Næsta laugardag verður farin dagsferð á vegum ferðanefndar Eyjafjarðardeildar. Lagt verður af stað frá Shell Hörgárbraut kl.9.00 Ekin verður leiðin yfir Heljardalsheiði, tekinn sundsprettur í sundlauginni á Hofsósi og stefnt að því að fara Siglufjarðarskarð til Siglufjarðar áður en haldið verður heim á leið um göngin. Engin skráningarskylda er í ferðina en skemmtilegt væri ef menn létu vita af sér á spjallinu (þráður: ey4x4 Heljardalsheiði)
Ferðanefnd Eyjafjarðardeildar