Á fundi stjórnar F4x4 með fulltrúum nefnda ferðaklúbbsins í gærkvöldi kom fram sú hugmynd að bjóða fram aðstoð klúbbmeðlima þeim til handa sem illa hafa orðið úti vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Félagar í ferðaklúbbnum 4×4 eiga einn stærsta og best útbúna jeppaflota landsins og er hópurinn tilbúinn til aðstoðar við björgun eigna og/eða við hreinsunarstarf nú eða á síðari stigum.
Félagsmenn eru margir hverjir vanir vélamenn og gætu þannig einnig orðið að liði við sjórnun ýmis konar tækja ef svo ber undir.
Að sama skapi eru menn tilbúnir að leggja til sín ökutæki ef þau gætu nýst sem og unnið að öðrum þeim verkefnum sem ekki þarfnast sérstaks tækjabúnaðar. Er þess óskað að þetta tilboð félagsmanna verði kynnt innan sveitarstjórna eða á öðrum viðlíka vettvangi á svæðinu.
Virðingarfyllst.
Sveinbjörn Halldórsson
Formaður F4x4

Nú fer að líða að því að stórferð 4×4 klúbbsins hefjist. Ferðin mun hefjast formlega hjá Bílabúð Benna 18. mars næstkomandi kl 11:00. Þá mun Benni bjóða ferðalöngum upp á léttan hádegisverð áður en að lagt er í hann og eflaust verður eitthvað fleira í boði. Heimboðið hjá Bílabúð Benna stendur frá kl 11 – 13.

Klúbbnum barst í mánuðinum bréf frá Umhverfisráðuneytinu. Í bréfinu þakkar ráðuneytið Ferðaklúbbnum 4×4 það stórátak í vegamælingum á hálendi Íslands sem klúbburinn stóð að í samvinnu við Landmælingar Íslands á undanförnum þrem árum.