Þorrablót Eyjafjarðardeildar 4×4 verður haldið 18. febrúar í Dreka. Stíf skemmtidagskrá ásamt skemmdum mat verður á boðstólnum. Hægt verður að fara bæði á föstudag eða að morgni laugardags.
Leiðaval fer eftir veðri og færð og kemur í ljós þegar nær dregur.
Eins og staðan er núna að þá verður farið í gegnum Herðubreiðarlindir.
Ég vil byðja menn um að skrá sig hér og taka fram hvað þeir eru margir og hvort gista á eina eða tvær nætur.
Verðið er 2.800- per mann gisting og matur er 2.200- samtals þá 5.000- ein nótt eða 7.800- tvær nætur.
Staðfesta þarf þáttöku fyrir miðvikudag þar sem panta þarf matinn þann sama dag.
Áætluð brottför frá Shell (gellunesti) kl.17:00 föstudag og kl. 9:00 á laugardag.
Vinsamlegast látið vita af þátttöku á spjallvef f4x4 og látið líka vita ef þið vitið af einhverjum, sem ætla að koma, sem fara sjaldan eða aldrei í tölvuna sína)
fh skemmtinefndar
Halli Gulli