FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Kæru félagsmenn í F4x4

03.03.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

Mig langar að koma á framfæri þakklæti til félagsmanna fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu varðandi fráfall elskulegrar eiginkonu minnar, Halldóru Benediktsdóttur, sem lést í hörmulegu slysi á Langjökli í lok janúar s.l. Einnig langar mig að láta í ljós ánægju mína með þá vinnu sem komin er í gang við að kortleggja hættusvæði á jöklum með það að markmiði að draga úr eða helst af öllu koma í veg fyrir slys við ferðamennsku á jöklum í framtíðinni.

Kveðja,
Kristján Gunnarsson og fjölskylda.

Filed Under: Stjórn

F4x4 á rás 2, miðvikudaginn 3/3 kl. 17:30

03.03.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

Vegna herferðar ýmsa aðila í fjölmiðlum að undanförnu um slóðagerð þá verða fulltrúar F4x4, þeir Þorsteinn I. Víglundsson og Skúli H. Skúlason í viðtali á rás 2 í dag miðvikudaginn 3. mars kl. 17:30. Hægt er að hlusta á viðtalið hér og hvetjum við að sjálfsögðu alla til að leggja við eyrun.

Inn á síðu Ferðafrelsisnefndar má finna tengla inn á viðtöl og greinaskrif ýmsa aðila s.s. þá Andrés Arnalds og Pál Ásgeir Ásgeirssonar í tengslum við slóða og lokanir á þeim, áhugaverðir tenglar. 

Ferðafrelsisnefnd F4x4.

Filed Under: Ferðafrelsisnefnd

*

01.03.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir


Filed Under: Húsavíkurdeild

Verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs

28.02.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

Framundan eru kynningarfundir vegna verndaráætlunar vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, sem undanfarna mánuði hefur staðið yfir vinna við. Efni hennar er fjölþætt og tekur jafnt til verndunar og nýtingar á því landi sem tilheyrir þjóðgarðinum.
Fundirnir verða haldnir sem hér segir:
Þriðjudaginn 23. febrúar í Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri
Miðvikudaginn 3. mars í Tunguseli, Skaftártungu
Fimmtudaginn 4. mars á Laugalandi í Holtum
Fundirnir hefjast klukkan 20:00.
Framhald sjá nánar

Filed Under: Ferðafrelsisnefnd

Áhugaverðir tenglar

23.02.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

Hér má sjá tengla á áhugaverðar umræður um hálendismálin. Marga þessara tengla má rekja til fyrirlesturs sem Andrés Arnalds hélt í málstofu Landbúnaðarháskólans að Keldum og ber heitið Ísland örum skorið -Landakort á villigötum, nýjar slóðir og vaxandi akstur utan vega.

Hér má heyra viðtöl sem tekin voru við Andrés bæði á bylgjunni og rúv sama dag og fyrirlesturinn var haldinn 15. febrúar 2010:

Bylgjan

RÚV 

Daginn eftir fyrirlesturinn að Keldum 16. febrúar 2010 var viðtal við Andrés á rúv í speglinum:

Filed Under: Ferðafrelsisnefnd

Kvennaferð 2010

23.02.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

Verkstæðisfundur

fyrir kvennaferðina

verður haldinn í kvöld þriðjudaginn 23. Febrúar kl.19:00 í húsnæði ArticTrucks að Kletthálsi 3, 110 Reykjavík.

Nánari upplýsingar um ferðina hér.  

Filed Under: Fréttir

Opinn félagsfundur F4x4 í Eyjafirði föstudagskvöldið 5. mars.

14.02.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

Ágætu félagsmenn

Stjórn F4x4 boða til opins félagsfundar á Akureyri föstudagskvöldið 5. mars næstkomandi kl 20:00 á hótel KEA.
Fundurinn er haldinn í samstarfi við Eyjafjarðardeild F4x4 og eru félagsmenn þeirrar deildar sem og félagsmenn annarra deilda á norðurlandi, s.s. Húnvetningar, Skagfirðingar og Húsvíkingar,  hvattir til að mæta. Fulltrúar annarra deilda eru einnig boðnir velkomnir enda er fundurinn öllum opinn sem á annað borð eru félagsmenn í Ferðaklúbbnum 4×4.

