FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
||||
Menu |
Stórferð Ferðaklúbbsins 4×4.
Stórferðin dagana 6. – 9.mars 2014
Fimmtudaginn 6. mars er förinni heitið í Hrauneyjar (eða á aðra nálæga gististaði) en eins og fram kemur í eftirfarandi auglýsingu
Föstudaginn 7.mars er áætluð brottför kl. 8:30 frá Hrauneyjum og stefnan tekin á Miðju Íslands. Þaðan förum við í Laugafell þar sem í boði verður ljúffengt kakó/kaffi í boði Eyfirðinga.
Þaðan er förinni heitið niður í Skagafjörð í þá gistingu sem menn hafa pantað sér.
Laugardaginn 8.mars er skemmtidagur og byggir hann á því að fara í fremur þægilegan stuttan (4 – 5 tíma ef áætlanir standast) dagstúr og enda á Blönduósi, ekki liggur fyrir á þessari stundu hvaða leiðarval verður fyrir valinu en það skýrist þegar nær dregur.
Reiknað er með að leggja af stað kl. 10:30 frá Varmahlíð. Laugardagskvöldið verður haldið hátíðlegt á Blönduósi þar sem við munum við gæða okkur á þriggja rétta máltíð sem við skolum niður með einhverri „hressingu“. Bílar verða á svæðinu til að skutla mönnum á milli staða þ.e. frá gististað að matsölu og til baka.
Á Blönduósi verður ferðinni formlega slitið.
Heimferð eftir vali hvers og eins þ.e. Kjölur eða bara malbikið.
Opnað hefur verið fyrir skráningu á vef félagsins old.f4x4.is (skráning í ferðir) Þeir viðmiðunarferlar sem undirbúningshópurinn mun leggja til í samvinnu við norðandeildir F4x4 verða gerðir aðgengilegir í gegnum síðu klúbbsins þegar nær dregur ferðalaginu.
Þátttökugjald er kr. 7000 og er þess óskað að menn geri skil á þeirri greiðslu eigi síðar en 14. febrúar ef þeir ætla að halda plássinu. Innifalið í gjaldinu er máltíðin og skutlið á Blönduós.