Ágætu félagsmenn.
Félagsfundurinn mánudagskvöldið 4. október verður haldinn í húsakynnum Ferðafélags Íslands að Mörkinni 6.
Dagskrá:
Innanfélagsmál.
Baráttan fyrir ferðafrelsinu.
Kaffi.
Kortlagning sprungusvæða á jöklum, Snævarr Guðmundsson kynnir þetta verkefni sem Ferðaklúbburinn hefur komið að fjármögnun á í samvinnu við marga aðra aðila.
Fundurinn hefst að venju stundvíslega kl. 20:00.
Stjórn F4x4.