FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
||||
Menu |
Landgræðsluferð umhverfisnefndar ferðaklúbbsins F4x4
Ferðin er 6. júní – 8. júní en fólki er í frjálst vald sett hvenær það kemur á svæðið.
Öll vinnan fer fram laugardaginn 7. júní. Þá er byrjað snemma dags og unnið vel fram að kaffileyti, eftir hádegi. Eftir að vinnu lýkur er farið í sund í Árnesi.
Þeir sem taka þátt fá ókeypis tjaldstæði á tjaldstæðinu frábæra í Sandártungu (rétt norðan við brúna yfir Sandá, við Ásólfsstaði)
http://is.visiticeland.com/Leitarnidurstodur/Skodaferdathjonustu/arnes-swimming-pool
Um kvöldið, laugardag, er grillveisla í boði umhverfisnefndar.
Það er mikilvægt að skrá sig þar sem við þurfum að áætla magn fyrir grillveisluna. Skráningarfrestur rennur út fimmtudagskvöld.