Bílamessa 2.júní 2011, Digraneskirkju, 4.ferð, Uppstigningadagur.
Nú er komið að því að við ætlum að hafa kyrrðarstund í Digraneskirkju í þriðja sinn. Undanfarin tvö skipti hefur þessi stund mælst mjög vel fyrir hjá okkur og Sr. Gunnari ásamt hans fólki í kirkjunni. Allir eru sammála að þetta sé góð stund til að minnast fallinna félaga og íhuga um sitt nánasta umhverfi. Eins og fyrri ár ætlum við að hittast í kirkjunni kl. 20.00. Eftir messuna býður klúbburinn ásamt kirkjunni upp á kaffiveitingar. Við hlökkum til að sjá þig og þína. Ekki er áætlað að fara sérstakan rúnt á eftir en við látum þó tíma og veður ráða því endanlega.
Umsjón ferðar Gunnar Örn Hjartarson s.897-4585