Næsti félagsfundur 4×4 verður mánudagskvöldið 2. maí, kl. 20:00, fundarstaður er Icelandair Hotel Loftleiðir.
Fundurinn að þessu sinni er skipulagður af eftirtöldum nefndum: Litlunefnd, Tækninefnd, Skálanefnd og Umhverfisnefnd.
Dagskrá
- Innanfélagsmál
- Myndasýning frá byggingu Setursins skála F4x4
- Kaffi
- Fyrirlestur frá Frey Jónssyni um síðustu ferð hans á Suðurskautslandið 2010