FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Eyjafjarðardeild félagsfundur

29.12.2011 by Björn Pálsson

Félagsfundur Eyjafjarðardeildar veður haldinn 3.janúar kl.20.00 í húsnæði Súlna við Hjalteyrargötu

Dagskrá:

  • Ferðanefnd segir frá brennuferðinni og leggur niður ferðir nýársins (dagsetningar staðsetningar)
  • Skemmtinefnd kyndir undir mönnum fyrir Þrettándagleði og segir frá viðburðum vorannar
  • Ferðafrelsisnefnd verður með ýtarlegt erindi.
  • Myndasýning frá brennuefnisferð
  • Önnur mál

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Eyjafjarðardeild Brennuefnisferð

22.12.2011 by Björn Pálsson

Brennuefnisferð Eyjafjarðardeildar verður farin 27.desember. Lagt verður af stað frá Shell Hörgárbraut kl.8.30 og þaðan ekið í Nettó til að ná í bretti áður en haldið verður í Réttartorfu.
Fararstjóri verður Elmar Sigurgeirsson. Spallþráður hefur verið stofnaður svo menn geti tilkynnt þátttöku, þó engin sé skráningarskyldan.
Ferðanefnd

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Eyjafjarðardeild brennuefnisferð

22.12.2011 by Björn Pálsson

?Hin árlega brennuefnisferð í Réttartorfu verður farin 27.desember. Lagt verður af stað frá Shell Hörgárbraut kl.8.30

 

 

Fararstjóri er Elmar Sigurgeirsson.

Stofnaður verður þráður hér á spjallinu.

Ferðanefnd Eyjafjarðardeildar?

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Félagsfundur Eyjafjarðardeildar

26.10.2011 by Björn Pálsson

Félagsfundur Eyjafjarðardeildar verður haldinn þriðjudagskvöldið 1.nóvember. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Súlna við Hjalteyrargötu og hefst kl.20.00
Dagskrá:
  • Erindi nefnda
  • Nóvemberdagsferð kynnt
  • Innandeildarmál
  • Önnur mál
  • Kaffiveitingar

Stjórn Eyjafjarðardeildar

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Vinnuferð í Réttartorfu

23.10.2011 by Björn Pálsson

Helgina 29.-30. október nk.
Lagt verður af stað frá Shell Hörgárbraut á föstudeginum 28.okt kl. 19.00.
Vinnu við viðbyggingu stöðvarhúss verður framhaldið og klára að yfirfara skálann fyrir veturinn.
Örlygur verður með námskeið í grjóthleðslu á bílaplaninu að hætti Mývetninga. Menn eru beðnir um að tilkynna sig með því að hringja í Bubba (8650129) eða skrá sig á Spjallinu.
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Eyjafjarðardeild á Heljardalsheiði-Siglufjarðarskarð

18.10.2011 by Björn Pálsson

Næsta laugardag verður farin dagsferð á vegum ferðanefndar Eyjafjarðardeildar. Lagt verður af stað frá Shell Hörgárbraut kl.9.00 Ekin verður leiðin yfir Heljardalsheiði, tekinn sundsprettur í sundlauginni á Hofsósi og stefnt að því að fara Siglufjarðarskarð til Siglufjarðar áður en haldið verður heim á leið um göngin. Engin skráningarskylda er í ferðina en skemmtilegt væri ef menn létu vita af sér á spjallinu (þráður: ey4x4 Heljardalsheiði)

Ferðanefnd Eyjafjarðardeildar

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Eyjafjarðardeild … grín og glens :-)

11.10.2011 by Björn Pálsson

Nú verður fjör … Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar er það sönn ánægja að tilkynna fyrsta alvöru skemmtikvöld starfsársins. Við byrjum á að hittast í Bögglageymslunni, sem er í Gilinu, kl. 20:00 föstudagskvöldið 14. oktober. Nú er málið að fara í sitt næstfínasta púss og taka gleðina með í tösku. Við byrjum á vínkynningu, förum síðan í keilu og förum eftir það á afvikinn stað til að ræða hvort Amerískt drasl sé betra en það Japanska eða hvort Nissan eða Toyota sé málið. Gott væri að hafa með sér, öxul í Toyotu, vél í Patrol, tappasett, krossa fyrir Ameríska og lausann pening, ca. 2.000- kr., til að styðja deildina í smá útlögðum kostnaði.
Allar líkur eru á að langferðabifreið eða stuttferðabifreiðar verði notaðar til að skutla mis sjálfbjarga félögum á milli staða.
Endilega skrá sig þeir sem ætla koma því fleiri komast að en vilja.

Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4.

Halli G
Halla
Eiður
Raggi

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Félagsfundur Eyjafjarðardeildar

04.09.2011 by Elmar Sigurgeirsson

Septemberfundur Eyjafjarðardeildar verður haldinn þriðjudaginn 6.september. Fundurinn verður haldinn í húsnæði CAR-X að Njarðarnesi 8 og hefst fundur kl.20.00

Fundarefni:

  • nefndir kynna dagskrá vetrarstarfsins
  • kynning frá Car-X
  • kaffiveitingar 

Stjórn Eyjafjarðardeildar

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Stikuferð Eyjafjarðardeildar

28.07.2011 by Sæbjörg Richardsdóttir

Stikuferð Eyjafjarðardeildar í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð verður farin laugardaginn 6. ágúst.
Leiðin sem stikuð verður er frá afleggjaranum á  Gæsavatnaleið að Gjóstursklifi. Farið verður frá Shell nesti kl 08:00.
Nánari upplýsingar hjá Ella Þorsteins í síma 894 4722.

Stikunefnd Eyjafjarðardeildar.

Filed Under: Eyjafjarðardeild

Eyjafjarðardeild félagsfundur

02.06.2011 by Elmar Sigurgeirsson

Félagsfundur Eyjafjarðardeildar verður haldinn þriðjudagskvöldið 7. júní í Straumrásarsalnum, Furuvöllum 3.
Fundarefni:

  • Dr. Bjarni Guðleifsson flytur fyrirlestur
  • Erindi frá nefndum
  • Myndasýning
  • Kaffiveitingar
  • Önnur mál

Stjórn Eyjafjarðardeildar 4X4

Filed Under: Eyjafjarðardeild

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.