Dagskrá fundarins mun birtast á vefnum þegar nær dregur fundi.

Stjórn F4x4

Filed Under: Fréttir

Félagsfundur 1. febrúar 2010

03.02.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

Sveinbjörn setti fundinn en sú nýbreytni hefur verið tekin upp að nefndir innan klúbbsins koma til með að sjá um dagskrá félagsfundar F4x4. Var þessi fundur sá fyrsti með þessu fyrirkomulagi í umsjá Umhverfis- og Skálanefndar.

Sveinbjörn las upp tilkynningu frá stjórn F4x4 er varðar banaslysið á Langjökli 30. janúar síðastliðinn. Þarna var um að ræða eiginkonu Kristjáns Gunnarssonar, stjórnarmanns í Ferðaklúbbnum 4×4, Halldóru Benediktsdóttir ásamt sjö ára gömlum syni þeirra hjóna. Sendum við Kristjáni og hans fjölskyldu, ásamt öðrum þeim sem um sárt eiga að binda, okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Filed Under: Fréttir

Slys á Langjökli 30. janúar 2010

01.02.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

Eins og félagsmenn hafa heyrt varð skelfilegt slys á Langjökli laugardaginn 30. janúar síðastliðinn þar sem kona og 7 ára drengur féllu niður í sprungu með þeim hörmulegu afleiðingum að konan lést. Þarna var um að ræða eiginkonu Kristjáns Gunnarssonar, stjórnarmanns í Ferðaklúbbnum 4×4, Halldóru Benediktsdóttir ásamt sjö ára gömlum syni þeirra hjóna. Eins og fyrr segir lést eiginkona Kristjáns, en sonur þeirra lifði slysið af og er nú á batavegi á Landspítalanum, hann er kominn af gjörgæslu og dvelur á Barnadeild Landsspítalans.

Þau hjónin voru þarna á ferð með hópi vinafólks og var ferðinni heitið inn að íshelli á slóð sem oft er ekin þegar þangað er farið.  Sökum minni snjóalaga en í venjulegu árferði hafði verið tekin sú ákvörðun að halda sig ofar í jökullinum  og fara áður farna leið niður að íshellunum enda ferðahópurinn þekktur fyrir að gæta varúðar á ferðalögum sem þessum.

Þetta sýnir okkur öllum að slysin gera ekki boð á undan sér.  Sendum við Kristjáni og hans fjölskyldu, ásamt öðrum þeim sem um sárt eiga að binda, okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Kristján hefur beðið um að komið verði á framfæri innilegu þakklæti til björgunarsveitarfólks, lækna og hjúkrunarfólks og er þeim óskum hér með komið til skila.

Stjórn F4x4.

 

Filed Under: Fréttir

Félagsfundurinn 1. febrúar í Mörkinni 6.

27.01.2010 by Stefanía Guðjónsdóttir

   

Dagskrá félagsfundarins mánudagskvöldið 1. febrúar er sem hér segir:

  1. Innanfélagsmál.
  2. Kvennaferðin.
    Kynning í umsjá undirbúningsnefndarinnar.
  3. Gengjakynning – Ofurgengið.
    Kynning í umsjá fulltrúa gengisins.
  4. Kaffi.
  5. Ferðin á Suðurskautslandið. Fyrirlestur og myndasýning í umsjá bræðranna Gísla Jónssonar og Freysa sem voru tveir af þeim sem fóru í þessa ferð.

Fundurinn, sem er í umsjá Umhverfisnefndar og Skálanefndar að þessu sinni, verður að venju haldinn í húsnæði FÍ að Mörkinni 6 og hefst kl. 20:00 stundvíslega.

Filed Under: Fréttir

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.