Gengjakynning – Birgir Gíslason í Einagenginu.
Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4.