Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Ferð með Einstök Börn

17.05.2014

Laugardaginn 17. maí ætla félagar í Ferðaklúbbnum 4×4 að bjóða meðlimum í félaginu Einstök börn með í jeppaferð.  Um er að ræða 60 til 70 einstaklinga, börnin ásamt fylgdarfólki þeirra og er því áætlað að þurfi 30 til 40 jeppa til að anna þessum fjölda.

Hugmyndin er að fara úr bænum klukkan 9 að morgni, keyra sem leið liggur að Geysi þar sem verður stoppað. Því næst verður farið að Gullfossi og eftir það upp á Bláfellsháls og inn að Skálpa. Þar verður eitthvað brallað og hugmyndin er svo að fara upp á Jökulinn þar og sjá til hvað færið býður upp á.

Upplýsingar

Dagsetn:
17.05.2014