Hvítasunnuferð Hústrukka í Þórsmörk
Ágætu félagar
Við viljum minna á Hvítasunnuferð Hústrukka í Þórsmörk – Bása, 6.-9. júní.
Gert er ráð fyrir samfloti frá Hellu kl. 19:00 á föstudagskvöld, annars fer mæting í Básum eftir ástæðum hvers og eins. Líklegt er að stjórnarmenn Hústrukkanefndarinnar geti ekki „stjórnað“ samflotinu inní Þórsmörk. Gott væri að einhver gæti lóðsað hópinn inn úr ef með þarf.
Ekki er um formlega dagskrá að ræða í Þórsmörk en markmiðið, eins og fyrr, er að njóta útivistar, samveru og gönguferða við allra hæfi. Samkvæmt norsku langtímaveðurspánni er útlit fyrir gott útivistarveður. Vonumst til að sjá sem flesta og vinsamlegast látið boðin ganga til líklegra hústrukkafélaga.
Bestu kveðjur
Hústrukkanefndin
Hústrukkanefndin: Grétar Hrafn Harðarson s: 892 1480
Trausti Kári Hansson s: 894 9529
Viggó Vilbogason s: 892 3245.
Cintamani býður afslátt til félagsmanna F4x4.
Tilboð á topptjöldum til meðlima F4x4.
Þorrablót F4×4 í Setrinu 2014
Einkavinablót f4x4 2014
Sökum þess að allir sem vildu koma, áttu jeppa í lagi, höfðu efni á eldsneyti og fengu leyfi hjá konunni, komust með í fyrra ætlum við að opna fyrir skráningu á einkavinablót f4x4.
Líkt og í fyrra mega einungis þeir félagsmenn sem uppfylla öll þessi skilyrði hér að ofan koma með á blótið í ár.
Til að einungis vinir f4x4 komist á blótið verður skráning, eins og áður, í gegnum tölvupóstfangið thorrablot.f4x4@gmail.com
Síðan verður listinn yfir skráða settur á vef klúbbsins eftir að hafa verið vel ritskoðaður.
Margar keppnir voru í fyrra en hæst stóð uppúr “viðgerðin með flestum áhorfendum”. Sigraði Agnar hana með stæl. Einnig sigraði hann flokkinn “flestar tillögur fengnar við viðgerð”.
Nýr flokkur var stofnaður “besta viðgerðin án þess að nokkur tæki eftir”. Þar sigraði, eins og alltaf, Toyota sem gert var við án þess að nokkur tæki eftir og síðan er viðgerð lauk var því alfarið neitað að hún hefði farið fram.
Gistipláss verður takmarkað við 45 eins og undanfarin ár. Hámark er 4 per bíl.
Verð á mann er 7000 kr. Innifalið er gisting föstudag og laugardag og súrmeti. Engin skipulögð dagskrá er önnur en áta og ólæti á laugardagskvöld. Þátttakendur rotta sig saman í hópa og koma sér á staðinn og heim aftur. Greiða þarf inn á reikning 0115-05-063040, kennitala: 300568-3279 fyrir 23 jan. til að tryggja plássið sitt. Eftir það verða frátekin ógreidd pláss boðin þeim sem eru næstir á biðlista.
Fyrir hönd f4x4 og einkavinanefndar, Birkir fastur og félagar.
Hækkun skálagjalda í Setrinu.
Frá og með áramótum hækka Skálagjöldin í Setrinu sem hér segir:
- Félagsmenn ………………….. 2.000.kr.
- Börn 13-16 ára ……………….. 1.000.-
- Utanfélagsmenn ………………. 4.000.-
- Börn utanfélagsm. 13-16 ára … 2.000.-
- Aðstöðugjald …………………….. 300.-
- (Notkun á aðstöðu skálans án gistingar)
- Frí gisting fyrir börn yngri en 13 ára
- Hægt er að leggja inná reikning skálanefndar
- Kennitala: 701089-1549
- Reikningur: 1175-26-024444
- Ath. Sá sem pantar skálann er ábyrgur fyrir greiðslu skálagjalda og verður stofnuð krafa á hann í heimabanka hafi ekki verið greitt innan viku frá gistingu.
Kv. Skálanefnd.
Desember tilboð Bílabúðar Benna
Gleðileg jól. Bílanaust.
Hrauneyjar – Hotel Highland. Afsláttur.
Við viljum bjóða ykkur sama díl og síðast og bæta við cat3 herbergjunum okkar sem eru nýjustu og stærstu herbergin á Hrauneyjum.
Það sem að við getum boðið ykkur frá og með deginum í dag til og með 31.maí 2014 er eftirfarandi:
20% afslátt af mat
Varðandi gistinguna:
Svefnpokagisting fyrir einn í CAT I herbergi með morgunverði (sameiginleg baðherbergisaðstaða) 4.500.-
Svefnpokagisting fyrir tvo í CAT I herbergi með morgunverði (sameiginlega baðherbergisaðstaða) 5.900.-
Uppábúið rúm í CAT I fyrir einn með morgunverði (sameiginleg baðherbergisaðstaða) 5.500.-
Uppábúið rúm í CAT I fyrir tvo með morgunverði (sameiginleg baðherbergisaðstaða) 7.900.-
Uppábúið rúm í CAT II fyrir einn með morgunverði (sér baðherbergi) 7.500.-
Uppábúið rúm í CAT II fyrir tvo með morgunverði (sér baðherbergi) 9.900.-
Uppábúið rúm í CAT III fyrir einn með morgunverði (sér baðherbergi) 9.500.-
Uppábúið rúm í CAT III fyrir tvo með morgunverði (sér baðherbergi) 11.900.-
Í CAT I og CAT III herbergjunum er bæði hægt að fá tvö rúm (twin) eða eitt tvíbreitt rúm (double)
Í CAT II herbergjunum er einungis hægt að fá eitt tvíbreitt rúm (double)
Til viðbótar við þetta bjóðum við ykkur svo 20% afslátt af öllum drykkjum á þessu sama tímabili
Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar
Bestu kveðjur / Best regards
Hugrún Pétursdóttir
Sales & Marketing
Hotel Rangá
Tel: +354 4875700
Fax: +354 4875701
Suðurlandsvegur
851 Hella
ICELAND
When travelling around Iceland we recommend this app „SOS Iceland“
Hotel Rangá is a member of Great Hotels of the World premium collection
Hnútakvöld á morgun fimmtudag. Opið hús.
Það er ætlunin að vera með erindi/umræður um hnúta á opnu kvöldi fimmtudaginn 12. des. frá 20:00 til 23:00. (á morgunn)
Besserwisserar og kaðlaklaufar eru velkomnir.
Heitt á könnunni og með því.
- « Previous Page
- 1
- …
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- …
- 11
- Next Page »