Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Litlunefndarferð í Kerlingarfjöll.

09.11.2013 @ 08:30 - 21:00

Viðburður Navigation

Laugardagur, 09 nóvember, 2013 kl. 08:30

Leiðin liggur frá Reykjavík um Þingvelli að Geysi þar sem stoppað verður og fyllt á tanka. Því næst verður ekið framhjá Gullfossi á Bláfellsháls um Kjalveg. Farin verður hefðbundin leið inn í Kerlingarfjöll og munu snjóalög ráða einhverju um gang ferðarinnar. Stoppað verður í Kerlingarfjöllum og nestið borðað áður en haldið er af stað heimleiðis sömu leið. Ferðinni verður svo slitið á Geysi. Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár, eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra. Bílar á 35″ dekkjum og minni njóta forgangs í þessa ferð, en allir eru hvattir til að skrá sig til þátttöku.

Upplýsingar

Dagsetn:
09.11.2013
Tími
08:30 - 21:00